Lífeyrissjóðirnir í VÍS kusu svona um kaupin á Fossum

Heim­ildin spurði þá líf­eyr­is­sjóði sem eru meðal 20 stærstu hlut­hafa í Vátrygg­inga­fé­lagi Íslands (VÍS) hvernig þeir hefðu kosið í atkvæða­greiðslu um kaupin á fjár­fest­ing­ar­bank­anum Fossum. Kaupin voru sam­þykkt með 83 pró­sent greiddra atkvæða og fylgja rök líf­eyr­is­sjóð­anna fyrir þeirra atkvæðum hér.

Lífeyrissjóðirnir í VÍS kusu svona um kaupin á Fossum
Líf­eyr­is­sjóð­irnir kustu flestir með Af þeim líf­eyr­is­sjóðum sem eru í hópi 20 stærstu hlut­hafa VÍS kusu flestir með kaup­unum, af þeim sem hafa svarað spurn­ingum um málið. Einungis tveir sjóðir, Gildi og Lífsverk, kusu gegn til­lög­unni um kaupin.

Heim­ildin spurði líf­eyr­is­sjóð­ina  sem eru meðal 20 stærstu hlut­hafa Vátrygg­inga­fé­lags Íslands hvernig þeir höfðu kosið um kaupin á Fossum á hlut­hafa­fundi trygg­inga­fé­lags­ins. Af þeim sem svör­uðu voru sex sem sögð­ust hafa greitt atkvæði með kaupum VÍS á Fossum. Þetta eru Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, Stapi, Birta, Brú og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar.

Þrír sögð­ust hafa greitt atkvæði á móti kaup­unum, Gildi, Lífsverk og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn.

Stærsti hlut­haf­inn meðal líf­eyr­is­sjóða, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins, svar­aði ekki spurn­ingum blaðs­ins. 

Of háttt verð og skortur á upplýsingum

Fyrir hlut­hafa­fund­inn lá fyrir að líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi myndi að óbreyttu ekki styðja til­lög­una um kaupin á Fossum. Þetta kom fram í máli Davíðs Rúd­ólfs­sonar, for­stöðu­manns eigna­stýr­ingar Gildis, fyrir hlut­hafa­fund­innn. Davíð stað­festir að Gildi hafi greitt atkvæði gegn til­lög­unni. Sjóð­ur­inn taldi að verð­matið á Fossum, um 4,2 millj­arðar króna, væri of hátt. 

Lífsverk sagði líka nei. For­stöðu­maður eigna­stýr­ingar sjóðs­ins, Guðrún Inga Ing­ólfs­dóttir, segir sjóð­ur­inn hafi talið verð­matið á félag­inu of hátt og fram­tíð­ar­á­ætl­anir hefðu mátt vera skýr­ari: „Lífsverk líf­eyr­is­sjóður greiddi atkvæði gegn kaupum Vátrygg­inga­fé­lags Íslands hf. (VÍS) á Fossum fjár­fest­inga­banka hf. (Fossar). Það er mat líf­eyr­is­sjóðs­ins að verðið sem VÍS greiddi fyrir Fossa væri of hátt. Upp­lýs­inga­gjöf til hlut­hafa VÍS hefði mátt vera meiri og fram­kvæmd fram­tíð­ar­á­ætl­unar skýr­ari.“

Gunnar Bald­vins­son, fram­kvæmda­stjóri Almenna líf­eyr­is­sjóðs­ins, greiddi líka atkvæði gegn kaup­unum vegna þess að upp­lýs­inga­gjöf um við­skiptin hafi ekki verið nægi­lega góð. „Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn greiddi atkvæði gegn til­lögu um kaup á Fossum. Það var mat okkar að sjóð­ur­inn hafi ekki fengið nægar upp­lýs­ingar um for­sendur við verð­mat Fossa.“

 

Telur við­skiptin vera væn­legArnaldur Loftsson, fram­kvæmda­stjóri Frjálsa líf­eyr­is­sjóðs­ins, telur fjár­fest­ing­una vera væn­lega fyrir VÍS og þar með ávöxtun sjóðs­ins.

Rökstuðningur stærstu sjóðanna sem svöruðu og sögðu já

Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, sem er þriðji stærsti hlut­hafi VÍS meðal líf­eyr­is­sjóða, greiddi atkvæði með til­lög­unni. Þetta kemur fram í svörum Arnaldar Lofts­sonar, fram­kvæmda­stjóra sjóðs­ins, í svörum til Heim­ild­ar­innar. „Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn kaus með til­lögum stjórnar VÍS á hlut­hafa­fundi félags­ins 14. júní 2023.“ Sjóð­ur­inn á 8,96 pró­sent í VÍS. 

Í svari við spurn­ing­unni af hverju Frjálsi kaus með til­lög­unni segir Arnaldur: „Sjóð­ur­inn styður veg­ferð stjórnar VÍS og telur mik­il­vægt að félagið grípi þau tæki­færi sem bjóð­ast á mark­aði.“

„Sjóð­ur­inn hefur trú á að stjórn sam­ein­aðs félags ásamt öfl­ugu stjórn­enda­teymi geti náð þeim mark­miðum sem hafa verið sett til fram­tíðar.“
Arnaldur Loftsson,
fram­kvæmda­stjóri Frjáls líf­eyr­is­sjóðs­ins

Arnaldur segir enn frekar að Frjálsi telji að sú lausn að VÍS kaupi fjár­fest­ing­ar­banka, í stað­inn fyrir að félagið stofni slíkan banka sjálft, sé betri kostur.  „Sjóð­ur­inn telur að með því að sam­eina öfl­uga inn­viði félag­anna og miðað við sterka stöðu VÍS og öfl­uga teng­ingu Fossa við fjár­mála­mark­aði, verði til félag sem getur skilað auknu virði til hlut­hafa horft til fram­tíð­ar­á­ætl­ana sam­ein­aðs félags. Þessi leið sé ákjós­an­legur kostur í sam­an­burði við stofnun nýs fjár­fest­ing­ar­banka frá grunni m.t.t. kostn­aðar, tíma og áhættu. Sjóð­ur­inn hefur trú á að stjórn sam­ein­aðs félags ásamt öfl­ugu stjórn­enda­teymi geti náð þeim mark­miðum sem hafa verið sett til fram­tíðar.“

Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, sem á 6,70 pró­sent í VÍS sagði sömu­leiðis já.  „Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna greiddi atkvæði með til­lög­unni,“ segir Arne Vagn Olsen, for­stöðu­maður eigna­stýr­ingar sjóðs­ins í svari sínu. 

Arne segir að það hafi verið mat stjórn­enda að kaupin á Fossum muni hafa jákvæð áhrif á eign­ar­hlut líf­eyr­is­sjóðs­ins til lengri tíma litið.  „Það var nið­ur­staða Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, að und­an­geng­inni ítar­legri rýni, að sam­ein­ing félag­anna væri lík­leg til að auka virði VÍS og þar með hafa jákvæð áhrif á eign­ar­hlut sjóðs­ins í félag­inu til lengri tíma litið.“

„Það er mat sjóðs­ins að miðað við fyr­ir­liggj­andi for­sendur eru kaupin arð­bær fjár­fest­inga­kostur.“
Jóhann Steinar Jóhanns­son,
fram­kvæmda­stjóri Stapa

Stapi, Birta og Brú sögðu allir já

Líf­eyr­is­sjóð­irnir Stapi, Birta og Brú greiddu allir atkvæði með kaup­unum. Þessir sjóðir eiga allir minni hlut en 5 pró­sent í VÍS. 

Í svari Jóhanns Steinars Jóhanns­sonar, fram­kvæmda­stjóra Stapa, segir að sjóð­ur­inn hafi trú á við­skipt­unum og að þau auki virði VÍS.  „Stapi sam­þykkti til­lögu stjórnar VÍS um hækkun hluta­fjár til efnda á greiðslu kaup­samn­ings um hlutafé í Fossum á hlut­hafa­fundi í gær. Það er mat sjóðs­ins að miðað við fyr­ir­liggj­andi for­sendur eru kaupin arð­bær fjár­fest­inga­kostur óháð sam­legð­ar­mögu­leikum og tæki­færum sem fel­ast í tíma­setn­ingu þess að útvíkka starf­semi félags­ins með starfs­leyfi fjár­fest­inga­banka á þessum tíma.  Samlegð af sam­rekstri félag­anna til fram­tíðar og nýt­ing tæki­færa á mark­aði ætti að skila hlut­höfum auk­inni arð­semi af eign­ar­hlut sínum í VÍS, sbr. kynn­ingu stjórnar um hækkun lang­tímaarð­sem­is­mark­miðs úr 1,5 kr. á hlut í 2,5 kr. á hlut.“

Sex já en þrír neiAf þeim líf­eyr­is­sjóðum sem svör­uðu Heim­ild­inni sögð­ust sex hafa sagt já við kaup­unum á Fossum en þrír nei. Brú stýrir Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar og greiddi atkvæði fyrir hann. LSR svar­aði ekki blað­inu og Almenni ekki heldur.

Birta greiddi líka atkvæði með til­lög­unni segir Ólafur Sig­urðs­son fram­kvæmda­stjóri þess sjóðs.  „Birta greiddi atkvæði með þeim til­lögum sem lagðar voru fram í gær [mið­viku­dag­inn 14. júní]. Samkvæmt eig­enda­stefnu Birtu fellur eign­ar­hlutur sjóðs­ins í VÍS ekki undir meiri­háttar hags­muna­gæslu eins og hún er skil­greind í 4. mgr. 1. gr. gild­andi eig­enda­stefnu. Hlut­ur­inn er um 0,2% af eignum Birtu og 3,7% af hlutafé VÍS. Þegar hags­munir Birtu telj­ast vera minni­háttar, tekur afstaða okkar mið af því að sjóð­ur­inn getur auð­veld­lega komið sér út úr aðstæðum telji stjórn og starfs­fólk það þjóna hags­munum Birtu best. Við ákvörðun á fund­inum var einnig horft til þess að Birta hefur áður sam­þykkt sam­bæri­lega breyt­ingu á til­gangi trygg­inga­fé­lags á mark­aði þegar breyt­ingar voru gerðar á til­gangi og starf­semi TM í byrjun árs 2020.“

Loks segir Gerður Guð­jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Brúar, líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna sveit­ar­fé­laga að sjóð­ur­inn hafi trúa á að við­skiptin skili sjóðnum auknu virði. Þess vega sagði hann já við til­lög­unni. „Á síð­asta aðal­fundi VÍS kaus sjóð­ur­inn sitj­andi stjórn en hlut­verk stjórn­ar­innar er að tryggja að félagið sé rekið á heil­brigðan og eðli­legan hátt með hags­muni hag­að­ila að leið­ar­ljósi en jafn­framt sér stjórnin um þá stefnu­mótun sem nauð­syn­leg er til að ná settum mark­miðum. Það er trú okkar að við kaup VÍS á Fossum skap­ist tæki­færi sem skila sjóðnum sem hlut­hafa auknu virði.“

Brú greiddi einnig atkvæði með kaup­unum fyrir hönd Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞÁ
    Þórarinn Ásmundsson skrifaði
    Af hverju þarf vátrygginga félag að reka fjárfestingabanka? Skil ekki hvar samlegðin liggur.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sameining VÍS og Fossa

Birta um kaup VÍS á Fossum: „Kannski verið hægt að semja betur við þá“
FréttirSameining VÍS og Fossa

Birta um kaup VÍS á Fossum: „Kannski verið hægt að semja betur við þá“

Kaup Vátrygg­inga­fé­lags Íslands á Fossum í fyrra voru umdeild og lögð­ust þrír líf­eyr­is­sjóðir í hlut­hafa­hópnum gegn þeim. Árs­reikn­ingur Fossa fyrir árið 2023 sýnir félag í rekstr­ar­vanda. Ólafur Sig­urðs­son hjá Birtu segir að árs­reikn­ing­ur­inn sýni að mögu­lega hefði hægt að semja betur við Fossa en að of snemmt sé að dæma við­skiptin sem mis­tök.
VÍS borgaði 2,7 milljarða króna yfirverð fyrir Fossa vegna vörumerkis og viðskiptavildar
GreiningSameining VÍS og Fossa

VÍS borg­aði 2,7 millj­arða króna yfir­verð fyrir Fossa vegna vöru­merkis og við­skipta­vildar

Eitt af stóru trygg­inga­fé­lögum lands­ins, VÍS, keypti fjár­fest­inga­bank­ann Fossa í fyrra fyrir alls 4,7 millj­arða króna í fyrra. End­an­lega verðið var nokkuð frá því sem áður hafði verið í umræð­unni og í nýbirtum árs­reikn­ingi kemur fram að stærsti hluti kaup­verðs­ins hafi verið svo­kallað yfir­verð. Verð sem greitt var fyrir eitt­hvað annað en virði eigna Fossa. Í þessu til­felli vöru­merki og við­skipta­vild.
Söluverð Fossa fjórfalt hærra en það ætti að vera miðað við mat félagsins sjálfs
FréttirSameining VÍS og Fossa

Söluverð Fossa fjór­falt hærra en það ætti að vera miðað við mat félags­ins sjálfs

Vátrygg­inga­fé­lagið VÍS og Fossar eru í mót­sögn við fyrra mat Fossa á for­send­unum sem verð­meta ætti félagið á. Til stendur að almenn­ings­hluta­fé­lagið VÍS kaupi Fossa á 4,2 millj­arða og byggir það verð­mat á fram­tíð­ar­tekjum félags­ins og mögu­leikum. Í dóms­máli árið 2019 töldu Fossar hins vegar að félagið ætti að vera verð­metið út frá bók­færðu virði eig­in­fjár.
Gildi telur verðmæti Fossa ofmetið og styður ekki kaup VÍS á félaginu að óbreyttu
FréttirSameining VÍS og Fossa

Gildi telur verð­mæti Fossa ofmetið og styður ekki kaup VÍS á félag­inu að óbreyttu

Á mið­viku­dag­inn tekur hlut­hafa­fundur trygg­inga­fé­lags­ins VÍS afstöðu til þess hvort kaupa eigi fjár­fest­ing­ar­bank­ann Fossa fyrir um 4,2 millj­arða. Davíð Rúd­olfs­son, for­stöðu­maður eigna­stýr­ingar Gildis, seg­ist ekk­ert botna í verð­mati félags­ins. Verð fjár­fest­ing­ar­bank­ans Fossa er einnig ofmetið sam­kvæmt grein­ingu banda­ríska fjár­fest­ing­ar­bank­ans Goldman Sachs á sam­bæri­legum fyr­ir­tækjum. VÍS er í meiri­hluta­eigu líf­eyr­is­sjóða og þar með almenn­ings.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár