Þegar stjórn og þjóð ganga ekki í takt

Á síð­asta degi febr­ú­ar­mán­aðar síð­ast­lið­ins sam­þykkti danska þingið að afnema helgi­dag úr dönskum lögum, slíkt hafði ekki verið gert í 253 ár. Ákvörð­unin var í and­stöðu við vilja mik­ils meiri­hluta dönsku þjóð­ar­innar.

Þegar stjórn og þjóð ganga ekki í takt
For­sæt­is­ráð­herr­ann Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar sem mynduð var í fyrra í Danmörku var ákveðið að fækka helgi­dögum úr 11 í 10. Mynd: AFP

Í stjórn­ar­sátt­mála þriggja flokka rík­is­stjórnar Mette Frederik­sen, sem var mynduð í kjöl­far þing­kosn­inga 1. nóv­em­ber 2022 kom fram að meðal stefnu­mála stjórn­ar­innar væri að afnema einn lög­boð­inn helgi­dag. Ekki var til­greint hvaða helgi­dag væri um að ræða, það kæmi í ljós síðar.

Í Danmörku voru sam­tals 11 helgi­dagar og nú stefndi stjórnin að því að þeir yrðu fram­vegis 10.

Helgi­dag­arnir 11 voru: Nýárs­dagur, skír­dagur, föstu­dag­ur­inn langi, páska­dagur, annar í páskum, kóngs­bæna­dagur (store bededag), upp­stign­ing­ar­dagur, hvíta­sunnu­dagur, annar í hvíta­sunnu, jóla­dagur, annar í jólum.

Stjórn­mála­skýrendur dönsku fjöl­miðl­anna töldu að ef afnema ætti einn helgi­dag kæmu tveir dagar til greina. Ann­ars­vegar annar í hvíta­sunnu og hins­vegar store bededag, sem við köllum kóngs­bæna­dag. Fleiri töldu að sá síð­ar­nefndi yrði fyrir val­inu. Sem kom á dag­inn.

Den store bededag

Við Íslend­ingar nútím­ans könn­umst mæta­vel við dönsku helgi­dag­ana, enda þeir sömu og hér á landi, að kóngs­bæna­deg­inum frá­töldum. Saga hans nær 337 ár aftur í tím­ann. 

27. mars árið 1686 sendi Kristján kon­ungur V frá sér til­skipun. Samkvæmt henni skyldi fjórði föstu­dagur ár hvert verða helgi­dagur, alls­herjar iðr­unar- og bæna­dagur í öllum löndum danska rík­is­ins. 

Klukkan sex síð­degis dag­inn áður skyldi öllum kirkju­klukkum í kon­ungs­rík­inu hringt, versl­unum lokað og sömu­leiðis krám (sem fyr­ir­fund­ust engar hér á landi), allri vinnu skyldi hætt og almenn­ingur til guðs­húss ganga, eins og það var orðað, og leggj­ast á bæn um drott­ins náð. Hvers kyns gleð­skapur var bann­aður frá því kirkju­klukk­unum var hringt og þangað til messur væru yfir­staðnar á bæna­deg­inum. Með þessu móti átti að tryggja að allir gætu tekið edrú á móti guðs­orð­inu, en þá lauk jafn­framt föst­unni sem staðið hafði síðan kvöldið áður.

Hug­mynd­ina að bæna­deg­inum, sem heitir réttu nafni ekstra­or­dinær, almindelig bededag, sem fékk fljót­lega nafnið store bededag, átti Hans Bagger (1645- 1693) biskup á Sjálandi. Hann hafði jafn­framt samið sér­staka bæn sem flutt skyldi í öllum kirkjum lands­ins. Hans Bagger vildi reyndar að hinir sér­stöku bæna­dagar yrðu þrír (ekki í sam­fellu) en ein­ungis einn var stað­festur með lögum. 

Kóngsbænadagur

Á 17. öld­inni voru fjar­skipti með öðrum hætti en í dag og til­skipun kon­ungs, dag­sett 27. mars 1686 barst ekki til Íslands fyrr en um miðjan júní sama ár en þá var komið vel fram yfir þann tíma sem miðað var við sem bæna­dag. Til að svíkj­ast ekki undan til­skipun hans hátignar var bæna­dag­ur­inn fyrst hald­inn hátíð­legur hér á landi 27. ágúst þetta sama ár. Íslend­ingum þótti danska heitið á þessum helgidegi óþjált og þá skaut nafnið kóngs­bæna­dagur upp koll­inum. Nafnið var dregið af því að þessi dagur varð helgi­dagur að kon­ung­legri skipan. Ekki voru allir jafn glöggir á þessu með kon­ung­legu til­skip­un­ina og algengt var að Íslend­ingar teldu að á þessum degi skyldi beðið sér­stak­lega fyrir kóng­inum, sem raunar var gert við hverja guðs­þjón­ustu. 

Árið 1893 var á Alþingi lagt fram frum­varp sem gerði ráð fyrir fækkun helgi­daga. Frum­varpið tók til kóngs­bæna­dags, skír­dags, ann­ars í páskum, upp­stign­ing­ar­dags og ann­ars í hvíta­sunnu. Eftir miklar umræður lauk mál­inu með því að þingið sam­þykkti að „kóngs­bæna­dagur er úr lögum num­inn sem helgi­dagur“. Þar með hvarf hann af íslenska helgi­daga­list­anum.  

253 ár síðan helgidagur var aflagður í Danmörku

Árið 1770 var ár hinna aflögðu helgi­daga í Danmörku. Þá voru lagðir af hvorki meira né minna en ell­efu helgi­dagar. Síðan eru 253 ár án þess að svo mikið sem helgur dag­partur hafi verið aflagður. Fyrir all­mörgum árum var í danska þing­inu, Fol­ket­inget, nefnd sú hug­mynd að leggja af den store bededag. Hug­myndin fékk litlar und­ir­tektir og þar við sat.

Eins fyrr var nefnt var tekið fram í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar að aflagður skyldi einn helgi­dagur. Og rétt eins og margir höfðu reiknað út var það store bededag sem til stóð að fella niður sem helgi­dag. 2. febr­úar sl. hófust umræður í þing­inu um frum­varp stjórn­ar­innar. 

Af hverju að leggja þennan helgidag af?

Svarið við þess­ari spurn­ingu var ein­falt: til að afla meiri tekna fyrir sam­fé­lagið, það er að segja rík­is­kass­ann. Samkvæmt útreikn­ingum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins myndi þessi „auka“ dagur skila rík­is­sjóði 3 til 4 millj­örðum króna (60- 80 millj­örðum íslenskum) árlega. Og hvað á að gera við þá var spurt í þing­inu. Fyrst voru svör ráð­herra þau að þessar tekjur yrðu not­aðar til að greiða aukin útgjöld hers­ins, sem ekki myndi af veita, eins og kom­ist var að orði. Síðar breytt­ust svörin og nefnt að hluti pen­ing­anna færu til að styrkja vel­ferð­ar­sam­fé­lagið og einnig til umbylt­ingar í orku­málum (den grønne omstill­ing). 

Hvað næst, kannski að slaufa föstu­deg­inum langa og láta tekjur þess dags renna til heil­brigð­is­kerf­is­ins, eða láta skír­dag­inn róa og nota pen­ing­ana sem þá kæmu í rík­is­kass­ann renna í umbætur í skóla­málum? Spurn­ingar af þessu tagi mátti lesa á net­miðl­unum. For­sæt­is­ráð­herra sagði af og frá að til greina kæmi að fella niður fleiri helgi­daga. 

Mikil andstaða almennings 

Eftir að frum­varpið um að leggja store bededag af var kynnt í þing­inu og fjöl­miðlum vakti það mikla athygli meðal almenn­ings og fjöl­margar spurn­ingar vökn­uðu. Meðal ann­ars hvort þarna ætti að bæt­ast við ólaun­aður vinnu­dagur, hvort gert væri ráð fyrir store bededag, sem frídegi í kjara­samn­ingum og yrði hann þá laun­aður sem hrein auka­vinna? Þessar spurn­ingar og margar aðrar dundu á ráð­herrum, mörgum þótti svörin óljós, þetta væri úrlausn­ar­efni var gjarna svarið. 

Skoð­ana­kann­anir sýndu að mik­ill meiri­hluti lands­manna var and­vígur því að store bededag yrði felldur niður sem helgi­dagur. Það kom kannski ekki sér­stak­lega á óvart að launa­fólk væri þessu andsnúið en að atvinnu­rek­endur lýstu sig sömu­leiðis mót­fallna þess­ari breyt­ingu kom mörgum á óvart. Kirkj­unnar fólk var andsnúið breyt­ing­unni og bent var á að store bededag var einn helsti ferm­ing­ar­dagur í land­inu ár hvert. En þetta breytti engu, rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir virt­ust stað­ráðnir í að standa fast við þá ákvörðun að store bededag yrði felldur niður. Samkvæmt frum­varp­inu tæki breyt­ingin gildi á næsta ári og föstu­dag­inn 5. maí nk. lyki því 337 ára sögu þessa helgi­dags yrði frum­varpið að lögum. 

Hart tekist á í þinginu

28. febr­úar var komið að atkvæða­greiðslu í þing­inu. Umræður stóðu í rúma fjóra tíma áður en atkvæði voru greidd. Umræður er kannski ekki rétta lýs­ingin því and­stæð­ingar frum­varps­ins voru einir um að stíga í pont­una, hvorki ráð­herrar né aðrir úr stjórn­ar­flokk­unum tóku til máls. 

Þegar til atkvæða­greiðsl­unnar kom studdu 95 þing­menn frum­varpið en 68 voru á móti. 16 voru fjar­ver­andi eða greiddu ekki atkvæði, en sam­tals eru þing­menn 179. Stjórn­ar­and­stæð­ingar voru ekki af baki dottnir og reyndu að beita sér­á­kvæði í stjórn­ar­skránni. Það ákvæði gerir ráð fyrir að hægt sé að senda sam­þykkt laga­frum­varp í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Til þess þarf stuðn­ing 60 þing­manna. Ekki reynd­ist nægur stuðn­ingur við þessa til­lögu meðal þing­manna og þar með lögðu stjórn­ar­and­stæð­ingar árar í bát.

ÚrslitinAlls 95 þing­menn studdu frum­varpið en 68 voru á móti. 16 voru fjar­ver­andi eða greiddu ekki atkvæði, en sam­tals eru þing­menn 179.

Rétt er að nefna að Færeyjar og Grænland eru und­an­þegin lög­unum, þar verður store bededag áfram við lýði.

Kannski ekki öll sagan sögð, alls staðar

Eins og nefnt var framar í þessum pistli var yfir­gnæf­andi hluti almenn­ings andsnú­inn því að leggja store bededag af. Í sumum bæj­ar­fé­lögum hafði meiri­hluti bæj­ar­full­trúa lýst sig and­snúna ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar. 

Þótt ein­ungis séu örfáir dagar síðan frum­varpið var sam­þykkt í þing­inu eru þegar farnar að heyr­ast raddir um að við­halda store bededag sem frídegi, þótt hann verði ekki helgi­dagur. Eitt þeirra sveit­ar­fé­laga þar sem stuðn­ingur er við slíkt fyr­ir­komu­lag meðal meiri­hluta borg­ar­stjórnar er Kaup­manna­höfn. Þá gæti komið upp sú staða að þeir sem starfa hjá borg­inni verði í fríi þennan dag, en starfs­menn rík­is­fyr­ir­tækja verði að mæta til vinnu.   

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár