„Það var ekki möguleiki fyrir mig að verða ólétt utan þessa tíma“

Íslensk kona not­aði algrím bæði til að koma í veg fyrir barns­burð en einnig sem hjálp­ar­hellu þegar hún ákvað að reyna að eign­ast barn. Ljós­móðir segir það jákvætt að konur séu að skoða fleiri mögu­leika en minnir á mik­il­vægi heil­brigð­is­starfs­fólks.

„Það var ekki möguleiki fyrir mig að verða ólétt utan þessa tíma“
Dísa Stein­ars­dóttir Dísa á von á stúlku í sumar. Með aðstoð algríms not­aði hún nátt­úru­lega getn­að­ar­vörn í eitt ár þangað til hún ákvað að reyna að eign­ast barn. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Hinn alræmdi algrímur er nú orð­inn bæði að getn­að­ar­vörn og frjó­sem­is­gyðju 21. ald­ar­innar. Hann aðstoðar not­endur snjall­tækja við að reikna út líkur á þungun. Algrímur nýtur vin­sælda sem getn­að­ar­vörn meðal kvenna víðs vegar um heim og eru íslenskar konur þar ekki und­an­skildar. Heim­ildin náði tali af þung­aðri konu sem not­aði nátt­úru­legar aðferðir í kyn­lífi með aðstoð algríms, bæði til að koma í veg fyrir þungun og síðar til að verða þunguð.

Algrímur boðar áhyggjulaust kynlíf

Lengi vel hefur fólk fundið upp á ýmsum leiðum til þess að kom­ast hjá þeim mögu­leika að úr kyn­lífi verði barn. Hægt er að fylgj­ast með breyt­ingum slím­húðar en hún getur gefið vís­bend­ingu um hvenær egg­los á sér stað. Einnig eru hita­mæl­ingar og daga­töl notuð til þess að fylgj­ast með hvar í tíða­hringnum ein­stak­lingur er. Með auk­inni tækni­þróun bjóða öpp not­endum upp á þann val­mögu­leika að skrá slíkar per­sónu­legar upp­lýs­ingar niður gegn því …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár