Allar forsendur þess að skipa rannsóknarnefnd Alþingis vegna bankasölunnar uppfylltar

Minni­hluti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar telur allar sjö for­sendur þess að skipa rann­sókn­ar­nefnd Alþingis vera upp­fylltar varð­andi frek­ari rann­sókn á sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka fyrir tæpu ári. Í nefnd­ar­á­liti minni­hlut­ans er þess kraf­ist að rann­sókn­ar­nefnd verði skipuð.

Allar forsendur þess að skipa rannsóknarnefnd Alþingis vegna bankasölunnar uppfylltar
Krafa um sjálf­stæða rann­sókn­ar­nefnd Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, ásamt nefnd­ar­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar, þeim Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur, Sigmari Guð­munds­syni og Ásthildi Lóu Þórs­dóttur, hafa skilað inn minni­hluta­á­liti um skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Minni­hlut­inn telur allar for­sendur fyrir skipan sjálf­stæðrar rann­sókn­ar­nefndar Alþingis upp­fylltar.

Minni­hluti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar telur að rík­is­end­ur­skoð­anda hafi ekki tek­ist að svara þeim fjórum spurn­ingum sem Rík­is­end­ur­skoðun leit­að­ist við að svara í úttekt sinni um sölu hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Minni­hluti nefnd­ar­innar hefur skilað inn nefnd­ar­á­liti þar sem færð eru rök fyrir því að allar sjö for­sendur þess að skipa rann­sókn­ar­nefnd Alþingi séu upp­fylltar og krefst þess að rann­sókn­ar­nefnd Alþingis verði skipuð til að rann­saka sölu­ferlið til hlítar. 

Undir álitið skrifa Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður nefnd­ar­innar, Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, þing­maður Flokks fólks­ins og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata.  

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd lauk umfjöllun sinni um skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka á fundi sínum í gær. Skýrslan var birt 14. nóv­em­ber og fund­aði nefndin 17 sinnum um efni skýrsl­unnar. Í áliti meiri­hluta nefnd­ar­innar segir að banka­salan hafi heilt yfir tek­ist vel „og þá sér­stak­lega í veiga­mestu atrið­unum“. 

Einstaka hluta fram­kvæmd­ar­innar hefði þurft að gera með vand­aðri hætti en það hafði þó ekki áhrif á nið­ur­stöðu máls­ins að mati meiri­hluta nefnd­ar­innar. „En brýnt er að læra af þeim svo að vanda megi fram­kvæmd­ina til fram­tíðar,“ segir í áliti meiri­hlut­ans, sem telur einnig að ekk­ert við vinnslu máls­ins gefi til kynna að lög eða reglur hafi verið brotnar við fram­kvæmd söl­unnar af hálfu ráð­herra eða Banka­sýslu rík­is­ins.    

„Enga afgerandi afstöðu að finna“ hvort framkvæmd sölunnar samrýmist lögum

Minni­hluti nefnd­ar­innar er á öðru máli og krefst þess að rann­sókn­ar­nefnd Alþingis verði skipuð til að rann­saka sölu­ferlið til hlítar, krafa sem uppi hefur verið frá því að Rík­is­end­ur­skoðun skil­aði skýrslu sinni um miðjan nóv­em­ber. 

Í áliti minni­hlut­ans segir að þrátt fyrir að ætlun rík­is­end­ur­skoð­anda hafi verið að leita svara við því hvort fram­kvæmdin sam­ræmd­ist lögum um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og lögum um Banka­sýslu rík­is­ins geti nið­ur­stöður Rík­is­end­ur­skoð­unar ekki talist fela í sér mat eða álit á því hvort lögum hafi verið fylgt eða þau brotin. „Í skýrsl­unni er enda enga afger­andi afstöðu að finna um hvort fram­kvæmd söl­unnar hafi sam­rýmst lögum um sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins eða lögum um banka­sýslu rík­is­ins,“ segir í áliti minni­hlut­ans, sem bendir auk þess á að ekk­ert sé fjallað um það hvort salan sé í sam­ræmi við meg­in­reglur stjórn­sýslu­réttar „eins og sjá má af afmörkun Rík­is­end­ur­skoð­unar í upp­hafi skýrsl­unnar“.

Fjár­mála­ráð­herraMinni­hluti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar ítrekar að úttekt Rík­is­end­ur­skoð­anda fól ekki í sér athugun á því hvort farið hafi verið að stjórn­sýslu­lögum líkt og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur haldið fram. Það, auk fjölda ann­arra ástæðna, er að mati minni­hluta nefnd­ar­innar til­efni til að skipa rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að rann­saka banka­söl­una til hlítar.

Öll skilyrði um skipan rannsóknarnefndar uppfyllt

Í áliti sínu vísar minni­hlut­inn í lög um rann­sókn­ar­nefndir frá 2011 og grein­ar­gerð sem fylgdi frum­varp­inu þar sem fjallað er um sjö for­sendur sem rétt­læta skipan  rann­sókn­ar­nefnd Alþingis. Minni­hlut­inn færir rök fyrir því að allar sjö for­send­urnar séu upp­fylltar. 

Í fyrsta lagi telur minni­hluti nefnd­ar­innar að skil­yrði um hvort málið telj­ist almennt mik­il­vægt vera upp­fyllt. „Málið hefur stöðugt verið í almennri umræðu og fjöl­miðlaum­fjöllun allt frá því að salan átti sér stað í mars og hefur verið beðið lengi eftir skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um hana. Þá snýr málið að sölu rík­is­eigna sem varðar með­ferð á almannafé. Það verður því að telj­ast upp­fyllt.“

Annað skil­yrðið snýr að með­ferð opin­bers valds sem minni­hlut­inn telur vera upp­fyllt þar sem um var að ræða sölu á rík­is­eignum af hálfu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. 

Þriðja skil­yrðið snýr að því hvort umfang brots sé þekkt. Minni­hlut­inn telur svo ekki vera og því sé skil­yrðið upp­fyllt. „Þó að fyrir liggi tals­verðar upp­lýs­ingar um söl­una, þá eru enn fjöl­margar spurn­ingar sem ekki hefur verið svarað. Bæði vegna þess að afmörkun rann­sókn­ar­innar var ákveðin af fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sjálfum, sem óskaði sjálfur eftir úttekt við rík­is­end­ur­skoð­anda, en líka þar sem að spurn­ingum úttekt­ar­innar var ekki svarað með full­nægj­andi hætti.“

„Þó að fyrir liggi tals­verðar upp­lýs­ingar um söl­una, þá eru enn fjöl­margar spurn­ingar sem ekki hefur verið svarað.“
Úr áliti minni­hluta stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar
um skýrslu Rík­is­end­ur­koð­unar um söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka.

Krafa um óhlut­drægni og sjálf­stæði gagn­vart stjórn­völdum felst í fjórða skil­yrð­inu. Minni­hlut­inn bendir á að mikið og ríkt ákall hefur verið um óháða og sjálf­stæða rann­sókn á söl­unni á eign­ar­hlut rík­is­ins. „Ekki síst vegna þess hve áleitnar spurn­ingar hafa verið uppi um hæfi og mögu­legt van­hæfi í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga þeirra sem fram­kvæmdu söl­una.“

Í fimmta lagi varðar málið emb­ætt­is­færslur ráð­herra, sem stað­festi söl­una sjálfur með und­ir­ritun og ber ábyrgð á söl­unni, lögum sam­kvæmt. „Það skil­yrði er aug­ljós­lega upp­fyllt,“ segir í áliti minni­hlut­ans. 

Í sjötta lagi skal ekki setja af stað rann­sókn þegar fyrir liggur að málið verði rann­sakað á full­nægj­andi hátt af þar til bærum aðila. Minni­hlut­inn telur að nú þegar úttekt Rík­is­end­ur­skoð­anda er lokið og mörgum spurn­ingum enn ósvarað verður ekki talið að þetta skil­yrði standi í veg fyrir skipan rann­sókn­ar­nefndar, heldur þvert á móti.

Í sjö­unda lagi segir minni­hlut­inn sjálf­stæða rann­sókn aug­ljósan þátt í eft­ir­lits­hlut­verki Alþingis með fram­kvæmd­ar­vald­inu, þar sem salan er á ábyrgð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Áfellisdómur yfir framkvæmd söluferlisins og enn margt óupplýst

Minni­hluti nefnd­ar­innar segir skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar vera áfell­is­dóm yfir fram­kvæmd sölu­ferl­is­ins af hálfu Banka­sýsl­unnar, fram­kvæmd­ar­að­ila söl­unnar og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. 

„Fjöl­margir van­kantar voru á söl­unni og verður ekki annað séð en að ráð­herra beri á þeim stjórn­sýslu­lega ábyrgð sem verði að axla. Þá má einnig telja ljóst að enn er margt óupp­lýst varð­andi sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Þó að skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar hafi verið um margt góð, og bendi á margt sem miður fór í sölu­ferl­inu þá hefur umfjöllun nefnd­ar­innar engu að síður sýnt fram á þörf­ina fyrir frek­ari rann­sókn á mál­inu,“ segir í áliti minni­hluta stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.

Sérstök umræða fer fram á þing­fundi sem hófst klukkan 13:30 um skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka þar sem álit nefnd­ar­innar, meiri­hlut­ans og minni­hlut­ans, verða rædd. 

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár