Krafan um rannsóknarnefnd um bankasöluna enn til staðar

Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hafa skilað inn minni­hluta­á­liti þar sem þess er kraf­ist að rann­sókn­ar­nefnd Alþingis verði skipuð til að fara yfir sölu­ferlið á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Nefndin hefur nú lokið umfjöllun sinni um skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um banka­söl­una.

Krafan um rannsóknarnefnd um bankasöluna enn til staðar
Rann­sókn­ar­nefnd Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, fer fyrir minni­hluta­á­liti nefnd­ar­innar þar sem þess er kraf­ist að sett verði á fót rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að rann­saka sölu­ferli á hlut rík­is­ins í Íslands­banka til hlítar. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hafa skilað inn minni­hluta­á­liti þar sem farið er fram á að sett verði á fót sjálf­stæð rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að rann­saka söl­una til hlítar. 

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­maður nefnd­ar­innar og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að nauð­syn­legt sé að rann­saka söl­una til hlítar, salan hafi ekki verið skoðuð með full­nægj­andi hætti, sér­stak­lega þegar litið er til stjórn­sýslu­laga og stjórn­sýslu­reglna. 

Nefndin hefur fundað 17 sinnum um skýrslu Ríkisendurskoðunar

Skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka var birt 14. nóv­em­ber 2022. Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fund­aði um skýrsl­una þann dag og hefur 16 sinnum til við­bótar fjallað um efni skýrsl­unnar. 

Á fundi sínum í morgun lauk nefndin umfjöllun um skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar með afgreiðslu tveggja nefnd­ar­á­lita, ann­ars vegar frá meiri­hluta nefnd­ar­innar og hins vegar frá minni­hluta nefnd­ar­innar. Undir álit minni­hlut­ans skrifa, auk Þórunnar, þau Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, þing­maður Flokks fólks­ins og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata. 

„Nið­ur­staða okkar er að það þurfi að stofna sjálf­stæða rann­sókn­ar­efnd Alþingis sem hafi allar þær heim­ildir sem slík nefnd hefur,“ segir Þórunn. Lög um rann­sókn­ar­nefndir á vegum Alþingis fela í sér umgjörð um skipan störf rann­sókn­ar­nefnda sem Alþingi hefur ákveðið að koma á fót til þess að rann­saka mik­ils­verð mál er almenn­ing varða. Lögunum er ætlað að styrkja enn frekar eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis með fram­kvæmd­ar­vald­inu. 

Strax eftir sölu­ferlið í mars í fyrra köll­uðu fjöl­margir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn eftir því að skipuð yrði rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþingis til að fara yfir sölu­­ferlið, en slík nefnd hefur víð­tæk­­ari heim­ild­ir en Rík­is­end­ur­skoð­un. Því var hafnað af stjórn­­­ar­­flokk­un­um, meðal ann­ars með þeim rökum að vinna þyrfti verkið hratt og því væri Rík­is­end­ur­skoðun betur til þess fallin að sinna því en rann­sókn­ar­nefnd. 

Skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar birt­ist svo sjö mán­uðum og sjö dögum eftir að beðið var um hana, en upp­haf­lega átti skýrslan að koma fyrir augu almenn­ings fyrir lok júní. Síð­asta rann­sókn­ar­nefnd Alþingis sem sett var sam­an, til að rann­saka aðkomu þátt­­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser í kaupum á 45,8 pró­­sent eign­­ar­hlut rík­­is­ins í Bún­­að­­ar­­banka Íslands, lauk störfum sínum á innan við tíu mán­uð­um. Nið­ur­staða hennar varp­aði algjör­lega nýju ljósi á atburða­rás söl­unnar og opin­ber­aði að aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á hlut í Bún­­­­að­­­­ar­­­­bank­­­­anum hafi verið blekk­ing. 

Stjórnarþingmenn sögðust tilbúnir að styðja skipun rannsóknarnefndar

Þegar sá far­vegur að láta Rík­is­end­ur­skoðun gera úttekt á söl­unni í stað þess að skipa rann­sókn­ar­nefnd var til umræðu á þingi skömmu fyrir síð­ast­liðna páska komu nokkrir stjórn­ar­þing­menn í pontu og ­sögðu að þeir myndu styðja skipun rann­­sókn­­ar­­nefndar ef spurn­ingum væri ósvarað eftir að Rík­­is­end­­ur­­skoðun lyki sinni vinnu. Þeirra á meðal voru Óli Björn Kára­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, og Ingi­björg Isaksen, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks.

Orð­rétt sagði Óli Björn í pontu á þingi þann 7. apríl síð­ast­lið­inn: „Ég hef sagt og ætla að end­­­ur­­­taka það hér að ef það verður nið­­ur­­staða þings­ins að út­­­tekt rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda, sem ætti ekki að taka lang­an tíma, dugi ekki til þá mun ég styðja það að komið verði á fót sjálf­­­stæðri rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd.“

Orri Páll tók í svip­aðan streng og sagði að ef hug­­mynd Bjarna um skoðun Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar á mál­inu væri ekki nóg „þá tek ég heils hugar undir með þeirri hug­­mynd að setja á fót sér­­staka rann­­sókn í mál­inu, bara heils hug­­ar. Það er allra hagur að þetta mál sé upp­­lýst ef ein­hver vafi er um ferlið þannig ég tek heils hugar undir það, svo það komi skýrt fram.“ 

Þegar skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar kom út sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, sagði að ekki væri ástæða til að meta hvort skipa eigi rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að fara yfir sölu­ferli á hlut í Íslands­banka fyrr en stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd hefur fjallað um skýrsl­una.

Þeirri vinnu er nú lokið og Þórunn seg­ist ánægð með að nefndin hafi gefið sér góðan tíma til að fara yfir efni skýrsl­unnar. Nið­ur­staðan sýni hins vegar að þörf er á að skipa sjálf­stæða rann­sókn­ar­nefnd. 

Aðspurð hversu von­góð hún er um að slík nefnd verði skipuð segir Þórunn: „Eigum við ekki að orða það þannig að það þurfi þá að sann­færa nokkuð marga í stuðn­ings­hópi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um nauð­syn þess. Það verður þá að koma í ljós.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár