Ekki grundvöllur fyrir samningaviðræðum við fjármálaráðuneytið – Samtöl engu skilað

Samtöl líf­eyr­is­sjóða við ríkið hafa engu skilað vegna upp­gjörs eigna og skulda ÍL-sjóðs. Samkvæmt líf­eyr­is­sjóð­unum hafa full­trúar ráðu­neyt­is­ins ekki komið til móts við kröfur sjóð­anna um fullar efndir af hálfu íslenska rík­is­ins í umleit­unum þess um mögu­legt upp­gjör.

Ekki grundvöllur fyrir samningaviðræðum við fjármálaráðuneytið – Samtöl engu skilað
Svör ráð­herr­ans komu á óvart Svör Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á Alþingi um málið í síð­ustu viku komu líf­eyr­is­sjóð­unum á óvart hvað varðar ummæli um að ekki sé verið að óska eftir sam­komu­lagi um skerð­ingu eigna. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Fundur tutt­ugu líf­eyr­is­sjóða, stærstu eig­enda skulda­bréfa ÍL-sjóðs, telur að óbreyttu ekki grund­völl fyrir samn­inga­við­ræðum við fjár­mála­ráðu­neytið um upp­gjör skuld­bind­inga sjóðs­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem líf­eyr­is­sjóð­irnir sendu fjöl­miðlum í dag. 

Fram kemur að full­trúar ráðu­neyt­is­ins hafi ekki komið til móts við kröfur líf­eyr­is­sjóð­anna um fullar efndir af hálfu íslenska rík­is­ins í umleit­unum þess um mögu­legt upp­gjör. 

ÍL-­­­sjóður varð til á grund­velli laga sem sam­­­þykkt voru árið 2019, og skiptu Íbúða­lána­­­sjóði upp í tvennt. Hluti hans, sá sem snýr að fjár­­­­­mögnun á félags­­­­­legri upp­­­­­bygg­ingu á hús­næði, færð­ist í nýja stofn­un, Hús­næð­is- og mann­­­virkja­­­stofn­un. Skuldir og eignir vegna íbúða­lána á almennum mark­aði, sem rekja má að mestu til skulda­bréfa­út­­­­­gáfu á árinu 2004, voru sett í ÍL-­­­sjóð. Skulda­bréf­in, sem eru með gjald­daga til 2044, eru ekki upp­­­greið­an­­­leg en lánin sem sjóð­­­ur­inn veitti eru það hins veg­­­ar. 

Áætlað tap vegna fyr­ir­komu­lagsins 200 millj­­­arðar

Vandi ÍL-­­­sjóðs er til­­­kom­inn vegna þess að íbúða­lán bank­ans hafa verið greidd upp á miklum hraða, og eru ein­ungis um 20 pró­­­sent af eignum sjóðs­ins, á meðan að enn þarf að þjón­usta skulda­bréf­in. Áætlað er að tap vegna þessa fyr­ir­komu­lags verði að óbreyttu 200 millj­­­arðar króna. 

Þessi áætlun byggði á lög­­fræð­i­á­liti sem ráðu­­neytið lét vinna fyrir sig sem komst að þeirri nið­­ur­­stöðu að þetta væri ger­­legt. Sá sem skrif­aði það álit er Jóhannes Karl Sveins­­son lög­­­mað­­ur. Sam­hliða var greint frá því að Stein­þór Páls­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, hefði verið feng­inn sem milli­göngu­að­ili í sam­tali við eig­endur krafna á ÍL-­sjóð. Hann átti að reyna að ná sam­komu­lag­inu við sjóð­ina. 

Líf­eyr­is­sjóðir, sem eiga um 80 pró­sent skulda­bréfa sem útgefin voru af ÍL-­sjóði, áætl­uðu að sú leið sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra boð­aði myndi kosta þá yfir 100 millj­arða króna. Tap eig­enda bréfa ÍL-­sjóðs stafar af því þau voru verð­lögð miðað við 3,75 pró­sent verð­tryggða vexti út líf­tíma bréf­anna. Ef bréfin væru greidd upp miðað við stöðu þeirra í dag væri hægt að ávaxta þá fjár­muni um 1,7 til 1,8 pró­sent með kaupum á verð­tryggðum rík­is­skulda­bréf­um. Í þessum mun felst áætlað tap eig­enda bréf­anna. 

Þann 11. nóv­em­ber 2022 til­kynntu flestir líf­eyr­is­sjóðir lands­ins að þeir hefðu ákveðið að mynda sam­eig­in­­lega vett­vang til að greina stöðu sjóð­anna vegna ÍL-­­sjóðs. Hver og einn sjóður myndi þó á end­­anum taka sjálf­­stæða ákvörðun um hvað hann vildi gera í mál­inu.

Sagðist ekki hafa beðið lífeyrissjóði um að skerða eignir sínar

Heim­ildin fjall­aði um svar Bjarna við fyr­ir­spurn Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, í síð­ustu viku en í því kom fram að ráðu­neytið liti svo á að það væri ekki að óska eftir samn­ingi við líf­eyr­is­sjóði og aðra eig­endur skulda ÍL-sjóðs um skerð­ingu eigna í þeim umleit­unum sem farið höfðu fram á for­ræði þess við þá aðila. Fyr­ir­sjá­an­legt væri að ÍL-sjóður geti ekki staðið undir öllum skuld­bind­ingum sínum og væri ógjald­fær. Þess vegna væru uppi sjón­ar­mið um að ganga yrði til upp­gjörs á sjóðnum. „Slíkt upp­gjör gæti til að mynda falið í sér að eig­endur bréf­anna fái afhentan höf­uð­stól skuld­ar­innar ásamt vöxtum og verð­bótum til upp­gjörs­dags. Ávöxtun af slíku eigna­safni í höndum líf­eyr­is­sjóð­anna kynni allt eins að verða jafn góð eða betri en af skulda­bréfum ÍL-sjóðs,“ sagði í svar­inu. 

Þar kom enn fremur fram að Bjarni hefði ekki boðað eina til­tekna aðgerð eða ráð­stöfun í mál­efnum ÍL-sjóðs, hvorki í skýrslu um mál­efni sjóðs­ins né á blaða­manna­fundi sem Bjarni hélt seint á síð­asta ári. Þar hefði verið um að ræða kynn­ingu á ósjálf­bærri fjár­hags­stöðu sjóðs­ins og „reifun á þremur leiðum sem helst virð­ast koma til greina við úrvinnslu sjóðs­ins. Líkt og fram hefur komið mun Alþingi svo þurfa að taka afstöðu til þeirra leiða sem farnar verða.“

Full samstaða meðal lífeyrissjóðanna

Fram kemur í til­kynn­ing­unni sem líf­eyr­is­sjóð­irnir sendu út í dag að íslenska ríkið beri ótak­mark­aða ábyrgð á öllum skuld­bind­ingum ÍL-sjóðs. „Áætlun fjár­mála­ráð­herra um slita­með­ferð og upp­gjör á skuld­bind­ingum sjóðs­ins án til­lits til vaxta­greiðslna í fram­tíð­inni felur í sér skerð­ingu eign­ar­rétt­inda sem brýtur í bága við ákvæði stjórn­ar­skrár og mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Um það liggja fyrir ítar­lega rök­studd lög­fræði­á­lit LOGOS lög­manns­þjón­ustu og Róberts Spanó, fyrr­ver­andi for­seta Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Hug­myndir fjár­mála­ráð­herra um upp­gjör sem ekki felur í sér fullar efndir af hálfu íslenska rík­is­ins eru því óásætt­an­legar.“

Þá koma svör fjár­mála­ráð­herra á Alþingi um málið í síð­ustu viku líf­eyr­is­sjóð­unum á óvart hvað varðar ummæli um að ekki sé verið að óska eftir sam­komu­lagi um skerð­ingu eigna. „Boðaðar ráð­staf­anir í tengslum við slit ÍL-sjóðs, sem miða að því að lækka veru­lega fjár­hags­legar skuld­bind­ingar íslenska rík­is­ins, með laga­setn­ingu náist ekki samn­ingar, leiða að óbreyttu til tug­millj­arða króna tjóns líf­eyr­is­sjóð­anna og þar með almenn­ings í land­inu í formi tap­aðra líf­eyr­is­rétt­inda. Við blasir að látið yrði reyna á allar slíkar aðgerðir fyrir dóm­stólum. 

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa ríkum lög­bundnum skyldum að gegna gagn­vart sínum umbjóð­endum, sjóð­fé­lögum. Þessar skyldur úti­loka gerð sam­komu­lags af því tagi sem felst í upp­leggi fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Á meðan ekki er komið til móts við grund­vall­ar­kröfur líf­eyr­is­sjóð­anna um fullar efndir þjóna samn­inga­við­ræður við fjár­mála­ráðu­neytið því ekki til­gangi. Um það er full sam­staða meðal sjóð­anna,“ segir að lokum í til­kynn­ing­unni. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • BJB
    Baldur J Baldursson skrifaði
    Athyglivert í þessu máli er m.a. það hve sjálfsagt og eðlilegt fjármálaráðherra virðist telja það vera að beita valdi til að komast undan óþægilegum skuldbindingum ríkissjóðs, sem hans flokkur (ásamt Framsóknarflokknum) ber beina ábyrgð á að stofnað var vísvitandi til fyrir fáum árum, gegn víðtækum aðvörunum!
    0
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Fyrirsjáanlegt væri að ÍL-sjóður geti ekki staðið undir öllum skuldbindingum sínum og væri ógjaldfær. Þess vegna væru uppi sjónarmið um að ganga yrði til uppgjörs á sjóðnum."

    Veit fjármálaráðherra ekki hvað ríkisábyrgð þýðir? Ríkisábyrgð þýðir að ef ÍL-sjóður getur ekki staðið undir skuldbindingum sínum ber ríkinu að greiða það sem upp á vantar.
    Þetta eru bréf sem ganga kaupum og sölum og eru verðlögð miðað við að þau beri ákveðna vexti út lánstímann. Þar sem þetta eru hærri vextir en ávavöxtunarkrafan er í dag myndi verðgildi slíkra bréfa hrynja ef vilji Bjarna næði fram að ganga.
    Er það ekki makalaust að auðmaðurinn Bjarni Ben vilji að lífeyrisþegar framtíðarinnar beri yfir 100 milljarða tjón af völdum stjórnmálamamna í stað þess að ná inn þessu fé með hærri sköttum á hæstu laun og ofureignir?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár