Viðnám – gegn verkfærahyggju

List­fræð­ing­ur­inn Margrét Elísabet Ólafs­dóttir rýnir í sýn­ing­una Viðnám á Lista­safni Íslands en það er þver­fag­leg sýn­ing fyrir börn og full­orðna sem á að brúa bilið milli mynd­listar og vís­inda.

Viðnám – gegn verkfærahyggju
Myndlist

Viðnám Lista­safn Íslands

Gefðu umsögn

Lista­söfn í opin­berri eigu hafa um langt skeið gegnt mennt­unar- og upp­fræðslu­hlut­verki. Í áranna rás hafa hug­myndir um hvernig söfnin eiga að sinna þessu fræðslu­hlut­verki breyst og mót­ast í takt við tíð­ar­and­ann. Í flestum ríkjum Evrópu leggja opin­ber lista­söfn áherslu á að miðla lista­sögu síns lands eða hér­aðs með upp­setn­ingu sýn­inga sem standa í lengri eða skemmri tíma. Í höf­uð­borgum álf­unnar má ganga að því vísu að á þjóð­lista­safn­inu sé að finna sýn­ingu á verkum úr safn­kost­inum þar sem hægt er rekja sig í gegnum lista­sögu við­kom­andi lands, sjón­rænt og með aðstoð fræðslu­efnis. Slíkum lang­tíma­sýn­ingum hefur aldrei verið fyrir að fara í Lista­safni Íslands, sem er sam­kvæmt lögum höf­uð­safn mynd­listar á Íslandi og ætlað að vera leið­andi á sínu sviði í land­inu. Safnið hefur lengi búið við þröngan húsa­kost, og enn þrengri fjár­hag og þurft að mæta kröfum um upp­setn­ingu tíma­bund­inna sýn­inga. Hér hefur því ekki mynd­ast hefð fyrir því að hægt sé að ganga að var­an­legri list­sögu­legri sýn­ingu í safn­inu. Í stað­inn hefur það farið eftir sýn safn­stjóra safns­ins hverju sinni hvernig safn­kost­ur­inn er nýttur til að setja upp tíma­bundnar sýn­ingar.

Sýningar handa börnum

Í tíð Hörpu Þórs­dóttur, sem lét af störfum sem safn­stjóri haustið 2022, var lögð mikil áhersla á að setja upp sýn­ingar á saf­n­eign­inni sem höfða til barna,. Það er óhætt að full­yrða að það hafi verið nýlunda þótt safnið hafi sinnt fræðslu fyrir börn og full­orðna um ára­bil. Nýmælið fólst í því að gera sýn­ing­arnar þannig úr garði að þær höfð­uðu sér­stak­lega til yngstu safn­gest­anna – og um leið síður til hinna eldri. Í upp­hafi árs var ein slík sýn­ing opnuð í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu. Sýningin ber tit­il­inn Viðnám og er fyr­ir­hugað að hún standi uppi til árs­ins 2028. Það væri full ástæða til að fagna því að fá loks­ins upp lang­tíma­sýn­ingu á saf­n­eign Lista­safns Íslands ef um væri að ræða sýn­ingu af því tagi sem er lýst hér að ofan. Sýningu sem segir sögu íslenskrar mynd­listar og getur höfðað til barna, ung­linga, full­orð­inna og erlendra gesta. Slík sýn­ing byði upp á ein­stakt tæki­færi til að taka á móti skóla­hópum og veita nem­endum inn­sýn í sögu íslenskrar mynd­listar, sem sár­lega vantar að sé kennd í skólum. Aðgangur að lyk­il­verkum í tengslum við slíka kennslu verður seint van­met­inn. Því miður er sýn­ingin Viðnám ekki sett upp í þeim til­gangi að miðla íslenskri lista­sögu.

Sýningin Viðnám er af öðru tagi og í stuttu máli má halda því fram að útgangs­punktur hennar sé mynd­list óvið­kom­andi. Mark­miðið er ekki að segja sögu íslenskrar mynd­listar eða nálg­ast verkin á for­sendum mynd­listar. Í stað­inn er farin sú leið að byggja laus­lega á aðal­námskrá grunn­skóla og nota heims­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna sem útgangs­punkt fyrir sýn­ingu sem er kynnt sem þver­fag­leg. Í texta á heima­síðu safns­ins er merk­ing orðs­ins við­nám tíundað og hug­takið skil­greint með vísun í mót­stöðu „sem heims­búar verða að beita gegn hlýnun jarðar í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum“.  Mark­miðið er að fjalla um  „for­sendur fyrir góðu lífi“ og börnum sagt að til þess að geta lifað góðu lífi þurfi að „hlúa að fjöl­mörgum þáttum og ekki síður samp­ili þeirra. Að lifa líf­inu á þann hátt að maður við­haldi góðu lífi án þess að skerða lífs­gæði ann­arra er lyk­ill­inn að sjálf­bærni“. Allt fræðslu­efni í texta­formi er í þessum dúr. Einu sinni voru börn send í sunnu­daga­skóla til að læra kristin gildi, nú á að senda þau á Lista­safn Íslands til að fræða þau um gott líf og gildi sjálf­bærni.

Pólitísk innræting

Ef ætl­unin er að lýsa sýn­ing­unni í stuttu máli er nær­tæk­ast að segja að hún lúti lög­málum verk­færa­hyggju en hún felur í sér að (mis)nota verk lista­manna í þeim til­gangi að koma póli­tískum eða sið­ferði­legum boð­skap á fram­færi.  Í þessu til­felli byggir boð­skap­ur­inn á sjón­ar­horni sýn­ing­ar­stjór­ans Ást­hildar Jóns­dóttur sem var ráðin sér­stak­lega til þessa verk­efnis. Verkin á sýn­ing­unni eru valin úr saf­n­eign þjóð­lista­safns­ins í þeim til­gangi að „mynd­skreyta“ sýn Ást­hildar á til­tekin mál­efni.  Ást­hildur hefur getið sér gott orð sem list­greina­kenn­ari, sem hefur leitt þver­fag­leg verk­efni í grunn­skólum Reykja­vík­ur­borgar og í sam­starfs­verk­efnum með Mennta­vís­inda­sviði Háskóla Íslands. Hún hefur staðið fyrir fjölda vinnu­stofa með nem­endum og kenn­urum sem hlotið hafa verð­skuld­aða athygli. Sýningin Viðnám birtir hins vegar aðra hlið og er engu lík­ara en list­greina­kenn­ar­inn hafi misst sjónar á kjarna list­mennt­unar sem miðar að því að kenna börnum listir og lista­sögu.  

Það væri að æra óstöðugan að rekja sig í gegnum sýn­ing­una í heild og telja upp mis­vit­urt sam­hengi sem ein­stök verk eru sett í. Í sumum til­fellum tekst upp­setn­ingin verk­anna ágæt­lega, ef horft er fram­hjá þema sýn­ing­ar­innar og hús­inu sem hentar illa fyrir mynd­list­ar­sýn­ingar. En sé sam­hengið skoðað býður það upp á mistúlk­anir á inn­taki verka og stundum eru sýn­ing­ar­gestir bók­staf­lega leiddir á villu­götur og í átt að því sem mætti kalla list­sögu­legar rang­færslur. Þá tengj­ast text­arnir sem fylgja sýn­ing­unni ekki verk­unum heldur þemunum, lofti, láði, legi, lög­máli og leik. Engin til­raun er gerð til að fjalla um þessi þemu á list­sögu­legum for­sendum, sem sætir furðu í sjálfu þjóð­lista­safn­inu. Ef horft er á sýn­ing­una í heild þá er verk­unum ætlað að þjóna þem­anu en ekki þemað verk­unum. Þemað verður ekki til út frá verk­unum heldur eru verkin sett inn í þemað. Fræðslu­efnið fjallar því ekki um mynd­list­ina eða ein­stök verk heldur raun­veru­legt við­fangs­efni sýn­ing­ar­innar, sem eru lofts­lags­mál og til­búin tengsl lista og vís­inda.

Róðravél og vaggandi bárur

Í tengslum við þemu sýn­ing­ar­innar hafa verið settar upp skap­andi smiðjur fyrir börn en slíkar smiðjur er að finna á flestum lista­söfnum í dag. Þetta er þó í fyrsta sinn sem ég sé smiðj­urnar settar upp í sjálfum sýn­ing­ar­salnum, nán­ast við hlið verk­anna. Það sama gildir um gagn­virkt fræðslu­efni um jökla. Ég get alveg séð fyrir mér að börnum geti þótt gaman að skoða efnið, en það er merki­legt hvað þeim er van­treyst til að upp­lifa verkin.

Dæmi um það er vídéo­mynd af bárum sem er varpað á veggi í her­bergi þar sem er að finna mál­verk eftir Finn Jónsson og Gunnlaug Scheving. Þessum vagg­andi bárum er ætlað að gefa til­finn­ingu fyrir því hvernig það er að stíga öld­una á róðra­báti og fiski­skipi – og vissu­lega má segja að ef horft er nógu lengi sé hægt að finna til sjó­veiki. Ef það er mark­miðið tekst ætl­un­ar­verkið. Í sama rými hefur verið sett upp báts­líki með róðra­vél eins og er að finna í flestum lík­ams­rækt­ar­stöðvum. Róðra­vélin á að hjálpa börnum að ímynda sér hvernig það er að róa á róðra­bát – en allir sem prófað hafa hvoru tveggja vita að ekki er um sam­bæri­lega upp­lifun að ræða. Ekki frekar en að það er hægt að líkja því saman að hlaupa á hlaupa­bretti eða úti undir beru lofti. Hvað þetta hefur með mynd­list að gera er mér hulið.

Gagnrýnið viðnám

Lista­safn Íslands hefur ákveðnum skyldum að gegna þegar kemur að því að miðla þeim hluta menn­ing­ar­arfs­ins sem til­heyrir mynd­list. Það er ábyrgð­ar­hlut­verk að sinna þeirri miðlun á þann hátt að safn­gestir, ungir sem gamlir, verði ein­hvers vís­ari um sögu íslenskrar mynd­listar. Mynd­listin á sér sína eigin sögu sem vissu­lega er hægt að tengja við ýmis póli­tísk og menn­ing­arpóli­tísk mál með beinum og óbeinum hætti. Lofts­lags­málin eru eitt þeirra við­fangs­efna sem lista­menn hafa feng­ist við, og þeir hafa einnig fjallað um vís­indi, nátt­úru, og sam­fé­lagið frá ýmsum hliðum.

En sýn­ingin Viðnám er af öðrum toga. Hún býður mögu­lega upp á ákveðna afþr­ey­ingu og kynni af ein­stökum verkum, en ég ætla hins vegar að eigna mér orðið við­nám og yfir­færa það á hlut­verk gagn­rýn­and­ans sem er ekki til­bú­inn til að láta bjóða sér hvað sem er í nafni „góðs mál­staðar“. Þessi sýn­ing er glatað tæki­færi, ekki vegna þess að ekki megi setja upp sýn­ingar ætl­aðar börnum, fjalla um sjálf­bærni á mynd­list­ar­sýn­ingum eða bjóða upp á afþr­ey­ingu í Lista­safni Íslands, heldur vegna mis­notk­unar sýn­ing­ar­stjór­ans á verk­unum og vegna þess virð­ing­ar­leysis sem saf­n­eign­inni, lista­verk­unum, lista­mönn­unum og sýn­ing­ar­gest­unum er sýnd.


Sýning: Viðnám 
Sýn­ing­ar­staður: Lista­safn Íslands – Safna­húsið við Hverf­is­götu 
Sýn­ing­ar­stjóri: Ást­hildur Jóns­dóttir 
Sýn­ing­ar­tíma­bil: 3.febr­úar 2023 - 26. mars 2028
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár