Hálftími á dag kemur kerfinu í lag

Það er marg­sannað að reglu­leg hreyf­ing getur bætt heils­una og jafn­vel fækkað dauðs­föllum. Þá er hreyf­ing gríð­ar­lega mik­il­væg fyrir heil­brigða öldrun og getur dregið úr byrði lang­vinnra sjúk­dóma. Þegar fólk hefur ekki stundað dag­lega hreyf­ingu en ætlar að gera eitt­hvað í mál­unum er æski­leg­ast að byrja rólega. Göngu­ferðir í fimm til 15 mín­útur eru ákjós­an­legar þar til búið er að ná nægi­lega miklu þoli til að ganga eða hreyfa sig stöðugt á annan hátt í um 30 mín­útur á dag fimm til sjö daga vik­unnar. Regluleg hreyf­ing hefur áhrif á flest kerfi lík­am­ans svo sem hjarta- og æða­kerfið, stoð­kerfið sem og ónæm­is­kerfið. Þá mynd­ast gleði­horm­ónið end­or­fín við hreyf­ingu sem getur haft góð áhrif á and­lega líðan.

Hálftími á dag kemur kerfinu í lag
Heilsan í for­grunni Hreyfing er fyrir öllu

Góð vísa er aldrei of oft kveðin þar sem reglu­leg hreyf­ing er eitt það mik­il­væg­asta sem hver ein­stak­lingur getur gert fyrir heils­una. Að vera lík­am­lega virkur getur bætt heilsu heil­ans, hjálpað til við að stjórna lík­ams­þyngd­inni, dregið úr hættu á sjúk­dómum, styrkt bein og vöðva og bætt getu til dag­legra athafna.

„Líkaminn er þannig sam­settur þegar kemur til dæmis að hjarta- og æða­kerf­inu, lung­unum og þind­inni að við þurfum á súr­efni að halda í hvaða ástandi sem við erum. Full­orðnir sem sitja minna og stunda ein­hverja miðl­ungs til kröft­uga hreyf­ingu, til dæmis ganga reglu­lega, hjóla, synda, skíða eða dansa, öðl­ast heilsu­fars­legan ávinn­ing. Aðeins fáir lífs­stílsval­kostir hafa jafn­mikil áhrif á heils­una og hreyf­ingin,“ segir Janus Guð­laugs­son, doktor í íþrótta- og heilsu­fræðum og stofn­andi Janusar heilsu­efl­ingar, sem hefur sér­hæft sig í heilsu­efl­ingu fyrir eldri ald­urs­hópa.

Fátt betraJanus segir fáa lífs­stílsval­kosti hafa jafn góð áhrif á heils­una …
Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár