„Alvöru lög“ og eitthvað sem hljómar eins og apar hafi komist í skemmtara

Gunnar Lárus Hjálm­ars­son fjallar um fjórðu Drullum­alls-safn­plöt­una frá dug­legu krökk­unum í Post-dreif­ingu.

„Alvöru lög“ og eitthvað sem hljómar eins og apar hafi komist í skemmtara
Tónlist

Drullum­all #4

Gefðu umsögn

Post-dreif­ing hefur verið fram­sækn­asta útgáfa lands­ins um nokkra hríð og gefið út alls konar leit­andi lista­popp síðan 2018. Fjórða Drullum­alls-safn­platan inni­heldur bæði „alvöru“ lög og (full mikið fyrir minn smekk af) þoku­lega hljóðskúlp­t­úra sem gætu dunið á manni sam­hliða ein­hverju leið­in­legu mynd­bands­verki á lista­sýn­ingu eða þá eitt­hvað sem hljómar eins og apar hafi kom­ist í skemmt­ara og fingra-xíla­fón. Sem sagt eitt­hvert gauf út í loftið.

Besta drullan í mall­inu fyrir minn hatt eru fimm „alvöru“ lög. Xiupill, þrír reffi­legir strákar, flytja So U say: her­skátt frum­skóg­ar­list­arapp. Trailer Todd er gríð­ar­lega nettur tveggja gít­ara, bassa, trommu-kvar­tett, sem lúskrar á eyrum með sarg­andi stærð­fræðipönk­inu Yeah. Alltaf má treysta á að hljóm­sveitin Börn komi með prýði­legt óþæg­indapönk og hér fær hlust­and­inn úr hljóð­rænum hland­koppi framan í sig, lagið Höggin dynja. Dreng­ur­inn feng­ur­inn er frændi minn Egill Logi og get ég því ekki talað of vel um hann. Lagið Í rút­unni er samt eitt af hans albestu.

Hljóm­sveitin Ókind­ar­hjarta er efni­leg mjög, ungir krakkar með gott lag, Dystópíski draum­ur­inn. Flott rödd og lagið vel upp­byggt sak­leysis-popp. Annað efni er síðra og hefði gjarnan mátt hafa þrösk­uld­inn hærri. Vonandi heldur Post-dreif­ingin þó áfram sem lengst. Það eru akkúrat svona dríf­andi regn­hlíf­ar­sam­tök sem íslenski lista­popps-örbrans­inn þarf á að halda til að halda sér á floti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár