Hvað segja fötin um þig?

Í klæða­burði felst yfir­lýs­ing, segir félags­fræð­ingur. Fólk á ferð um mið­bæ­inn greindi frá því hvaða þýð­ingu föt gegna í þeirra dag­lega lífi. Fata­hönn­uður segir áhrif auk­innar umhverf­is­vit­undar áber­andi í heimi tísk­unnar.

Hvað segja fötin um þig?
Fólk á vappi um miðbæ Reykja­víkur Bæj­ar­búar nota föt til að tjá sig og skil­greina frá öðrum. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Fólk á þvæl­ingi um miðbæ Reykja­víkur notar föt til að tjá til­finn­ingar sínar, stað­festa stöðu sína gagn­vart öðru fólki og í sumum til­fellum til að lifa umhverf­is­vænni lífs­stíl. „Ég fer í fötin sem mér finnst lýsa því best hvernig mér líður, hvernig ég er upp­lögð þann dag,“ segir ung kona í Aust­ur­stræti einn gráan morgun í maí.

Fræða­fólk hefur lengi rann­sakað hvers vegna fólk klæðir sig á einn hátt en ekki annan og hvaða þýð­ingu það hefur. Kenning Erving Goffmans um leik­sviðið má skilja þannig að föt séu leik­munir sem við notum til að setja okkur í hlut­verkið sem okkur er ætlað að leika í félags­legum aðstæðum. Við notum föt til þess að reyna að stjórna hvaða áhrif við höfum á aðra. Útlit er það fyrsta sem fólk sér þegar það hittir fólk, og fyrir vikið það fyrsta sem fólk er dæmt út frá. 

„Stundum vakna ég og það er bleikur dagur“

Emma-Line er lista­kona. Hún segir tísku vera list­form og notar föt með­vitað til þess að tjá til­finn­ingar sínar. 

„Föt eru leið fyrir mig til að tjá það sem ger­ist innra með mér, nema þegar ég er þreytt, hlut­irnir eru í rugli og ég hef ekki tíma fyrir það. Venju­lega elska ég að geta gefið mér tíma til að tjá hvernig mér líður. Við getum skreytt okkur á per­sónu­legan hátt með fötum. Þú getur tjáð alls konar til­finn­ingar og umbreytt þér, hugsað; núna ætla ég að vera ósýni­leg eða vera mjög áber­andi. Ef þú ert með­vituð um fötin þín geta þau haft áhrif á hvernig aðrir koma fram við þig.“

Fataval Emmu-Line fer að stórum hluta eftir líðan hennar. „Stundum vakna ég og það er bleikur dagur.“ 

Emma-LineNotar föt til að tjá til­finn­ingar sínar.

Stéttaskipting undirstaða tísku

Aðspurð segir Emma-Line að föt gefi gjarnan vís­bend­ingu um hvaða stétt fólk til­heyrir í sam­fé­lag­inu, en ekki sé hægt að ganga út frá því sem vísu. Að hennar mati end­ur­spegla föt frekar gildi og per­sónu­legt líf þess sem klæð­ist þeim.

„Þú getur verið með lág laun en lagt mikið upp úr vönd­uðum dýrum flíkum og átt nokkrar slíkar. Auðvitað getur maður alltaf séð það að ein­hverju leyti. Ég þekki af eigin reynslu að fara í gegnum tíma­bil þar sem ég lifi mjög stöð­ugu lífi og það sést á því hvernig ég klæði mig.“ 

Félags­fræð­ing­ur­inn Georg Simmel setti fram kenn­ingu um hvernig fólk notar föt til að aðgreina sig frá öðrum. Það gera með­limir efri stétta sam­fé­laga í þeim til­gangi að aðgreina sig frá efna­m­inna fólki með lægri stöðu. Að mati Simmel er stétta­skipt­ing og til­urð sam­fé­lags­hópa und­ir­staða tísku. Lægri stéttir herma eftir tísku hinna ríku. Efri stéttin gerir nýjar vörur vin­sælar í þeim til­gangi að tak­marka aðgengi að því sem þykir flott­ast og við­halda þannig stöðu sinni. 

„Fólk í efri stéttum reynir oft að klæða það af sér“

Félags­fræð­ing­ur­inn Arnar Eggert Thorodd­sen segir það hafa merk­ingu hvernig þú klæðir þig: „Föt eru yfir­lýs­ing, sjálfs­mynd­arpæl­ing, skila­boð. Þau eru hluti af bæði ein­stak­lings­bundnum stíl en eru aðal­lega til­raun til að til­heyra. Við erum hóp­dýr, félags­dýr og viljum vera partur af ein­hverju. Við erum dauð­hrædd um að vera skilin útundan.“ 

Á meðan sumir reyna að til­heyra hópi með fata­vali sínu, elta aðrir tísku­bylgjur og enn einn hóp­ur­inn hefur algjör­lega sjálf­stæðan stíl. Aðspurður hver mun­ur­inn sé á þessu segir Arnar Eggert: „Það er munur á að fylgja tísku og að hafa stíl. Þú getur verið mjög kúl með þinn eigin stíl og það er vana­lega fólkið sem hrindir af stað tísku­bylgjum.“

Algengt er að efna­m­inna fólk hermi eftir fata­stíl efri stétta, til dæmis með því að kaupa sér eft­ir­lík­ingar af merkja­vörum. Arnar Eggert bendir þó á að efna­meira fólk geti einnig notað tísku til að sam­sama sig lægri stéttum. „Fólk í efri stéttum reynir oft að klæða það af sér og vill bland­ast inn með okkur.“ 

Í umfjöllun BBC um málið var vitnað í orð bún­inga­hönn­uðar fyrir sjón­varps­þætt­ina Industry sem sagði í við­tali við Vogue að því rík­ari sem ein­stak­lingur væri, því erf­ið­ara væri að sjá það. „Síðasta mann­eskjan sem þú hefðir haldið að væri millj­arða­mær­ingur, er millj­arða­mær­ing­ur­inn.“ Nýlega vakti stíll Gwyneth Paltrow í rétt­ar­sal athygli. Hún var dregin fyrir dóm vegna átaka um ábyrgð hennar á skíða­slysi, þar sem tek­ist var á í átta daga um sekt hennar þar til hún var að lokum fundin sak­laus. Á hverjum degi var hún óað­finn­an­lega til fara, í fatn­aði sem ein­kennd­ist af gæðum en var lág­stemmdur, í jarð­litum og góðum efnum. Merkin voru hvergi sýni­leg og á sam­fé­lags­miðlum upp­hófst sam­kvæm­is­leikur við að finna hvaðan fatn­að­ur­inn væri. 

Í fræð­unum er talað um að nýríkt fólk sé lík­legra til að sýna auð, meðal ann­ars með því að klæða sig upp, til að auka hróður sinn og styrkja stöðu sína í sam­fé­lag­inu. Aftur á móti sé fólk sem sé vant því að eiga pen­inga ekki eins ginn­keypt fyrir því, vegna þess að það þarf ekki að sýna þá. 

Arnar Eggert Thorodd­senArnar Eggert er félags­fræð­ingur við Háskóla Íslands.

Arnar Eggert segir suma hópa klæða sig út frá póli­tískum sjón­ar­miðum, en und­an­farin ár hafa fleiri búðir með not­uðum fötum skotið rótum í miðbæ Reykja­víkur. „Hlutir koma hraðar inn í tísku og detta hraðar úr tísku. Þá erum við komin út í kap­ít­al­ismann. Þessi stóru tísku­hús nýta sér sam­fé­lags­miðla til að koma hlut­unum út og svo kemur þetta mótsvar.“ 

Klæðir sig til að líta vel út 

Gauti er þrí­tugur flug­þjónn. Hann klæðir sig til þess að líta vel út, bæði fyrir aðra og sjálfan sig. Þegar Gauti vaknar á morgn­ana og ákveður hverju hann klæð­ist er það veðrið sem ræður för. „Ég hugsa ekki neitt, ég vel bara fötin. Ég hef aldrei pælt í því. Bara, þetta er kúl í dag. Það er nátt­úr­lega aðal­lega veður sem spilar inn í það.“  

GautiKlæðir sig eftir veðri.
„Bill Gates, hann klæðir sig bara eins og ein­hver plebbi“

Gauti telur ríkt fólk ekki klæða sig öðru­vísi en annað fólk. „Nei, mér finnst það ekki. Adam Sandler er bara í stuttum stutt­buxum og víðum bol. Bill Gates, hann klæðir sig bara eins og ein­hver plebbi.“ Aðspurður hverjir séu að kaupa merkja­vörur segir Gauti að það sé ekk­ert endi­lega ríka fólkið. „Mamma á Gucci og hún er ekk­ert eitt­hvað sér­stak­lega rík.“ Hann bætir við: „Þú getur líka bara keypt feik ef þú vilt lúkka eins og eitt­hvert Gucci-módel.“

Einkennisbúningurinn

Heim­spek­ing­ur­inn og sál­fræð­ing­ur­inn George Herbert Mead taldi fólk mynda sjálfs­mynd sína í gegnum sam­skipti við annað fólk. Með auknum þroska áttar fólk sig á því hvert hlut­verk þeirra er í hverjum aðstæðum og hvers er vænst af því.

Flestir gegna fleiri en einu hlut­verki í líf­inu og eru til dæmis for­eldrar, makar, vinir og yfir­menn. Aðrir eru ung­lingar, systk­ini og bekkj­ar­fé­lagar. Þessum hlut­verkum fylgja ólíkar vænt­ingar og þar af leið­andi mis­mun­andi ein­kenn­is­bún­ingar. Yfir­mað­ur­inn í bank­anum klæð­ist lík­lega ekki sömu fötum með vin­konum sínum og þegar hún situr í fund­ar­stólnum í vinn­unni. Staða hennar í þessum tveimur ólíku aðstæðum kalla á hvor sinn  ein­kenn­is­bún­ing­inn.

„Mamma á Gucci og hún er ekk­ert eitt­hvað sér­stak­lega rík.“

Í vinn­unni klæð­ist Gauti ein­kenn­is­bún­ing og fer þá í annað hlut­verk. „Þá er ég Gauti flug­þjónn. Ég er ekki lengur Gauti afslapp­aði.“ Hann bætir við: „Það er meira svona … í vinn­unni þá ferðu svona í spes gír.“ 

„Eins og að heimsækja dýr í dýragarði“

Elinor er 27 ára lista­kona frá borg­inni Cork á Írlandi. Það skiptir hana máli hverju hún klæð­ist. „Ég er lista­kona þannig að þegar ég er í stúd­íó­inu klæð­ist ég stórum vinnugalla til þess að vernda fötin mín. Áður fyrr vann ég á skrif­stofum þar sem ég klæddi mig öðru­vísi því að þar voru ákveðin við­mið um föt.“

Um ein­kenn­is­bún­ing sinn, vinnugall­ann, segir Elinor: „Það lætur mér líða eins og lista­konu. Stundum þegar lista­fólk opnar stúd­íóin sín fyrir almenn­ingi er það eins og að heim­sækja dýr í dýra­garði. Það kemur fyrir að ég fari í vinnugall­ann ef ég held að ein­hver eigi leið hjá stúd­íó­inu, því að ég vil að við­kom­andi sjái að ég er lista­kona,“ segir hún. 

ElinorNotar vinnugall­ann til að sýna fólki að hún er lista­kona.

„Ætli þetta sé ekki bara partur af minni tján­ingu sem ein­stak­lingur. Föt hafa meira en bara nota­gildi. Þau eru eins og allt annað sem þú notar til að tjá þig, tón­listin sem þú hlustar á eða kvik­mynd­irnar sem þú horfir á. Þetta snýst alltaf um að finna út úr því hver þú ert og að koma því áleiðis til ann­ars fólks.“ 

Aðlaðandi foreldrar í Reykjavík

Í heim­sókn sinni á Íslandi hefur Elinor tekið eftir því hve glæsi­legir ungir for­eldrar eru til fara. „Ég hef tekið eftir nokkrum mjög vel klæddum og aðlað­andi for­eldrum úti að ganga með barna­vagna. Þau eru óað­finn­an­leg, sem er frekar fyndið því að ef ég eign­ast sjálf börn þá mun ég ekki líta svona út.“ 

„Þau eru óað­finn­an­leg sem er frekar fyndið því að ef ég eign­ast sjálf börn þá mun ég ekki líta svona út.“

Annars seg­ist hún sjá sömu áherslur hér og ann­ars staðar: „Reykja­vík er eins og hver önnur evr­ópsk höf­uð­borg. Þú sérð það sem er í tísku ann­ars staðar í Evrópu. Fólk er mjög hrein­legt til fara og kannski er skand­in­av­íska tískan svo­lítið hér. Cork er sömu stærðar og Reykja­vík, en fólk klæðir sig meira eins og á Englandi, þar sem fólk er aðeins skrítn­ara.“

„Ekkert rosalega mikið taumhald“ 

Vitund fólks um tísku er mis­mikil. Sumir leggja mikið upp úr því að senda öðrum skila­boð með fata­vali sínu á meðan aðrir gefa því lít­inn gaum. 

Einar er að verða 17 ára gam­all og pælir ekki í því hvaða skila­boð föt hans senda til ann­ars fólks. Honum finnst flestir leita í sömu föt þessa dag­ana. „Ég held að normið í dag sé meira þannig að fólk sé að leita eftir sama stílnum.“ 

Þegar Heim­ildin náði tali af Einari var hann stað­settur fyrir utan tísku­búð í Reykja­vík sem selur notuð föt. „Ég held að fólk sé líka mikið að hugsa um hvað sé umhverf­is­vænt og hvað sé ekki umhverf­is­vænt. Það eru einmitt að koma svona búðir þar sem þú ert að nota efni aftur.“ 

Hann reynir sjálfur að versla umhverf­is­vænar vörur. Aðspurður hvers vegna, segir Einar: „Af því að það tekur svo mikla orku og mikið vatn að búa til nýtt tau eða efni.“ 

EinarTelur sig ekki brjóta neinar sam­fé­lags­legar reglur með fata­vali sínu.
„Mér finnst eins og það sé ekk­ert rosa­lega mikið taum­hald ef maður brýtur reglur.“

Samkvæmt Einari eru reglur um hvernig megi klæða sig í sam­fé­lag­inu en litlar afleið­ingar sé þeim ekki fylgt. „Mér finnst eins og það sé ekk­ert rosa­lega mikið taum­hald ef maður brýtur reglur. Ég held að fólki sé meira og minna sama eftir að þú ert búinn að brjóta þær.“ Sjálfur var hann ekki brjóta neinar sam­fé­lags­legar reglur með þeim fötum sem hann klædd­ist á mynd­inni, segir hann.

„Hafa efnin eins og það sé búið að nota þau“

Sigríður Ágústa Finn­boga­dóttir fata­hönn­uður segir að aukin umhverf­is­vit­und sé byrjuð að hafa áhrif á tísku­heim­inn. „Hönnuðir kepp­ast við að finna leiðir til að gera hlut­ina betur. Það vilja allir gera það en í sumum til­fellum kostar það mjög mikið.“ Sigríður bendir á að metra­verðið á end­urunnu pólý­ester kosti tölu­vert meira en nýtt pólý­ester. 

„Það er engin ein lausn á vand­anum. Það hafa verið ótrú­lega miklar fram­farir síð­ustu fimm ár, bæði nýj­ungar í efnum og vinnslu. Maður sér að það er eitt­hvað að ger­ast en það er svo mikið eftir.“

Sigríður segir tón­list­ar­há­tíðir eins og Coachella setja tón­inn fyrir sum­arið. Í ár mátti sjá áhrif end­ur­vinnslu og end­ur­nýt­ingar í tísk­unni. Mikið var um hekl­aðar og hand­gerðar flíkur en líka notuð galla­efni. „Hönnuðir eru alveg að passa upp á að hafa áferð­ina og efn­is­gerð­ina þannig að fötin líti út fyrir að vera notuð,“ segir Sigríður.

Sigríður er fata­hönn­uðurHún segir umhverf­is­vit­und hafa áhrif á tísku­heim­inn.

Sigríður hefur hannað föt fyrir söng­kon­una Bríeti. Fata­hönn­uð­ur­inn segir val á sviðs­fötum skipta tón­list­ar­fólk miklu máli. „Á tón­list­ar­há­tíð hefur þú kannski bara 40 mín­útur til að heilla og það fyrsta sem áhorf­endur sjá er hvernig þú lítur út. Við sjáum tón­list­ar­mann­inn og hljóm­sveit­ina áður en við heyrum þau spila.“ 

Þá segir hún í tísku að hafa eigin fata­stíl. „Það er eins og fólk sé að leggja aukna áherslu á að vera með sinn eigin stíl og fylgja honum.“ 

„Stór hluti af því að kynnast nýju fólki“ 

Þar sem við­horf okkar í garð ann­ars fólks mót­ast tölu­vert af okkar fyrstu kynnum við mann­eskj­una gegna föt lyk­il­hlut­verki. Fataval getur því skipt sköpum þegar kemur að atvinnu­við­tölum, stefnu­mótum og öðrum til­finn­inga­þrungnum við­burðum. Margir muna eflaust eftir þátta­röð­inni Ugly Betty en þar er einmitt tek­ist á um hve stórt hlut­verk tísku­vit á að spila í vel­gengni ungrar konu á vinnu­mark­aði.

Andrea er 17 ára og á leið í Tækni­skól­ann í haust að læra fata­tækni. Hún segir það skipta sig mjög miklu máli hvaða fötum hún klæð­ist, því að þannig sjái annað fólk hver hún er. „Mér finnst það vera stór hluti af því að kynn­ast nýju fólki og svo­leiðis. Að fólk sjái að maður er í góðum fötum,“ útskýrir hún. „Ég bara fer í fötin sem mér finnst lýsa því best hvernig mér líður, hvernig ég er þann dag.“ 

Andrea segir reglur vera til um hvernig við megum klæða okkur. „Já, alveg hund­rað pró­sent. Ef fólk myndi klæð­ast sumum hlutum þá væru alltaf allir að hugsa hvernig mann­eskjan lítur út.“ 

AndreaEr á leið í fata­tækni og segir föt skipta sig máli.

„Gæti ekki sagt hvort þú værir góð eða slæm manneskja“

Blaða­kona spurði veg­far­endur hvort föt hennar gæfu vís­bend­ingar um per­sónu­leika hennar.

Blaða­konaÞað sem við­mæl­endur grein­ar­innar sáu.

Emma-Line sagði: „Ég myndi halda að það skipti þig miklu máli hvernig þú lítur út í föt­unum þínum og hvaða mynstri og efni þú klæð­ist. Mín ágiskun er að þú eigir ekki mjög erfitt fjár­hags­lega. Þú ert lík­lega örugg innan þinnar fjöl­skyldu og sam­fé­lags­ins þó ég geti ekki verið full­viss um það. Og hefur nægi­lega mikið fjár­hags­legt frelsi til að velja hverju þú klæð­ist.“ 

Hvorki Gauti né Einar segj­ast geta giskað á per­sónu­ein­kenni út frá föt­unum. Gauti segir þó að það sjá­ist á fata­val­inu að kalt sé úti. Elinor segir: „Mjög tísku­legt, mér líkar vel við feld­inn. Þú hugs­aðir þig aug­ljós­lega um í morgun hverju þú ætl­aðir að klæð­ast. En ég er ekki viss. Ég gæti ekki sagt hvort þú værir góð eða slæm mann­eskja.“

Með klæðn­aði mínum þennan dag vildi ég senda öðru fólki skila­boð um að ég væri ein­hver sem taka ætti alvar­lega, að ég væri í raun og veru blaða­kona. Fötin voru vernd­ar­skjöldur minn fyrir grein­andi augna­ráði ann­ars fólks og mínu eigin óör­yggi. Þau stað­festu fyrir sjálfri mér að ég væri hæf til að sinna mínu hlut­verki.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár