Jóhannes Tryggvi kominn í afplánun í opnu fangelsi

Jóhannes Tryggvi Svein­björns­son hóf afplánun á Litla-Hrauni um mitt síð­asta ár en hann var fluttur á Kvía­bryggju nú í febr­úar. Jóhannes Tryggvi var dæmdur í sjö ára fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot gegn fimm konum. Fang­els­is­mála­stjóri segir alla hefja afplánun í lok­uðu fang­elsi. Allir fangar eigi síðan mögu­leika á því að afplána í opnu fang­elsi, óháð brota­flokki, svo lengi sem þeir hafi ekki gerst sekir um aga­brot í afplán­un­inni.

Laus af Litla-Hrauni
Laus af Litla-Hrauni Jóhannes Tryggvi hóf afplánun í lok­uðu fang­elsi um mitt ár í fyrra en er nú kom­inn í opið fang­elsi.

Jóhannes Tryggvi Svein­björns­son, sem hlaut sjö ára fang­els­is­dóm fyrir kyn­ferð­is­brot gegn fimm konum, er nú í afplánun á Kvía­bryggju. Fang­elsið er skil­greint sem opið fang­elsi, þar eru ekki rimlar fyrir gluggum og svæðið afgirt eins og hefð­bundið sveita­býli. 

Jóhannes Tryggvi rak með­ferð­ar­stöð­ina Postura og sagð­ist sér­hæfa sig í með­ferðum við stoð­kerf­is­vanda. Hann braut á kon­unum fimm þegar þær voru á nudd­bekk hjá honum í með­ferð. Í dómi Lands­réttar sagði að brot Jóhann­esar gegn kon­unum hefðu verið framin í skjóli trún­að­ar­trausts og sam­kvæmt atvika­lýs­ingu mætti ráða að vilji hans til að brjóta á þeim hafi verið sterkur og ein­beittur.

Segist enn vera saklaus

Mikil reiði greip um sig á dög­unum eftir að Vísir.is birti umfjöllun um Jóhannes þar sem haft er eftir houm að hann telji sig hafa verið sak­felldur án dóms og laga, þrátt fyrir að hafa sann­ar­lega verið sak­felldur á tveimur dóm­stigum. Þar var einnig fjallað um fjár­söfnun sem hann hafði sett af stað fyrir sjálfan sig. 

Í byrjun þessa mán­aðar hafn­aði end­ur­upp­töku­dóm­stóll kröfum Jóhann­esar Tryggva um að dómur Lands­dóms yrði end­ur­upp­tek­inn. Í beiðni sinni til dóm­stóls­ins hélt hann því fram að stór hópur kvenna hefði sam­ein­ast um að saka hann rang­lega um kyn­ferð­is­brot. End­ur­upp­töku­dóm­stóll komst að þeirri nið­ur­stöðu að ekk­ert benti til að svo væri. 

Sýnir enga iðrun

Heim­ild­inni hafa borist ábend­ingar þar sem fólk undr­ast að Jóhannes sé kom­inn í opið fang­elsi svo skömmu eftir að hann hóf afplánun, ekki síst í ljósi þess að brot hans voru alvar­leg og ítrekuð, auk þess sem hann sýni enga iðrun eða taki ábyrgð á brotum sínum.

Jóhannes hóf afplánun á Litla-Hrauni um mitt ár 2022 en var fluttur á Kvía­bryggju í febr­úar 2023. Páll Winkel, fang­els­is­mála­stjóri, seg­ist ekki geta tjáð sig um mál ein­stakra fanga en segir að allir fangar eigi mögu­leika á fram­gangi í afplánun, óháð brota­flokki og brota­sögu. 

„Allir hefja afplánun í lok­uðu fang­elsi. Ef menn eru aga­brota­lausir eiga þeir mögu­leika á að fara síðan í opið fang­elsi, að þeim tíma loknum á áfanga­heim­ili og eru síðan heima hjá sér með ökkla­band,“ segir Páll. Þá gilda þau tíma­skil­yrði að fangar afpláni ekki lengur en þrjú til fjögur ár í opnu fang­elsi. Fangar með lengri dóm þurfi því að vera lengur í lok­uðu fang­elsi áður en þeir eiga mögu­leika á að afplána í opnu fang­elsi. Samkvæmt Páli er sam­setn­ing fanga­hóps­ins svipuð hvort sem um er að ræða opið eða lokað fang­elsi.

Miðað við alvar­leika brota Jóhann­esar má reikna með því að hann afpláni tvo þriðju dóms­ins og fari síðan á reynslu­lausn. 

Yfir tuttugu konur kærðu 

Rúmlega tutt­ugu konur kærðu Jóhannes Tryggva fyrir sam­bæri­leg brot þegar þær voru hjá honum vegna með­höndl­unar á stoð­kerf­is­vanda. Enn fleiri konur hafa lýst brotum af hendi Jóhann­esar án þess að hafa lagt fram kærur. Í öllum til­fellum lýstu kon­urnar því að Jóhannes hefði strokið kyn­færi þeirra og farið með putta ýmist upp í leggöng eða enda­þarm eða hvort tveggja. Þessu til við­bótar kærðu tvær konur hann fyrir að brjóta á þeim þegar þær voru börn. Þau mál voru látin niður falla.

Jóhannes Tryggvi var í jan­úar 2021 dæmdur í fimm ára fang­elsi í fyrir að hafa nauðgað fjórum konum sem leit­uðu með­ferðar hjá honum við stoð­kerf­is­vanda á árunum 2009 til 2015. Dómurinn var kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Reykja­ness. 

Jóhannes Trygggvi áfrýj­aði dómnum til Lands­réttar sem þyngdi hann upp í sex ár. Dómur Lands­réttar féll í nóv­em­ber 2021.

Í árs­byrjun 2022 gerði Hér­aðs­dómur Reykja­ness Jóhann­esi síðan tólf mán­aða hegn­ing­ar­auka þegar hann var sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn fimmtu kon­unni, og bæt­ist hegn­ing­ar­auk­inn við sex ára dóm­inn. 

Hann sótti um að skjóta mál­inu til Hæsta­réttar en því var hafnað, meðal ann­ars með þeim rökum að nið­ur­staða Lands­réttar væri að veru­legu leyti byggð á sönn­un­ar­gildi munn­legs fram­burðar og það mat verði ekki end­ur­skoðað hjá Hæsta­rétti. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Eva Þórðardóttir skrifaði
    Það má alveg taka fram að íslenskt réttarkerfi virkar þannig að ef svona margar kærur berast þá eru 4-5 valdar úr sem eru taldar líklegastar til sakfellingar og aðeins ákært í þeim málum. Það þýðir ekki að Jóhannes sé saklaus af þeim 15 kærum sem hann var ekki ákærður fyrir. Einnig má taka það fram að Evrópudómstóllinn er nú þegar með mál til meðferðar þar sem Jóhannes er kærður fyrir brot gegn barni þar sem lögreglan á íslandi stóð sig ekki við rannsókn málsins. Þessi maður er stór hættulegur... gaman að hann sé kominn í ''sumarbúðir''. Allar konur á íslandi geta greinilega gengið um óhultar því hér eru einungis menn sem eru saklausir þó svo að sekt sé sönnuð og allt það sem íslenskt samfélag og réttarkerfi hér gengur greinilega út á til að verda og skapa öryggi fyrirr konur og börn!
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár