Félag Helga keypti vörumerki og heimasíður miðla Torgs á 480 milljónir

Helgi Magn­ús­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Torgs, segir að eignir sem tengj­ast Frétta­blað­inu hafi ekki verið inni í Torgi þegar félagið var gefið upp til gjald­þrota­skipta. Hann segir að félagið Hof­garðar ehf. sem hann á hafi keypt vöru­merki og heima­síður Frétta­blaðs­ins, DV og Hring­brautar á 480 millj­ónir fyrir tveimur árum.

Félag Helga keypti vörumerki og heimasíður miðla Torgs á 480 milljónir
Stað­festir sölu eigna sem tengj­ast Frétta­blað­inu Helgi Magn­ús­son, fyrr­ver­andi eig­andi útgáfu­fé­lags­ins Torgs, stað­festir að eignir sem tengj­ast Frétta­blað­inu hafi verið seldar út úr félag­inu. Hann seg­ist hafa keypt vöru­merkið og heima­síð­una í gegnum eign­ar­halds­fé­lag árið 2021. Mynd: Torg

Helgi Magn­ús­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi eig­andi útgáfu­fé­lags­ins Torgs sem meðal ann­ars gaf út Frétta­blaðið, stað­festir að eignir sem tengj­ast Frétta­blað­inu hafi verið seldar út úr fyr­ir­tæk­inu og séu ekki inni í þrota­búi þess. Helgi var meðal ann­ars spurður út í vöru­merkið Frétta­blaðið og eins og heima­síð­una fretta­bla­did.is. Helgi segir að þessar eignir hafi verið seldar út úr Torgi til félags hans, Hofgarða ehf., á 480 millj­ónir króna fyrir tveimur árum. „Þetta er ekki inni í þrota­bú­inu. Það var búið að selja þetta fyrir lif­andis löngu.“ 

Hann segir að við­skiptin hafi verið liður í því að styrkja lausa­fjár­stöðu Torgs. „Fyrir nákvæm­lega tveimur árum, í mars 2021, seldi Torg yfir til míns fyr­ir­tækis, Hofgarða, við­skipta­vild sem fólst í öllum bröndum, nöfnum, rétt­indum og öllu slíku á þessum miðlum, á 480 millj­ónir. …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár