Óbæri­legt að Jóhannes sé enn að með­höndla ungar konur Ragn­hildur segir óþol­andi með öllu að ekk­ert sé gert til að stöðva Jóhannes þrátt fyrir að fjöl­margar konur hafi lýst brotum af hans hálfu. Mynd: Helgi Ómarsson

Fann fyrir mikilli sektarkennd vegna hinna kvennanna

Ragn­hildur Eik Árna­dóttir kærði Jóhannes Tryggva Svein­björns­son fyrir að hafa brotið gegn sér kyn­ferð­is­lega í tvígang. Hún er óánægð með vinnu­brögð lög­reglu við rann­sókn máls­ins og óar við því að Jóhannes sé enn að með­höndla ungar konur. Það að fjöldi kvenna lýsi sams konar brotum af hálfu Jóhann­esar hljóti að eiga að hafa eitt­hvað að segja við máls­með­ferð­ina.

Ragn­hildur Eik Árna­dóttir kærði undir lok árs­ins 2018 Jóhannes Tryggva Svein­björns­son með­höndl­ara fyrir nauðgun og kyn­ferð­is­lega áreitni sem sam­kvæmt kærunni átti sér í tvígang stað á með­ferð­ar­stofu Jóhann­esar, Postura, sem þá var stað­sett í Bolholti í Reykja­vík. Ragn­hildur er ein fimmtán kvenna sem kærðu Jóhannes fyrir sam­bæri­leg brot við með­höndlun á stoð­kerf­is­vanda. Enn fleiri konur hafa lýst brotum af hendi Jóhann­esar án þess að hafa lagt fram kærur. Í öllum til­fellum lýstu kon­urnar því að Jóhannes hefði strokið kyn­færi þeirra og farið með putta ýmist upp í leggöng eða enda­þarm eða hvort tveggja. Gefin hefur verið út ákæra í fjórum mál­anna en rann­sókn ell­efu mála hefur verið felld niður.

Mál Ragn­hildar er eitt þeirra sem hefur verið felld niður rann­sókn á. Að mati hér­aðs­sak­sókn­ara er fram­burður Ragn­hildar tal­inn trú­verð­ugur, en í mál­inu standi orð hennar gegn orðum Jóhann­esar og annað það sem fram hafi komið við rann­sókn máls­ins nægi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Meðhöndlari kærður

„Hann heilaþvoði mig algjörlega“
FréttirMeðhöndlari kærður

„Hann heila­þvoði mig algjör­lega“

Frænka Jóhann­esar Tryggva Svein­björns­sonar kærði hann árið 2018 fyrir ítrekuð kyn­ferðs­brot gegn sér, frá 15 ára aldri og þar til hún var orðin 19 ára. Í skýrslu­tökum lýsir hún því hvernig Jóhannes hafi brotið margoft á henni í félagi við fjölda ann­arra karl­manna og hvernig hann hafi átt frum­kvæði að þeim brotum. Þá ber hún að Jóhannes hafi einnig brotið á henni þegar hann veitti henni hnykk­með­ferð líkt og á annan tug kvenna kærði hann fyrir.
Fjöldi kvenna lýsir ítrekuðum og alvarlegum kynferðisbrotum Jóhannesar
FréttirMeðhöndlari kærður

Fjöldi kvenna lýsir ítrek­uðum og alvar­legum kyn­ferð­is­brotum Jóhann­esar

Fimmtán konur kærðu Jóhannes Tryggva Svein­björns­son fyrir nauðg­anir og önnur kyn­ferð­is­brot sem sam­kvæmt vitn­is­burði áttu sér stað allt frá árinu 2005 og til árs­ins 2017. Yngsta stúlkan var aðeins 14 ára þegar hún kærði Jóhannes. Hann hefur nú verið ákærður fyrir fjórar nauðg­anir. Þrjár kvenn­anna sem kærðu Jóhannes stíga fram í Stund­inni og segja sögu sína. Sjálfur neitar hann að hafa brotið gegn kon­unum og segir þær ljúga.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár