Fjögur hundruð ára og ber aldurinn vel

Gegnt Sívalaturni við Købma­gergade í Kaup­manna­höfn stendur lát­laust múr­steins­rautt hús, með boga­göngum. Þetta hús sem teygir sig milli Store Kanni­kestræde og Krystal­gade og inneftir þeim báðum má með nokkrum rétti kalla fóst­ur­garð íslenskra mennta. Regensen er 400 ára.

Fjögur hundruð ára og ber aldurinn vel

Fullu nafni heitir þessi bygg­ing sem almennt gengur undir nafn­inu Regensen Collegium Domus Regiæ – ”Det kong­elige Kolleg­ium”. Íslend­ingar sem ætíð hafa leit­ast við að íslenska dönsk nöfn kalla húsið Garð, sumir jafn­vel Gamla-Garð.

Garður var tek­inn í notkun árið 1623, í stjórn­ar­tíð Krist­jáns IV. Húsið skemmd­ist tals­vert í stór­brun­anum 1728 en var end­ur­byggt. Boga­göngin sem snúa að Købma­gergade voru gerð á árunum 1906 -1909 til að létta á auk­inni umferð um göt­una. Sumir höfðu reyndar lagt til að Sívali­turn yrði fluttur, til að breikka göt­una, kannski var sú hug­mynd sett fram meira í gamni en alvöru.

Forréttindi með konungsbréfi

Árið 1579 þegar Hafn­ar­há­skóli var 100 ára skip­aði Friðrik II, með sér­stöku kon­ungs­bréfi, svo fyrir að 20 Íslend­ingar sem hygðu á nám við Hafn­ar­há­skóla og næðu inn­töku­prófum, fengju ókeypis vist á Garði meðan þeir lykju grunn­námi. Danir gátu ekki sótt um vist á Garði fyrr en þeir hefðu lokið eins til tveggja ára námi við skól­ann. Frá upp­hafi hefur verið pláss fyrir 100 nem­endur á Garði, yfir­leitt í tveggja manna her­bergjum. Íslensku náms­menn­irnir höfðu rétt á að borða ókeypis í mötu­neyti skól­ans, sem stað­sett var við Nør­regade. Matstofa þessi nefnd­ist Klaustur, fæðið þótti nokkuð mis­jafnt og nem­endur köll­uðu mötu­neytið „kanni­balen“, mannæt­una.

Þegar Garður var tek­inn í notkun 1623 gilti enn skipun Friðriks II um for­gang Íslend­inga að ókeypis vist á Garði. 

Þegar Friðrik II gaf út áður­nefnt kon­ungs­bréf voru siða­skiptin nýlega yfir­staðin, lút­erskan tekin við af kaþ­ólsk­unni. Mikill skortur var á prestum til að boða hinn nýja sið í kirkjum á Íslandi en framan af öldum voru það fyrst og fremst prestar sem luku námi frá Hafn­ar­há­skóla.

Ekki bara synir hinna efnuðu    

Ákvörðun kon­ungs gerði mörgum efna­litlum, en efni­legum, íslenskum piltum sem sýnt höfðu mikla náms­hæfi­leika kleift að kom­ast til náms. Slíkt hefði ann­ars verið óger­legt. Rétt er að nefna að stúlkur fengu fyrst aðgang að háskól­anum árið 1875, og vist á Garði var þeim ekki heim­iluð fyrr en árið 1971. Garðs­rétt­indi Íslend­inga sem tóku gildi árið 1579, eins og áður sagði, voru afnumin árið 1918. Samtals munu að minnsta kosti 800 íslenskir náms­menn hafa búið á Garði. Flestir bjuggu þeir í álm­unni sem snýr að Købma­gergade. Margar frá­sagnir eru til af Íslend­ingum á Garði og snú­ast fæstar um bók­lestur og kristi­legt líf­erni. 

Mörg kunnugleg nöfn

Engin leið er í pistli sem þessum að geta allra þeirra Íslend­inga sem bjuggu á Garði, en í þeim hópi voru meðal ann­ars Jón Sig­urðs­son for­seti, Guð­mundur Kamban rit­höf­undur, Grímur Thomsen skáld, Jónas Hall­gríms­son skáld og nátt­úru­fræð­ingur, Grímur Thor­kelin leynd­ar­skjala­vörður, Sigfús Blöndal bóka­vörður, Hannes Hafstein ráð­herra og Finnur Magn­ús­son pró­fessor. 

Listi þjóð­þekktra Dana er vita­skuld miklu lengri en meðal þeirra má nefna Søren Gyld­en­dal, bók­sala og útgef­anda, Niels Ryberg Finsen lækni og nóbels­verð­launa­hafa, Kaj Munk prest og skáld, Jens Otto Krag for­sæt­is­ráð­herra, Simon Spies ferða­mála­frömuð, Mogens Glistrup stjórn­mála­mann, Bente Klarlund lækni og pró­fessor og Sørine Got­fred­sen prest.

Tíundi hver umsækjandi fær pláss

Margt hefur breyst síðan fyrstu háskóla­nem­arnir báru pjönkur sínar inn á Garð árið 1623. Þá voru nem­endur háskól­ans til­tölu­lega fámennur hópur en í dag eru nem­end­urnir rétt um 40 þús­und. Á sama tíma hefur fátt breyst á Garði, fyrir utan ýmis­konar tækni­leg þæg­indi, raf­magn, heitt vatn og upp­hitun o.fl þess­háttar. Íbúa­fjöld­inn er enn í kringum 100, og ein­ungis tíundi hluti þeirra, sem upp­fylla búsetu­skil­yrðin, fær inni. Þótt margir stúd­enta­garðar taki Garði fram hvað varðar þæg­indi af ýmsu tagi er Garður eigi að síður topp­ur­inn á kran­sa­kök­unni, ef svo má að orði kom­ast. Það eru ekki margar opin­berar bygg­ingar í Kaup­manna­höfn sem geta státað sig af 400 árum, með sömu notkun og í upp­hafi. 

Fast haldið í siðina

Á Garði ríkja ýmsir siðir og venjur, sem íbúar halda fast í. Einn þess­ara siða, og kannski sá sem flestir hafa heyrt um,  teng­ist lindi­tré sem stendur í bak­garð­inum. Linditré hefur staðið þarna frá árinu 1785 og Lindin eins og það er kallað er vernd­ar­vættur Garðs og ár hvert er haldið upp á afmæli trés­ins í byrjun maí. Þá er hvítur hanski settur á eina grein trés­ins og allir sem búa á Garði safn­ast saman og taka í „hönd­ina“ á trénu, bukka sig og beygja og votta með því trénu virð­ingu sína. Að þeirri athöfn lok­inni er haldin hátíð í garð­inum, kölluð lind­ar­há­tíð. Núver­andi lindi­tré var gróð­ur­sett árið 1952 og er önnur kyn­slóð, gasleki í lögnum í garð­inum varð fyrsta trénu að ald­urtila. 

Geymir merka sögu

Eins og minnst var á í upp­hafi þessa pistils lætur rauða múr­steins­bygg­ingin með boga­göng­unum við Købma­gergade ekki mikið yfir sér. Hún geymir þó merka sögu og Íslend­ingar sem beina sjónum sínum að Sívalaturni vita kannski ekki að við glugg­ana á annarri hæð, gegnt turn­inum hafa íslenskir náms­menn iðu­lega staðið og virt fyrir sér mann­lífið fyrir utan. Í hópi náms­mann­anna eru margir sem sett hafa svip sinn á sögu íslensku þjóð­ar­innar. 

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár