Gildi telur verðmæti Fossa ofmetið og styður ekki kaup VÍS á félaginu að óbreyttu

Á mið­viku­dag­inn tekur hlut­hafa­fundur trygg­inga­fé­lags­ins VÍS afstöðu til þess hvort kaupa eigi fjár­fest­ing­ar­bank­ann Fossa fyrir um 4,2 millj­arða. Davíð Rúd­olfs­son, for­stöðu­maður eigna­stýr­ingar Gildis, seg­ist ekk­ert botna í verð­mati félags­ins. Verð fjár­fest­ing­ar­bank­ans Fossa er einnig ofmetið sam­kvæmt grein­ingu banda­ríska fjár­fest­ing­ar­bank­ans Goldman Sachs á sam­bæri­legum fyr­ir­tækjum. VÍS er í meiri­hluta­eigu líf­eyr­is­sjóða og þar með almenn­ings.

Gildi telur verðmæti Fossa ofmetið og styður ekki kaup VÍS á félaginu að óbreyttu
Í meiri­hluta­eigu líf­eyr­is­sjóða VÍS er í meiri­hluta­eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða en aðrir stórir hlut­hafar eru meðal ann­ars félög sem Jón Ásgeir Jóhann­es­son og Bjarni Ármanns­son eiga. Trygg­inga­fé­lagið, sem Guðný Helga Her­berts­dóttir stýrir, er að fara að kaupa Fossa, sem Haraldur Þórð­ar­son stýrir, á upp­sprengdu verði.

„Við erum ennþá að spyrja félagið spurn­inga um málið af því við höfum veru­legar efa­semdir um að þetta sé ásætt­an­legt verð sem verið er að greiða fyrir hlut­inn. Við eigum von á svörum mjög fljót­lega til að geta lagt end­an­legt mat á hver okkar afstaða verður á hlut­hafa­fund­inum. Að óbreyttu þá sé ég ekki fyrir mér að við munum sam­þykkja þessa til­lögu um kaup á Fossum,“ segir Davíð Rúd­ólfs­son, for­stöðu­maður eigna­stýr­ingar líf­eyr­is­sjóðs­ins Gildis, aðspurður um afstöðu sjóðs­ins til fyr­ir­hug­aðra kaupa trygg­inga­fé­lags­ins VÍS á Fossum. Til stendur að VÍS greiði um 4,2 millj­arða króna fyrir félagið, miðað við markasverð VÍS um þessar mundir, og að hlut­hafar Fossa fái greitt með nýjum hluta­bréfum í VÍS. Gildi er 3. stærsti hlut­hafi VÍS með 9,23 pró­senta hlut. 

„Þetta kom okkur svo­lítið á óvart að sjá þennan verð­miða.“
Davíð Rúd­olfs­son,
for­stöðu­maður eigna­stýr­ingar Gildis líf­eyr­is­sjóðs

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga meiri­hluta hluta­fjár í VÍS. Meðal ann­ars Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins, Gildi, Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, Stapi og Birta. Stærstu einka­fjár­fest­arnir eru svo fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Skel, þar sem Jón Ásgeir Jóhann­es­son er stór hlut­hafi, og fjár­fest­ing­ar­fé­lag Bjarna Ármanns­sonar, Sjáv­ar­sýn. Líf­eyr­is­sjóð­irnir, og þar með sjóðs­fé­lagar þeirra sem eru iðgjalda­greið­end­urnir, eiga hins vegar meiri­hluta í félag­inu. Af 20 stærstu hlut­höfum VÍS eru 11 líf­eyr­is­sjóðir sem eiga sam­tals 58,33 pró­sent í félag­inu. 

Fossar er í grunn­inn verð­bréfa­fyr­ir­tæki sem fékk fjár­fest­ing­ar­banka­leyfi frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu í fyrra. Eftir sam­ein­ing­una, gangi hún eftir, mun verða rekið sér­stakt fjár­fest­ing­ar­banka­svið innan VÍS auk eigna­stýr­ing­ar­deildar og trygg­inga­rekstrar. Ársverk Fossa í fyrra voru tæp­lega 24. Fyr­ir­tækið hefur verið nokkuð til umfjöll­unar í fjöl­miðlum vegna þess að það kom að því að selja hluta­bréf rík­is­ins í Íslands­banka í fyrra. 

Hlut­hafa­fundur Vátrygg­inga­fé­lags Íslands mun taka sam­ein­ing­una við Fossa fyrir á hlut­hafa­fundi sínum á mið­viku­dag­inn.

VÍS: Verðmatið byggir á framtíðarvæntingum

Heim­ildin sendi spurn­ingar um hvernig verð­mat Fossa væri unnið til vátrygg­inga­fé­lags­ins VÍS.

Svar VÍS er á þá leið að verð­matið byggi á „vænt­ingum“ og „arð­semi til fram­tíðar“: „Mikil fjár­fest­ing átti sér stað í innviðum og leyfum hjá Fossum fjár­fest­ing­ar­banka á síð­asta ári og verð­matið byggi m.a. á þeim áætl­unum og verk­efnum sem eru á borði Fossa. Verðmat Fossa fjár­fest­inga­banka byggir því á vænt­ingum um fram­tíð­ar­tekjur og arð­semi til fram­tíðar.“

Í svar­inu felst því að verð­miði Fossa byggi á því sem ætlað er að verði frekar en ein­hverju sem er hand­bært í rekstri félags­ins í dag. 

Davíð: Tekjur félagsins fyrst og fremst miðlunartekjur

Orð Davíðs Rúd­ólfs­sonar um að virði Fossa sé ofmetið í fyr­ir­hug­uðum við­skiptum við vátrygg­inga­fé­lagið VÍS eiga sér líka stoð í þeim for­sendum sem not­aðar eru til að reikna út verð slíkra fyr­ir­tækja hjá fjár­fest­ing­ar­bank­anum Goldman Sachs.

Davíð segir að efa­semdir Gildis byggi fyrst og fremst á því að meg­in­rekstur Fossa snú­ist um miðl­un­ar­tekjur. Það er að segja tekjur sem starfs­menn Fossa fá fyrir að vera milli­liðir í hluta­bréfa- og verð­bréfa­við­skiptum. „Meg­in­rekstur félags­ins snýst um miðl­un­ar­tekjur og þar byrja menn á hverjum degi upp á nýtt ef svo má segja. Þetta eru hverf­ular tekjur sem byggja fyrst og fremst á við­kom­andi starfs­mönnum og þeirra tengsla­neti og svo fram­vegis. Þannig að það að nota marg­fald­ara til að verð­meta félag sem er með tekjur af þessu eðli er það sem við setjum meðal ann­ars spurn­inga­merki við,“ segir Davíð og bætir við: „Við eigum því erfitt með að reikna okkur niður á þetta verð. Þetta kom okkur svo­lítið á óvart að sjá þennan verð­miða.“ 

Ólafur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri líf­eyr­is­sjóðs­ins Birtu, segir við Heim­ild­ina að hann geti ekki tjáð sig um mat sjóðs­ins á verð­mat­inu á Fossum og þessi fyr­ir­hug­uðu við­skipti. Hann segir að Birta hafi það sem reglu að gera slíkt ekki það sem geti haft áhrif á ákvarð­ana­tök­una í mál­inu. Hann segir að starfs­fólk Birtu muni hitta VÍS á morgun og ræða við það um við­skiptin með Fossa og verð­mið­ann á fyr­ir­tæk­inu. Hann segir að sjóð­ur­inn muni taka ákvörðun um fram­haldið í kjöl­farið. 

Arnaldur Loftsson, fram­kvæmda­stjóri Frjálsa líf­eyr­is­sjóðs­ins, tekur í sama streng og  Ólafur Sig­urðs­son og segir að hann geti ekki tjáð sig um verð­matið að svo stöddu. Hann segir að stjórn Frjálsa muni taka ákvörðun um hvort sjóð­ur­inn styðji kaupin á stjórn­ar­fundi á mið­viku­dags­morgun. 

Efast um verð­matið Davíð Rúd­olfs­son. fram­kvæmda­stjóri líf­eyr­is­sjóðs­ins Gildis, efast um verð­matið á Fossum í við­skipt­unum við VÍS.

Verðmæti Fossa talið 4,2 milljarðar

Komið hefur fram að við­skiptin muni fara þannig fram að hlut­hafar Fossa muni eign­ast sam­tals 12,62* pró­senta hlut í VÍS við sam­ein­ing­una eða 245 milljón hluti.

Samkvæmt virði hluta­bréfa í VÍS föstu­dag­inn 9. júní er það 17,30 á hlut þannig að verð­mæti Fossa ætti að vera 4.239 millj­ónir króna miðað við þetta. 

Samkvæmt frétt um virði fyr­ir­tæk­is­ins sem birt var í febr­úar, þegar hluta­bréfa­verð í VÍS var 19,25 voru Fossar fimm millj­arða króna virði. 

Í byrjun júní birti ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Jak­obs­son Capital verð­mat á VÍS þar sem kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að það væri 31,5 millj­arðs króna virði. Miðað við verð­mat Jak­obs­son Capital er áætl­aður hlutur eig­enda Fossa í VÍS tæp­lega 4,2 millj­arða virði. 

Miðað við þessar tölur er verð­mæti Fossa á bil­inu 4 til 5 millj­arðar króna, miðað við verð hluta­bréfa VÍS á mark­aði síð­ustu mán­uði og umrætt verð­mat sem liggur fyrir. Talan sem miðað verður við í við­skipt­unum er mark­aðs­verð VÍS á hluta­bréfa­mark­aði þannig að 4,5 millj­arðar er talan sem eðli­leg­ast er að miða við. 

600 milljóna króna sveifla

Þegar fréttir voru birtar um virði Fossa í febr­úar var vísað í rekstr­ar­nið­ur­stöðu árs­ins 2021. Þetta var þann 15. febr­úar eða sama dag og ákveðið var að félögin myndu hefja við­ræður um kaup VÍS á öllu hlutafé í Fossum. Árið 2021 voru tekjur Fossa rúm­lega 1.500 millj­ónir króna og hagn­að­ur­inn rúm­lega 500 millj­ónir.

Þann 17. febr­úar sam­þykkti stjórn Fossa árs­reikn­ing fyrir 2022 þar sem staðan hafði breyst umtals­vert. Tekj­urnar höfðu dreg­ist saman um rúm­lega 400 millj­ónir króna, eða um nærri 1/3 og hagn­að­ur­inn hafði farið niður í 77 millj­óna króna tap. Því var um að ræða breyt­ingu til hins verra upp á 600 millj­ónir króna á milli ára. 

Miðað við þessar tölur, frá því í fyrra, standa Fossar ekki undir því verð­mati að félagið sé 4,5 millj­arða króna virði. En þetta er verðið sem trygg­inga­fé­lag, sem er að meiri­hluta í eigu líf­eyr­is­sjóða, er að fara að greiða fyrir þetta fyr­ir­tæki sem nýlega fékk fjár­fest­ing­ar­banka­leyfi. 

Virði FossaMiðað við grein­ingu frá banda­ríska fjár­fest­ing­ar­bank­anum Goldman Sachs í maí þá er virði Fossa gróf­lega ofmetið miðað við þær for­sendur sem gefnar eru þar í töflu um verð á fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Hagnaður þyrfti að vera um 570 milljónir króna

Samkvæmt nýlegri grein­ingu frá banda­ríska fjár­fest­ing­ar­bank­anum Goldman Sachs standa Fossar ekki undir þessu 4,2 millj­arða króna verð­mati sem liggur undir í við­skipt­unum. Samkvæmt svoköll­uðu P/E-mati – verði fjár­mála­fyr­ir­tækja út frá hagn­aði – hefðu Fossar þurft að hagn­ast um tæp­lega 570 millj­ónir króna í fyrra til að standa undir þessu verði. Fyr­ir­tækin sem Goldman Sachs byggir grein­ingu sína á eru allt fjár­mála­fyr­ir­tæki sem skráð eru á markað í Banda­ríkj­unum og eru því burð­ugri en Fossar. 

Verð­matið á Fossum, og þau hluta­bréf í VÍS sem hlut­hafar þess félags koma til með að fá í VÍS í skiptum fyrir sín bréf, er því ansi hátt miðað við þetta. Þetta verð­mat er rök­rétt­ara þegar horft er að rekstr­ar­nið­ur­stöðu Fossa árið 2021 þegar hagn­að­ur­inn var rúm­lega 500 millj­ónir en í fyrra. 

Svar VÍS um verð­matið á Fossum er svo heldur ekki beint í mót­sögn við þetta þar sem þar kemur fram að verð­mið­inn á fyr­ir­tæk­inu byggi alls ekki á rekstri Fossa eins og hann hefur verið heldur vænt­ingum um það hvernig hann muni mögu­lega verða. 

*Upp­haf­lega stóð í frétt­inni að hlut­hafar Fossa myndu fá greitt fyrir sinn hlut með 260 milljón hlutum í VÍS eða 13,3 pró­senta hlut. Þetta var upp­haf­lega hug­myndin í febr­úar 2023. Síðan þá hefur vænt­an­legt sölu­verð verið lækkað í 245 milljón hluti eða 12,62 pró­senta hlut í VÍS. 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sameining VÍS og Fossa

Birta um kaup VÍS á Fossum: „Kannski verið hægt að semja betur við þá“
FréttirSameining VÍS og Fossa

Birta um kaup VÍS á Fossum: „Kannski verið hægt að semja betur við þá“

Kaup Vátrygg­inga­fé­lags Íslands á Fossum í fyrra voru umdeild og lögð­ust þrír líf­eyr­is­sjóðir í hlut­hafa­hópnum gegn þeim. Árs­reikn­ingur Fossa fyrir árið 2023 sýnir félag í rekstr­ar­vanda. Ólafur Sig­urðs­son hjá Birtu segir að árs­reikn­ing­ur­inn sýni að mögu­lega hefði hægt að semja betur við Fossa en að of snemmt sé að dæma við­skiptin sem mis­tök.
VÍS borgaði 2,7 milljarða króna yfirverð fyrir Fossa vegna vörumerkis og viðskiptavildar
GreiningSameining VÍS og Fossa

VÍS borg­aði 2,7 millj­arða króna yfir­verð fyrir Fossa vegna vöru­merkis og við­skipta­vildar

Eitt af stóru trygg­inga­fé­lögum lands­ins, VÍS, keypti fjár­fest­inga­bank­ann Fossa í fyrra fyrir alls 4,7 millj­arða króna í fyrra. End­an­lega verðið var nokkuð frá því sem áður hafði verið í umræð­unni og í nýbirtum árs­reikn­ingi kemur fram að stærsti hluti kaup­verðs­ins hafi verið svo­kallað yfir­verð. Verð sem greitt var fyrir eitt­hvað annað en virði eigna Fossa. Í þessu til­felli vöru­merki og við­skipta­vild.
Söluverð Fossa fjórfalt hærra en það ætti að vera miðað við mat félagsins sjálfs
FréttirSameining VÍS og Fossa

Söluverð Fossa fjór­falt hærra en það ætti að vera miðað við mat félags­ins sjálfs

Vátrygg­inga­fé­lagið VÍS og Fossar eru í mót­sögn við fyrra mat Fossa á for­send­unum sem verð­meta ætti félagið á. Til stendur að almenn­ings­hluta­fé­lagið VÍS kaupi Fossa á 4,2 millj­arða og byggir það verð­mat á fram­tíð­ar­tekjum félags­ins og mögu­leikum. Í dóms­máli árið 2019 töldu Fossar hins vegar að félagið ætti að vera verð­metið út frá bók­færðu virði eig­in­fjár.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár