Vöruð við að tala eins og „rasistar út í loftið“

Bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­nesbæ full­yrti á bæj­ar­stjórn­ar­fundi að í versl­unum í bænum væru neyð­ar­hnappar vegna hæl­is­leit­enda. Hann við­ur­kennir nú að þetta sé ekki rétt. Á fund­inum tal­aði bæj­ar­full­trúi Umbótar um ágang hæl­is­leit­enda. Bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar var­aði fólk við að tala eins og ras­istar. Verk­efna­stjóri hjá Rauða kross­inum segir slæmt þegar yfir­völd láti ljót orð, byggð á sögu­sögnum, falla um flótta­fólk sem sé í afar við­kvæmri stöðu.

Bæjarstjórnarfundur í Reykjanesbæ 21. mars síðastliðinn

Í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar hefur að und­an­förnu verið rætt um álagið sem fylgi auknum fjölda flótta­fólks í bænum. En þegar rætt hefur verið um þessa stöðu og hvernig sé best að bregð­ast við hafa nokkrir bæj­ar­full­trúar talað um ein­hvers konar ágang og ógn sem stafi af umsækj­endum um vernd og flótta­fólki. Fólkið virði ekki íslenskar umgengn­is­reglur, íbúar séu hræddir, ástandið sé óbæri­legt, versl­anir séu komnar með neyð­ar­hnappa vegna ágangs „hæl­is­leit­enda“ og fleira í þessum dúr.

Þarna er ekki verið að tala um álag á inn­viði vegna fjölda þeirra sem hingað hafa leitað skjóls heldur því velt upp og jafn­vel full­yrt að af þeim geti stafað hætta. Þetta er ekki stutt með gögnum og þegar Heim­ildin kann­aði sann­leiks­gildi orða nokk­urra bæj­ar­full­trúa um umsækj­endur um vernd og flótta­fólk kom í ljós að þær stand­ast fæstar skoðun. 

…
Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • skrifaði
    Fólk sem talar með rassgatinu.
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Íslensk pólitík snýst um lygar og ómerkilegheit. Fólkið í Reykjanesbæ er að sýna sig sem ,,mikið veikt fólk", en hvers vegna ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu