1113. spurningaþraut: Eins og sést eins og sést

1113. spurningaþraut: Eins og sést eins og sést

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   „Eins og sést, eins og sést, eins og sést þá er ég alinn upp ...“ hvar?

2.  Við hvaða götu stendur hús það er hýsir aðal­stöðvar RÚV í Reyjavík?

3.  Chris Hipkins heitir 44 ára karl­maður sem er nýtek­inn við sem for­sæt­is­ráð­herra í til­teknu ríki. Hvaða ríki er það?

4.  Ganý­medes var fagur piltur sem grískur guð rændi og tók með sér upp til fjalla. Þar var Ganý­medes síðan hafður í að hella höf­ugu víni í drykkj­ar­bikar guðs­ins og gesta hans. Hvað hét þessi gríski guð? 

5.  En heitið Ganý­medes er líka notað um ákveð­inn afar stóran hlut. Hvaða hlut?

6.  Hvað hefur stjórn­ar­farið á Íslandi 1904-1918 verið kallað?

7.  Kristín Svava Tóm­as­dóttir sagn­fræð­ingur sendi frá sér bók­ina Farsótt fyrir síð­ustu jól og mælt­ist hún afar vel fyrir. Þrátt fyrir nafnið fjallar bókin ekki um plágur eða far­aldra, heldur ... hvað?

8.  Hvaða skák­meist­ari var lengi skrif­stofu­stjóri Alþingis?

9.  Um aldir var skyr­bjúgur skeinu­hættur sjó­mönnum í löngum sigl­ingum. Að lokum fannst efni sem vinnur á skyr­bjúg í eitt skipti fyrir öll. Hvað köllum við það efni nú?

10.  Tvö fyr­ir­tæki í heimi hér bera höfuð og herðar yfir önnur í fram­leiðslu á til­tek­inni vöru. Þau eru samt ekki alveg ein­ráð og um mið­bikið á lista yfir 10 stærstu fyr­ir­tækin í þessum bransa eru fyr­ir­tæki eins og Oppo, Vivo, ZTE og Xiaomi. Hver er þessi vara sem fyr­ir­tækin fram­leiða?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða dýr er á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Í Gaggó-vest.

2.  Efsta­leiti.

3.  Nýja Sjálandi.

4.  Seifur. Það er tví­vegis tekið fram að spurt sé um grískan guð, svo annað dugar ekki hér.

5.  Eitt af tunglum Júpíters.

6.  Heima­stjórn.

7.  Hús.

8.  Friðrik Ólafsson.

9.  C vítamín.

10.  Farsímar. Stóru fyr­ir­tækin tvö eru vita­skuld Apple og Samsung.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Egill Helgason. Myndin er frá 2005 og var hluti af aug­lýs­inga­her­ferð VR gegn kyn­bundnum launa­mun. Fyr­ir­sögnin var Láttu ekki útlitið blekkja þig.

Á neðri mynd­inni er rauð­panda.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár