Flóttafólk fær viðbótarstyrk frá íslenska ríkinu fyrir að fara úr landi

Fylgd­ar­laus börn á flótta geta nú fengið rúm­lega 400 þús­und krónur fyrir að yfir­gefa landið áður en frestur til heim­farar er lið­inn. Flótta­fólk getur líka fengið ferða­styrk og end­urað­lög­un­ar­styrk fyrir að fara annað auk þess sem íslenska ríkið er til­búið að greiða fyrir þau flug­mið­ann.

Flóttafólk fær viðbótarstyrk frá íslenska ríkinu fyrir að fara úr landi
Á útleið Búist er við því að Jón Gunn­ars­son verði dóms­mála­ráð­herra fram á næst­kom­andi mánu­dag. Þá taki Guðrún Haf­steins­dóttir við. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Jón Gunn­ars­son, sem mun að öllum lík­indum víkja úr emb­ætti dóms­mála­ráð­herra eftir helgi, hefur skrifað undir tvær reglu­gerðir sem snúa að flótta­fólki. Önnur  felur í sér að flótta­fólki er greitt reiðufé ef það fer sjálf­vilj­ugt úr landi eftir að hafa fengið synjun á umsókn um alþjóð­lega vernd. Hin felur í sér að umsækj­andi um vernd hér­lendis mun ekki telj­ast hafa myndað sér­stök tengsl við Ísland eftir fram­lagn­ingu umsóknar hans. Umsækj­andi mun ekki telj­ast hafa sér­stök tengsl við landið nema aðstand­andi hans sé búsettur hér í lög­mætri dvöl. Jón skrif­aði undir reglu­gerð­irnar 5. júní en til­kynn­ing um að þær hafi verið sendar til birt­ingar í Stjórn­ar­tíð­indum birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Í til­kynn­ing­unni segir enn fremur að fleiri reglu­gerðir séu í bígerð í ráðu­neyt­inu sem ætlað sé „að styrkja enn frekar fram­kvæmd stjórn­valda í mála­flokknum“. Þar sé meðal ann­ars um að ræða reglu­gerð­ar­breyt­ingar sem eigi sér stoð í þeim umdeildu breyt­ingum sem gerðar voru á útlend­inga­lög­unum í mars á þessu ári. Búist er við því að Jón muni láta af störfum sem dóms­mála­ráð­herra á rík­is­ráðs­fundi á mánu­dag og að Guðrún Haf­steins­dóttir taki við. 

Fylgdarlaus börn fá 404 þúsund fyrir að fara annað

Samkvæmt fyrri reglu­gerð­inni munu fylgd­ar­laus börn fá allt að 2.700 evrur, tæp­lega 404 þús­und krónur á núvirði, til að fara aftur til heima­ríkis síns til við­bótar við það að íslenska ríkið greiðir fyrir það flug­far­gjöld til heima- eða við­töku­ríki.

Styrk­ur­inn skipt­ist í ferða­styrk upp á 200 evrur, um 30 þús­und krónur, og svo­kall­aðan end­urað­lög­un­ar­styrk upp á 2.000 evrur, 299 þús­und krónur. Ef fylgd­ar­laust barn sækir um styrk áður en frestur til heim­farar er lið­inn þá er í boði við­bót­ar­styrkur upp á 500 evrur, um 75 þús­und krónur. 

Ferða­styrk­ur­inn er reiðufé sem við­kom­andi fylgd­ar­laust barn fær til að kaupa nauð­synjar meðan á ferða­lagi þess til heima- eða við­töku­ríkis stendur. End­urað­lög­un­ar­styrk­ur­inn og við­bót­ar­styrk­ur­inn á svo að stuðla að því að „árang­urs­ríkir end­urað­lögun við­kom­andi í heima­ríki og styðja hann að koma þar undir sig fót­unum á nýjan leik. Styrk­ur­inn er almennt greiddur út í heima­ríki og getur t.d. nýst í húsa­leigu, nám, atvinnu eða önnur verk­efni í sam­starfi við alþjóða­stofnun.“

Kjósi fylgd­ar­laust barn að ráð­stafa styrknum í annað en ofan­greind „end­urað­lög­un­ar­verk­efni“ þá getur hann fengið helm­ing styrks­ins greiddan í reiðufé. Und­an­tekn­ing­ar­til­vik eru hins vegar til­greind þar sem greiða má end­urað­lög­un­ar­styrk­inn að öllu leyti í reiðufé vegna sér­stakra aðstæðna í heima­ríki. Dæmi um slíkar sér­stakar aðstæður eru ríki þar sem óða­verð­bólga er til staðar eða þar sem sam­starfs­að­ilar íslenskra stjórn­valda eru ekki með starf­semi.

Fá aðstoðina einungis einu sinni

Heim­ildin greindi frá því þegar reglu­gerð­irnar voru birtar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. í lok apríl. Und­ir­rituð reglu­gerð um fjár­hags­að­stoð við sjálf­vilj­uga brott­för er að uppi­stöðu sú sama og birt­ist þá. Samkvæmt henni munu full­orðið flótta­fólk fá allt að 4.200 evrur, um 630 þús­und krónur, í styrk kjósi þeir að fara til heima­ríkis sjálf­vilj­ugir eftir synjun á umsókn um vernd til við­bótar við greiðslu flug­far­gjalda. Þar munar mestu um að end­urað­lög­un­ar­styrkur full­orð­inna getur orðið allt að 3.000 evrur, um 449 þús­und krónur, og full­orðið flótta­fólk frá ríkjum sem flokk­ast á ákveð­inn hátt geta fengið allt að 1.000 evrur, um 150 þús­und krónur, í við­bót­ar­styrk fari það áður en frestur til heim­farar er lið­inn. Barn sem er í fylgd full­orð­ins á líka rétt á styrk, en í besta falli upp á alls 2.100 evrur, 314 þús­und krónur, til að fara aftur til heima- eða við­töku­ríkis.

Hver og einn útlend­ingur á ein­ungis rétt á fjár­hags­að­stoð við sjálf­vilj­uga heim­för einu sinni. 

Fjárhæð end­urað­lög­un­ar­styrkja fer eftir því hvort ríki séu flokkuð sem A eða B ríki og í reglu­gerð­inni segir að Útlend­inga­stofnun eigi að halda utan um lista þar sem ríki séu flokkuð, upp­færa hann eftir því sem þörf er á og birta á vef stofn­un­ar­innar. 

Fjárhagslegur hvati til að fara

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem reglu­gerð er sett sem heim­ilar íslenskum stjórn­völdum að borga flótta­fólki fyrir að draga umsóknir sínar um vernd til baka. Sigríður Á. Andersen, sam­flokks­kona Jóns og þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, lagði, mót­aði og skrif­aði undir slíka reglu­gerð árið 2018. Hún hefur svo nokkrum sinnum verið upp­færð. Sú kall­að­ist „reglu­gerð um end­urað­lög­un­ar­styrk og ferða­styrk til umsækj­anda um alþjóð­lega vernd“. Nýja reglu­gerðin hans Jóns, sem kall­ast „reglu­gerð um fjár­hags­að­stoð við sjálf­vilj­uga heim­för“, felliir þá fyrri úr gildi. 

Stóri mun­ur­inn á reglu­gerð­unum tveimur er heim­ildin til að veita útlend­ingi við­bót­ar­styrk upp á 500 til 1.000 evrur fyrir að fara annað áður en frestur hans til heim­ferðar er lið­inn. Auk þess felur reglu­gerð Jóns í sér að allir útlend­ingar sem staddir eru á Íslandi þegar reglu­gerðin tekur gildi geti fengið við­bót­ar­styrk­inn óski þeir eftir því innan 60 daga. 

Til­gangur reglu­gerð­ar­innar er sá að skapa fjár­hags­legan hvata fyrir flótta­fólk sem dvelur ólög­lega á Íslandi að koma sér sjálft til ann­ars lands. Með því muni þeim til­vikum þar sem lög­regla þarf að hand­taka flótta­fólk og flytja það nauð­ugt um borð í leigðar flug­vélar fækka, að mati dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Í texta reglu­gerð­ar­innar segir að gert sé ráð fyrir að auk­inni sjálf­viljugri heim­för. „Í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum er þó heim­ilt að greiða end­urað­lög­un­ar­styrk að fullu í formi reiðu­fjár þegar sér­stakar aðstæður eru til staðar í heima­ríki, t.d. þegar þar ríkir óða­verð­bólga eða sam­starfs­að­ilar íslenskra stjórn­valda eru ekki með starf­semi í rík­inu.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár