Evrópusambandið setur tæknirisunum stólinn fyrir dyrnar

Sam­fé­lags­miðlar og aðrir netrisar munu þurfa að axla meiri ábyrgð á starf­semi sinni en áður sam­kvæmt nýju Evr­ópu­reglu­verki sem verður inn­leitt að fullu á þessu ári (Digital Services Act eða DSA). Twitter hefur ekki gert við­eig­andi ráð­staf­anir og hefur þegar fengið gult spjald hjá Evr­ópu­sam­band­inu. Sam­fé­lags­mið­ill­inn, sem er nú í eigu Elon Musk, á í hættu að þurrkast út af evr­ópskum mark­aði.

Evrópusambandið setur tæknirisunum stólinn fyrir dyrnar
Mark Zuckerberg stofn­andi og for­stjóri Facebook Zuckerberg hefur lengi lofað að sam­fé­lags­mið­ill­inn hans muni taka til í eigin ranni eftir síend­ur­tekin hneyksl­is­mál. Evr­ópskir ráða­menn hafa hins vegar misst þol­in­mæð­ina og eru nú að slá hnef­anum í borðið með nýrri lög­gjöf. Mynd: AFP

Nýrri Evr­ópu­lög­gjöf um staf­ræn mál­efni er ætlað að stemma stigu við dreif­ingu ólög­legs og skað­legs efnis á sam­fé­lags­miðlum og í leit­ar­vélum, ásamt því að tryggja not­endum betri neyt­enda­vernd og aukið gagn­sæi. DSA-lög­gjöfin (Digital Services Act) var sam­þykkt í nóv­em­ber í fyrra en hún hefur átt sér ára­langan aðdrag­anda, þar sem vinnu­brögð tæknirisa á borð við Facebook, Google og Twitter hafa lengi verið þyrnir í augum ráða­manna í Brussel.

Sam­fé­lags­miðlar hafa meðal ann­ars verið gagn­rýndir fyrir að taka þátt í dreif­ingu fals­frétta, hat­urs­orð­ræðu, pólítísks áróð­urs á tímum kosn­inga (ekki síst frá Rúss­landi) og ann­ars skað­legs efnis. Gagn­rýnendur hafa jafn­vel talið starf­semi þeirra vera ógn við lýð­ræðið og skað­leg heilsu barna og ung­linga.

Röð hneykslismála hefur reynt á þolinmæði evrópskra þingmanna

Eitt stærsta hneyksli í sögu Facebook kom upp árið 2018 þegar upp­ljóstr­ari hjá gagna­grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Cambridge Analytica sagði frá því að fyr­ir­tækið sem hann vann hjá hefði keypt af …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár