Skjágláp ungbarna raskar heilastarfseminni

Ný rann­sókn sér­fræð­inga í Singapúr sýnir að skjá­gláp ung­barna hefur umtals­verð nei­kvæð áhrif á heila­starf­sem­ina, einkum ein­beit­ing­ar­hæfi­leika og minni. Margir hafa lengi haft grun um að óhóf­legt skjá­gláp hafi skað­leg áhrif á þroska barna og ung­menna.

Skjágláp ungbarna raskar heilastarfseminni
Nýr veru­leiki Börn standa frammi fyrir miklu fleiri val­kostum í skjá­notkun í dag en nokkru sinni áður í sögu mann­kyns. Mynd: Pixabay

Hvað er til ráða ef barnið er óró­legt á meðan mamma og pabbi sitja yfir kaffi­boll­anum á veit­inga­húsi, eða er vaknað fyrir allar aldir um helgar þegar for­eldr­arnir vilja sofa lengur? Lausnin er iðu­lega að rétta barn­inu spjald­tölvu með ein­hverju skrípó eða kveikja á sjón­varp­inu og finna rás þar sem sýndar eru teikni­myndir eða annað efni ætlað börnum. Og, það er eins og við mann­inn mælt, barnið situr hið róleg­asta og gleymir sér algjör­lega við að fylgj­ast með því sem fram fer á skjánum. Þetta þekkja allir.

Vegna þess hve vel barnið unir sér við að fylgj­ast með skjánum hafa þeir full­orðnu til­hneig­ingu til að fylgj­ast lítt með hvað tím­anum líður og þykir kannski bara gott að „barnapían“ hafi ofan af fyrir barn­inu.

Fyrst var það sjónvarpið síðan tölvur og tölvuleikir

Það er kunn­ara en frá þurfi að segja að til­koma sjón­varps­ins olli miklum breyt­ingum. Skyndi­lega voru alls kyns við­burðir, ekki síst fréttir, komnir heim í stofu í þessu undra­tæki. Íslend­ingar kynnt­ust undra­tæk­inu til­tölu­lega seint miðað við margar aðrar þjóðir en voru fljótir að til­einka sér notkun þess. Þjóðin fylgd­ist spennt með fyrstu sjón­varps­út­send­ing­unni 30. sept­em­ber 1966. Þarna birt­ust þeir ljós­lif­andi á skjánum Vil­hjálmur Þ. Gíslason útvarps­stjóri, Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra, Halldór Laxness rit­höf­undur og Savanna-tríóið. Að ógleymdum Dýr­lingnum og svo auð­vitað Ásu Finns­dóttur, fyrstu sjón­varps­þul­unni.

Sauða­lit­irnirHalldór Laxness var á meðal þeirra sem birt­ust á sjón­varps­skjánum á sjö­unda ára­tugnum.

Allt var þetta í „sauða­lit­unum“ það var ekki fyrr en löngu síðar að farið var að senda út í lit. Sjón­varps­tæki voru ekki til á öllum íslenskum heim­ilum og þar að auki náð­ust útsend­ingar sjón­varps­ins ekki um allt land fyrr en all­mörgum árum síðar. Fyrst í stað var ein­ungis sent út tvisvar í viku og eru margar sögur til af gesta­nauð hjá eig­endum sjón­varps­tækja þá daga sem sjón­varpað var. Fljót­lega var farið að senda út sex daga vik­unnar og sjón­varps­lausir fimmtu­dagar urðu skyndi­lega vin­sælir til funda­halda og ýmissa skemmt­ana. Íslenska sjón­varps­sagan verður ekki rakin frekar hér en eins og aðrar þjóðir tóku Íslend­ingar sjón­varp­inu fagn­andi og orðið sjón­varps­fík­ill skaut upp koll­inum. Ýmsum þótti lítið til koma og köll­uðu sjón­varps­tækið gjarna imbak­assa eða heim­il­is­alt­ari, jafn­vel heim­il­is­frið­ar­spilli. Það breytti engu og sjón­varps­gláp varð stað­reynd. 

Tölvur og tölvuleikir

Sjón­varps­tækin voru ekki einu skjá­irnir sem til urðu á síð­ustu öld. Tölv­urnar komu fram á sjón­ar­sviðið og það gerðu líka ýmis konar leikja­tölvu­spil, ein­föld og frum­stæð í fyrstu en þró­uð­ust hratt.

Tölvu­leikj­unum var í upp­hafi einkum ætlað að höfða til ung­menna en margir full­orðnir hrifust einnig af þess­ari nýj­ung. Sumir um of og til varð fyr­ir­bærið tölvu­fíkn, orðið skýrir sig sjálft. 

Börnin og skjáirnir

Fyrir all­mörgum árum fóru að birt­ast í íslenskum og erlendum fjöl­miðlum, blöðum, útvarpi og sjón­varpi greinar og við­töl þar sem fjallað var um sjón­varps­gláp og tölvu­leikja­spil barna og ung­linga. Meðal þeirra fjöl­mörgu sem lögðu orð í belg voru upp­eldis-, hjúkr­unar- og sál­fræð­ingar. Umfjöll­unin beind­ist ætíð að því sama: hvort og hvaða áhrif sífellt lengri tími, sem börn og ung­lingar verðu fyrir framan skjá­inn, hefði. Flestir sem létu til sín heyra voru á einu máli um að rétt væri að tak­marka sjón­varps­á­horf barna og sömu­leiðis væri nauð­syn­legt að hafa eft­ir­lit með hvaða efni börnin horfðu á.

Í sænsku tíma­riti um heil­brigð­is­mál frá árinu 2004 þar sem fjallað var um áhrif sjón­varps­gláps á börn komu fram sterk tengsl áhorfs eins árs barna og þriggja ára barna og ein­beit­ing­ar­skorts við sjö ára aldur. Margar sam­bæri­legar rann­sóknir hafa leitt til sömu nið­ur­stöðu. Á síð­ustu árum hefur sjón­varps­efni sem sér­stak­lega er beint að ungum börnum auk­ist mjög og það hefur orðið til þess að börn verja æ meiri tíma fyrir framan skjá­inn og við leikja­tölv­una.

Banda­rískar rann­sóknir hafa sýnt að þar horfa þriggja ára börn á sjón­varp tvo tíma eða meira á degi hverjum. Í könnun meðal eitt þús­und banda­rískra for­eldra kom fram að ein helsta ástæða þess að ungum börnum er leyft að horfa svo mikið á sjón­varp er sú trú að það sé þrosk­andi. Rann­sóknir benda hins­vegar á annað og sam­tök banda­rískra barna­lækna hafa hvatt til þess að börn undir tveggja ára aldri eigi ekki að horfa á sjón­varp, heili þeirra sé ein­fald­lega ekki undir það búinn. Heili barns­ins verði fyrir nær stöð­ugu áreiti sem hann hefur ekki þroska til að vinna úr.

Rannsóknin í Singapúr 

Fyrir skömmu greindi danska dag­blaðið Berl­ingske frá rann­sókn sér­fræð­inga í Singapúr. Rann­sóknin tók til 437 barna, 12 og 18 mán­aða gam­alla og síðan aftur þegar börnin höfðu náð 9 ára aldri. Fram kom að unga­börnin eyddu að jafn­aði tveimur klukku­stundum dag­lega fyrir framan skjá­inn. Nið­ur­staða sér­fræð­ing­anna var í stuttu máli að sjón­varps­glápið hefði haft umtals­verð áhrif á börnin. Minnið, ein­beit­ing­una og hæfi­leika til aðlög­unar, sem sagt það sem sér­fræð­ing­arnir köll­uðu vits­muna­lega hæfi­leika. Þeir greindu frá því að fylgj­ast þyrfti með þessum hópi næstu árin, eða ára­tugi, til að meta lang­tíma­á­hrifin. Slík rann­sókn hefur ekki áður verið gerð.

Albert Gjedde, pró­fessor við Hafn­ar­há­skóla, sagði nið­ur­stöðu sér­fræð­ing­anna í Singapúr mjög athygl­is­verða. Ekki síst að eins árs gömul börn, sem varla væru farin að ganga, eyddu að jafn­aði tveimur klukku­stundum dag­lega fyrir fram skjá­inn. Mjög brýnt væri að halda rann­sókn­inni áfram. 

Börn undir tveggja ára aldri eiga ekki að horfa á sjónvarp

Norsk heil­brigð­is­yf­ir­völd mæla með að börn undir tveggja ára horfi ekki á sjón­varp en börn á aldr­inum tveggja til fimm ára verji ekki meira en einum klukku­tíma dag­lega fyrir framan skjá­inn. Þetta er byggt á ráð­legg­ingum Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO) frá árunum 2019 og 2020. Dönsk börn og ung­menni eru meðal þeirra sem lengstum tíma verja fyrir framan skjá­inn. Samkvæmt tölum frá danska barna- og mennta­mála­ráðu­neyt­inu sitja danskir ung­lingar að jafn­aði sex klukku­stundir á dag við skjá­inn og börn á aldr­inum tveggja til sex ára um það bil tvær klukku­stundir. Dönsk heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa birt ráð­legg­ingar um skjá­notkun barna og ung­linga. Þar er meðal ann­ars lögð áhersla á nauð­syn þess að fjöl­skyldur setji sér ákveðnar reglur um sjón­varps­gláp, og mik­il­vægt sé að börn séu ekki að horfa á sjón­varp eða leika sér í tölvu þegar nær dregur hátta­tíma.

Á vef­síð­unni heilsu­vera.is er að finna upp­lýs­ingar og leið­bein­ingar varð­andi sjón­varps­á­horf barna og ung­linga.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár