„Mannvirkin munu því rísa og spaðarnir munu snúast“

For­svars­menn Háblæs, sem hyggst reisa á ný vind­myllur í Þykkvabæ, hafa eftir „gár­ung­unum“ að einu dauðu fugl­arnir á svæð­inu séu á grillum bíla. Ein veiði­bjalla hafi mögu­lega flogið á vind­myll­urnar að sögn bónda sem vaktaði fugla­lífið í hjá­verkum. Háblær segir heim­il­is­k­etti afkasta­meiri fugla­drápara en spaða vind­mylla. Ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar um að upp­setn­ing vind­myll­anna þurfi ekki í umhverf­is­mat hefur verið kærð.

„Mannvirkin munu því rísa og spaðarnir munu snúast“
Fjalla­hringur Tölvu­teikn­ing sem sýnir vind­myll­urnar tvær sem Háblær hyggst reisa við Þorpið í Þykkvabæ. Hekla skartar sínu feg­ursta í bak­sýn. Mynd: Úr greinargerð Háblæs

Íbúi hefur kært til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála þá ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar að bygg­ing tveggja nýrra vind­mylla um 500 metrum frá þorp­inu í Þykkvabæ þurfi ekki að fara í umhverf­is­mat. Fyr­ir­tækið Biokraft reisti tvær vind­myllur á sama stað árið 2014. Þær eyðilögð­ust báðar í elds­voða og voru teknar niður síð­asta haust.

LogandiBáðar vind­myll­urnar sem stóðu við Þykkvabæ urðu eldi að bráð.

Biokraft fór í þrot og eignir félags­ins end­uðu í fangi Eigna­bjargs, félags í eigu Arion banka. Nú er það Háblær ehf. sem hyggst reisa vind­myllur á sama grunni og á grund­velli sama skipu­lags. Það félag er í eigu Arion banka og Qair Iceland, dótt­ur­fyr­ir­tækis franska orku­fyr­ir­tæk­is­ins Qair. Qair hefur kynnt áform um að reisa stór vind­orku­ver víðs vegar um landið, m.a. í Norð­ur­ár­dal, í Með­al­landi og á Mel­rakka­sléttu. Þær hug­myndir telja hver fyrir sig jafn­vel tugi vind­mylla, mun …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár