Nemendur í tíunda bekk í grunnskóla í Hafnarfirði héldu leiksýningu til að safna fyrir útskriftarferð sinni. Foreldrum og nemendum brá í brún þegar skólayfirvöld ætluðu að nýta stóran hluta ágóðans í að greiða kostnað við að halda leiksýninguna. Inni í kostnaðinum var leiga á tækjabúnaði og kaup á nýjum glugga- og leiktjöldum.
„Kynnt sem fjáröflun“
Ákveðið hafði verið að nemendur í 10. bekk grunnskólans myndu fara í sérstaka útskriftarferð. Í henni fólst að gista tvær nætur í skála í Þórsmörk, fara í kajaksiglingu, borða grillmáltíð og pizzaveislu. Áætlaður kostnaður var 36.500 krónur á hvern nemanda.
Til að afla fjár vegna ferðarinnar, og lágmarka þannig útlagðan kostnað nemenda, var þeim gert að sækja skylduáfanga í sviðlistum og í kjölfarið settu nemendur upp leiksýningu sem selt var inn á.
„Það er ákveðið að setja upp söngleik og þetta er kynnt sem fjáröflun skólaferðalags fyrir foreldrum og börnum,“ segir foreldri nemenda í 10. bekk í samtali við Heimildina. Bæði foreldrar og nemendur voru látin vita af því að einhver kostnaður fylgdi því að setja upp söngleikinn og að hann yrði dreginn frá söfnunarfénu.
Rétt eftir áramót byrjaði undirbúningsvinna og unglingarnir lögðu sig mikið fram við gerð sýningarinnar með hjálp kennara og foreldra. „Allt í kringum það var rosalega flott. Kennarinn sem sá um þetta gerði þetta vel, byggði krakkana vel upp og þetta var allt óskaplega gleðilegt og skemmtilegt.“
Uppselt var á sýninguna sem naut mikilla vinsælda og söfnuðust yfir milljón króna í miðasölu. Skólinn ætlaði að nota þann pening til að greiða fyrir kostnað vegna sýningarinnar, þar með talið yfirvinnulaun kennara samkvæmt foreldri sem Heimildin ræddi við. Foreldri segir það ekki hafa komið skýrt fram að borga ætti slíkt með fjáröflun nemenda.
„Krakkarnir virðast ekki vera að fá allt sem þau öfluðu“
„Svo kemur að því að gera upp fjáröflunina. Þá kemur í ljós að krakkarnir virðast ekki vera að fá allt sem þau öfluðu.“ Nemendur skólans fengu aðeins hálfa milljón króna og gátu þar með eingöngu borgað fyrir rútuferðina í Þórsmörk. Þetta fannst þeim skrítið miðað við velgengni sýningarinnar. Í kjölfarið sendi skólastjórn póst á foreldra með útlistun á því í hvað peningarnir voru notaðir.
Þá kemur í ljós að nemendur fengu andvirði þess sem var selt í sjoppu leiksýningarinnar, sem var tæplega 400 þúsund krónur þegar búið var að draga frá kostnað. Auk þess söfnuðust 125 þúsund í formi styrkja og fór sá peningur beint til nemenda. Það gera rúmlega 500 þúsund krónur sem skiptast áttu á milli 44 nemenda. Nemendur áttu því aðeins 12.500 krónur inni á mann eftir fjáröflunina og áttu að greiða 24.000 krónur úr eigin vasa fyrir útskriftarferðina.
Með þeim hundruðum þúsunda sem skólinn tók til sín voru meðal annars keyptar gardínur og leiktjöld í salinn þar sem sýningin fór fram. Skólinn hætti við að nota ágóðann til að borga kennurum yfirvinnulaun eftir spurningar foreldra. „Við stóðum öll í þeirri trú að þetta væri fjáröflun fyrir krakkana. Foreldrar voru margir hverjir búin að leggja á sig fleiri klukkutíma við að vinna við sviðsmynd og sauma búninga þannig að þau voru ekki tilbúin fyrir það að krakkarnir fengju 12.500 krónur fyrir ferðina.“
Eftir fund með ósáttum foreldrum var ákveðið að nemendur fengju hluta ágóða miðasölunnar, eða rúm 400 þúsund, og þyrftu því að greiða 10.000 krónur á mann fyrir útskriftarferðina í stað 24.000 króna. Þetta gerði það að verkum að í heildina fengu nemendur rúmlega 900 þúsund krónur af öllu því fé sem safnaðist. Þeir foreldrar sem þegar höfðu greitt hærri upphæð þurftu að láta skólann vita til að hægt yrði að fá endurgreitt.
Athugasemdir