Að gefast ekki upp: „Ef ég kemst ekki inn í fimmta skiptið þá ætla ég inn í sjötta skipti“

Luis Gísli Rabelo komst inn í lækn­is­fræði í fimmtu til­raun og er að ljúka fjórða náms­ár­inu. Hann lét úrtöluraddir sem vind um eyru þjóta og segir reynsl­una hafa gert sig að betri náms­manni. Litli bróðir hans fet­aði í fót­spor hans og náði próf­inu í þriðju til­raun. Ungt fólk getur þurft að þreyta inn­töku­próf nokkrum sinnum. Sál­fræð­ingur segir ýmis góð bjarg­ráð hjálp­leg í slíkum aðstæðum.

<span>Að gefast ekki upp:</span> „Ef ég kemst ekki inn í fimmta skiptið þá ætla ég inn í sjötta skipti“
Inn­töku­prófið Krefst mik­ils aga og góðs skipu­lags af hálfu nem­enda.

Þraut­seigja og góð sjálfs­mynd skiptir höf­uð­máli þegar kemur að því að takast á við hindr­anir í líf­inu. Alls kyns aðstæður geta kallað á þessa eig­in­leika en ung­menni sem hafa hug á að verða læknar, sjúkra­þjálf­arar og nú tann­læknar þurfa gjarnan að láta á þá reyna þegar þau spreyta sig á inn­töku­prófi við Háskóla Íslands. 

Inn­töku­prófið getur nefni­lega reynst fólki erfitt, sér­stak­lega þeim sem þurfa að taka það oftar en einu sinni, enda tekur það ferli nokkur ár. Þekkt er að metn­að­ar­fullir nemar verði óþreyju­fullir ef þeir stand­ast ekki prófið og fari þá jafn­vel utan til náms, jafn­vel þó að æsku­draum­ur­inn hafi verið að læra við HÍ.

Regína Ólafs­dóttir, sál­fræð­ingur hjá Seiglu sál­fræði­stofu, segir það skipta miklu máli að þekkja eigin styrk­leika og veik­leika þegar tek­ist er á við hindr­anir í líf­inu. Þannig geti fólk öðl­ast betri sjálfs­skiln­ing sem Regína segir að sé lyk­ill­inn að því að kom­ast í gegnum krefj­andi tíma­bil. 

Fimm tilraunir

Luis Gísli Rabelo komst inn í lækn­is­fræði við Háskóla Íslands í fimmtu til­raun og er nú að ljúka við fjórða náms­árið sitt. Hann seg­ist hafa verið harð­á­kveð­inn í því að verða læknir allt frá því að hann var sex ára gam­all. 

Luis GísliKomst inn í lækn­is­fræði í fimmtu til­raun.

Eftir að hafa lokið stúd­ents­prófi við Flens­borg fór Luis í inn­töku­prófið í fyrsta sinn. Lækna­nem­inn segir það ekki hafa slegið hann út af lag­inu að kom­ast ekki inn í fyrstu til­raun, heldur hafi hann litið á ferlið sem stórt verk­efni. 

„Auðvitað var ég von­svik­inn en líka til­bú­inn til að taka prófið aftur. Ég leit á þetta sem verk­efni og skráði mig í líf­einda­fræði við HÍ í hálft ár til að und­ir­búa mig. Eftir ára­mót hætti ég í líf­einda­fræð­inni og tók þá inn­töku­prófs­nám­skeiðið.“ 

Aðeins var pláss fyrir 50 nem­endur þegar Luis tók prófið í annað skipti en þá lenti hann í 89. sæti. „Þetta var svekkj­andi og ég var aðeins meira von­svik­inn en í fyrra skiptið. En líka harð­á­kveð­inn í því að fara aftur og það kom ekk­ert annað til greina.“ 

Hálfu ári fyrir þriðju til­raun lærði Luis í margar klukku­stundir á viku fyrir prófið og lenti í kjöl­farið í sæti 64. Hann segir mun­inn á milli sæta 50 og 90 lít­inn enda bilið á milli ein­kunna orðið mjög þröngt. 

„Þarna var þetta orðið erfitt. Ég tók mér einn dag þar sem mér leið illa, samt var ég ennþá harð­á­kveð­inn í að fara aftur í prófið af því ég var svo nálægt því að kom­ast inn. Ég varð að reyna aftur,“ segir Luis en á þessum tíma­punkti fann hann fyrir efa­semdum sumra aðstand­enda sem fóru að gefa í skyn að mögu­lega ætti hann að finna sér annan far­veg. Hann ákvað á þessum tíma­punkti að ræða við náms­ráð­gjafa hjá HÍ. 

„Ég tók mér einn dag þar sem mér leið illa, samt var ég enn þá harð­á­kveð­inn í að fara aftur í prófið“
Luis Gísli Rabelo
lækna­nemi

Fannst hann hafa staðnað

„Ég sagði henni að ég hefði verið að taka inn­töku­prófið og ætl­aði að fara í fjórða sinn. Mig lang­aði að vita hvaða nám gæti und­ir­búið mig sem best. Þá sagð­ist hún hafa dílað við marga í svip­uðum sporum áður og að nú væri kom­inn tími til að taka plan B.“ Samtalið fór ekki á þann veg sem Luis hafði von­ast eftir en úrtölur náms­ráð­gjafans urðu til þess að hann varð enn ákaf­ari í að halda sínu striki. „Ef hún heldur að ég sé að fara að gef­ast upp á þessu, þá þekkir hún ekki Luis Gísla Rabelo.“  Með metn­að­inn að vopni skráði Luis sig í lyfja­fræði í hálft ár áður en hann ein­beitti sér að því að læra fyrir prófið á ný. „Fólk í kringum mig hvatti mig til að vera áfram í lyfja­fræð­inni því að þar væru góð laun, en ég var aldrei að pæla neitt sér­stak­lega í laun­unum.“ Hann tók prófið í fjórða sinn og var í sæti 55 og því 0,02 frá því í ein­kunn að kom­ast inn. Fjórða neit­unin í röð reynd­ist strembin fyrir Luis sem íhug­aði að flytja utan í lækna­nám. Hann seg­ist hafa breytt hug­ar­fari sínu og ákveðið að reyna í fimmta sinn. „Þarna voru vinir mínir byrj­aðir að kaupa sér íbúðir og búnir að vera að vinna og safna pen­ingum, komnir með BS og jafn­vel MS gráður. Mér leið eins og ég hefði staðnað þar sem ég hafði fórnað miklu og lagt allt í söl­urnar í 3-4 ár til að kom­ast inn í lækn­is­fræði á Íslandi án árang­urs. Ég hætti því að bera mig saman við aðra og hugs­aði að ég væri bara á minni eigin veg­ferð í líf­inu. Þessi reynsla hafði gert mig að betri náms­manni, byggt upp þraut­seigju og styrkt mig á marga vegu. Þarna sagði ég við sjálfan mig: ef ég kemst ekki inn í fimmta skiptið þá ætla ég inn í sjötta skiptið.“

Smitaði bróður sinn af þrautseigju 

Luis hóf und­ir­bún­ing í ágúst­mán­uði sama ár og var með­fram því í hluta­starfi. Þetta gerði honum kleift að und­ir­búa sig í næstum heilt ár fyrir prófið. Hann seg­ist hafa notað dag­bók til að skipu­leggja hvern ein­asta klukku­tíma. Allt þetta skil­aði sér. Í fimmtu til­raun lenti Luis í 15. sæti af þeim sem tóku prófið og flaug því inn í námið, eins og sagt er.  Luis, sem nú er fjórða árs lækna­nemi, seg­ist hafa fundið fyrir létti og mik­illi gleði. Í dag vinnur hann sem aðstoð­ar­læknir á hjarta- og lungna­skurð­deild og nýtur þess mjög. „Ég elska það sem ég er að gera og myndi ekki vilja gera neitt annað.“ 

Ferlið var sumsé bæði langt og strangt og um það segir Luis: „Ég myndi segja að erf­ið­ast í þessu er öll fórnin, að líða eins og maður hafi staðnað eða sé eftir á, ekki að ná draumnum, og fyrst og fremst að líða eins og maður hafi brugð­ist sínu fólki sem hafði trú á manni.“

Luis GísliVar í sjálf­boða­starfi hjá Rauða kross­inum.

Luis miðlar reynslu sinni til til­von­andi lækna­nema í dag og hafa margir þeirra þakkað honum fyrir hrein­skiln­ina og góð ráð. Yngri bróðir hans fékk einnig áhuga á nám­inu eftir að hafa fylgst með bróður sínum og er nú á fyrsta ári í lækn­is­fræði. Hann komst inn í þriðju til­raun. „Ein af ástæð­unum fyrir því að ég fór aftur var til að vera fyr­ir­mynd fyrir bróður minn, og í fram­tíð­inni ef maður eign­ast börn, að geta sagt frá þess­ari þraut­seigju, því hún smitar út frá sér,“ segir Luis að lokum. 

Veganestið vegur þungt

Fyrr á þessu ári tóku gildi nýjar reglur þar sem kveðið er á um að tann­lækna­nemar þurfi að þreyta inn­töku­próf. Það þýðir að nem­endur þurfa að stand­ast prófið og hálfri önn seinna eru lögð fyrir þá sam­keppn­is­próf (numerus clausus) enda aðeins pláss fyrir átta nem­endur hverju sinni, aðeins þau sem ná bestum árangri á þessum prófum hafa rétt til að halda áfram í nám­inu. 

„Ég held að við fæð­umst með okkar styrk­leika og veik­leika. Ein­hverjir eru lík­lega með meiri hæfi­leika til að takast á við erf­iða hluti en per­sónu­lega held ég að vega­nestið sem við komum með inn í verk­efni skipti rosa­lega miklu máli,“ segir Regína sál­fræð­ingur. Hvað varðar inn­töku­prófin telur hún fyrri reynslu hvers og eins vega þungt. Margir þættir hafi mót­andi áhrif á getu okkar til að takast á við slíkt verk­efni, til dæmis grunn­skóla­gangan, upp­lifun í mennta­skóla og stuðn­ingur frá kenn­urum og fjöl­skyldu­með­limum. 

„Þú fæð­ist kannski ekki með bestu get­una til að takast á við erf­ið­leika en færð bara rosa­lega gott vega­nesti. Svo ertu kannski með ein­hvern sem fæð­ist með góða getu en of mikið mót­læti og lít­inn stuðn­ing og það brýtur ein­stak­ling­inn niður.“

Tvær tilraunir

Drífa Guðrún Þor­valds­dóttir er 25 ára sjúkra­þjálf­ari sem starfar við Karol­inska spít­al­ann í Stokk­hólmi. Hún lauk námi á síð­asta ári við sam­nefndan skóla sem er tal­inn meðal bestu háskóla í heimi. Leiðin þangað var hins vegar ekki alltaf greið en Drífa Guðrún þreytti inn­töku­próf í tvígang.  

Frá unga aldri vissi Drífa Guðrún að hún vildi verða sjúkra­þjálf­ari. „Ég æfði fót­bolta þegar ég var yngri og var ein af þeim sem meiddu sig í hnénu. Þá þurfti ég sjálf að hitta sjúkra­þjálf­ara og það vakti áhug­ann hjá mér að vilja hjálpa öðrum ungum krökkum í íþróttum að ná betri árangri í sinni end­ur­hæf­ingu.“

Drífa GuðrúnEr starf­andi sjúkra­þjálf­ari í Svíþjóð.

Árið 2018 útskrif­að­ist Drífa Guðrún frá Mennta­skól­anum við Sund. Tveimur vikum eftir útskrift þreytti Drífa Guðrún inn­töku­prófið í fyrsta skiptið enda til­búin að hefja næsta kafla lífs­ins. Hún var búin að kynna sér upp­setn­ingu prófs­ins og tala við reynslu­meira fólk sem hafði náð próf­inu. „Ég var búin að und­ir­búa mig eins mikið og hægt var en samt fylgir því mikil óvissa að fara í prófið. Fyrst þegar maður mætir á stað­inn og sér hvað er mikið af fólki, þá koma upp mjög margar hugs­anir og alls konar til­finn­ingar.“

Tvo daga tekur að klára prófið sem fer fram einu sinni á ári og eru spurn­ing­arnar upp úr fjöl­breyttum fögum sem eiga að gefa góða mynd af almennri og sér­hæfðri kunn­áttu nem­enda. Árlega reyna hund­ruð að kom­ast inn í námið en fram­boð í hverri náms­grein er tak­mörkuð.  

„Per­sónu­lega held ég að vega­nestið sem við komum með inn í verk­efni skipti rosa­lega miklu máli“
Regína Ólafs­dóttir
sál­fræð­ingur

Nokkrum vikum síðar lágu nið­ur­stöður fyrir, Drífa Guðrún stóðst ekki prófið.  „Þetta var mjög mikil höfnun fyrir mig af því að ég var til­búin að byrja nýjan kafla í líf­inu og vissi að þetta nám gæti hentað mér vel.“ Í fram­hald­inu ákveður Drífa Guðrún að fara á atvinnu­markað í eitt ár. Hún lærði jafnt og þétt yfir árið  enda stað­ráðin í því að kom­ast inn í seinna skiptið. Hún skipu­lagði sig vel og skipti lær­dómnum upp eftir styrk­leikum og veik­leikum sínum, með­vituð um hvað hún þyrfti að bæta. 

Erfitt að bíða

Þegar Drífa Guðrún mætti í prófið ári síðar fann hún fyrir meiri pressu að kom­ast inn en nýtti reynsl­una til að gera sitt besta. Allt kom fyrir ekki og hún náði ekki próf­inu. „Ég fann aftur fyrir höfn­un­ar­til­finn­ingu. Það var smá­erfitt en ég held að þetta próf geri það að verkum að fólk leiti meira utan.“

Nokkrum vikum fyrir prófið hafði Drífa Guðrún sótt um í háskóla erlendis til þess að geta hafið skóla­göngu sína um haustið ef hún skyldi ekki ná inn­töku­próf­inu á Íslandi.  „Mig lang­aði að byrja í skóla um haustið og fannst mjög erfitt að vera búin að bíða í heilt ár þegar ég var til­búin að læra strax eftir mennta­skóla.“ Hún komst inn hjá Karol­inska Institute og flutti til Stokk­hólms um haustið.

Hún segir að strax á fyrstu önn hafi hún haft brenn­andi áhuga á nám­inu og notið þess að afla sér kunn­áttu sem hún hugð­ist nýta sér í fram­tíð­inni. „Verk­námið byrj­aði á fyrstu önn, þannig fékk ég til­finn­ingu fyrir vinn­unni sem sjúkra­þjálf­ari mjög snemma.“

ÚtskrifuðDrífa Guðrún fagn­aði útskrift sinni árið 2022.

Í dag vinnur Drífa Guðrún á Karol­inska spít­al­anum en hún segir starfið fjöl­breytt. „Ég vinn á bráða­deild þar sem við fáum ólíka sjúk­linga­hópa til okkar. Sumir eru með bein­brot, aðrir koma eftir aðgerðir eða áföll. Starfið krefst líka mik­illar félags­legrar hæfni vegna þess að ég er í sam­skiptum við fólk allan dag­inn og þarf að deila miklum upp­lýs­ingum um leið og ég mennta sjúk­ling­ana um þann skaða eða sjúk­dóm sem þau eru með.“

Drífa Guðrún segir að þau sem dreymir um að starfa innan heil­brigð­is­geirans en falli á inn­töku­próf­inu hér heima geti látið draum­inn ræt­ast ann­ars staðar. „Ef þú virki­lega vilt fara í þetta nám og finnur að þetta gæti verið eitt­hvað sem hentar þér og þínu áhuga­sviði, þá skaltu ekki láta þetta próf stoppa þig. Það eru allir að upp­lifa sömu til­finn­ingar, það er eng­inn með fullt sjálfs­traust. Þetta mun takast á end­anum, það skiptir engu máli hversu oft þú þarft að taka þetta próf ef þetta er lyk­ill­inn að þinni fram­tíð.“

„Það skiptir engu máli hversu oft þú þarf að taka þetta próf ef þetta er lyk­ill­inn að þinni fram­tíð“
Drífa Guðrún Þor­valds­dóttir
sjúkra­þjálf­ari

Regína telur lík­legt að þeir nem­endur sem hafa mikla trú á sér og eru góðir í að læra sæki frekar í prófið en aðrir. Líkt og sögur Drífu og Luis gefa í skyn er það ein­stak­lings­bundið hvernig hver og einn bregst við mót­læti. 

Hjálpleg bjargráð

Spurð hvað hún ráð­leggi fólki sem vill ná mark­miðum sínum en skortir þá seiglu sem til þarf segir Regína: „Maður þarf að efla inn­sýn­ina, þekkja sjálfan sig og nýta styrk­leik­ana til fulls á sama tíma og maður vinnur með veik­leik­ana. Það er eins mis­jafnt og við erum mörg hverjir veik­leik­arnir eru.“ Hún segir sumt fólk hafa mikla þörf fyrir að ræða það sem þeir ganga í gegnum á meðan það er nóg fyrir aðra að eiga það með sjálfum sér. Allt snú­ist þetta um að þekkja sínar þarfir. 

Regína Ólafs­dóttirSegir það gagn­legt að nota góð bjarg­ráð.

Hún segir gagn­legt að þekkja hjálp­leg bjarg­ráð sem geta aukið vellíðan. Dæmi um það sé að leita til ann­arra eftir stuðn­ingi, iðka hreyf­ingu og fá nægan svefn. Regína segir upp­lýs­ingar um and­lega heilsu einnig aðgengi­legar á net­inu, í bókum, hlað­vörpum og svo auð­vitað hjá fag­að­ilum.

Aftur leggur Regína áherslu á að hver og einn taki mið af sínum eigin þörfum. „Við erum gjörn á að vilja hafa eitt­hvað eitt sem virkar vel fyrir alla en það er ekki þannig. Þegar það virkar fyrir meiri­hlut­ann þá getur það orðið svo­lítið nið­ur­brjót­andi. Til dæmis geta tveir ein­stak­lingar sem vilja ná hug­arró farið ólíkar leiðir, annar fer út að hlaupa á meðan hinn skrifar í dag­bók.“

Til að öðl­ast betri skiln­ing sé gott að vera opinn og for­vit­inn. Þá skipti máli að vera með­vit­aður um eigin líðan og að skoða við­brögð sín við ýmsum aðstæðum. Að mati Regínu er afar mik­il­vægt að leita til ann­arra eftir stuðn­ingi og að hafa trú á sér. „Það er svo mik­il­vægt að tala við fólk, hafa stuðn­ing og dreifa hug­anum. Við mann­eskjur komum okkur oft á óvart varð­andi hvaða mót­læti við getum tek­ist á við. Oftast getum við meira en við höldum.“ 

Regína seg­ist mæla með því að koma hugs­unum frá sér, ann­að­hvort með því að skrifa þær niður eða segja öðru fólki frá. Það skipti sköpum að geta hvílt sig frá hugs­unum tengdum því verk­efni sem við stöndum frammi fyrir. 

Fjöldi ung­menna mun kljást við inn­töku­prófið á næstu árum með til­heyr­andi áskor­unum. Miðað við ráð­legg­ingar Regínu er mik­il­vægt að muna að hugsa vel um sig, hvað svo sem það þýðir fyrir hvern og einn.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár