1071. spurningaþraut: Hvaða stærðfræðikennari varð fjármálaráðherra?

1071. spurningaþraut: Hvaða stærðfræðikennari varð fjármálaráðherra?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er sú unga stúlka sem þarna sést með afa sínum? Þið þurfið EKKI að vita hvað afinn heitir en ef ein­hver veit það, á sá eða sú skilið nör­da­verð­laun vik­unnar.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða þing­maður á Alþingi Íslend­inga var stærð­fræði­kenn­ari en tók síðar að sér fjár­mála­ráðu­neytið?

2.  Í hvaða sagna­heimi kynn­umst við mæðg­unum Catelyn Stark og dætrum hennar Sönsu og Örju?

3.  Hvað heitir stærsta eyjan á Karí­ba­hafi?

4.  Hvaða skáld um 1300 lýsti bæði hel­víti og himna­ríki betur en áður hafði verið gert?

5.  Síðustu þrír páfar hafa hins vegar til­heyrt hver sinni þjóð­inni. Hvaða þremur þjóðum hafa þessir páfar til­heyrt? Þið þurfið að hafa öll þjóða­heitin rétt en nöfn páf­anna mega liggja milli hluta í þetta sinn.

6.   Hvaða þjóð í Evrópu stærir sig gjarnan af því að ríki hennar hafi verið það síð­asta í álf­unni sem und­ir­gekkst kristni?

7.  Á fremur afskekktum stað norðar í álf­unni bjó þó önnur þjóð sem hafði að sönnu fengið að kynn­ast krist­in­dómnum fyrr, en heiðin trú­ar­brögð við­héld­ust þó í nokkrar aldir enn til hliðar við og innan um krist­in­dóm­inn. Hvaða þjóð var svona blendin í trúnni?

8.  Hvaða byggði staður á Atl­ants­hafi er lengst frá öðru byggðu bóli?

9.  Hver er aft­astur í staf­róf­inu af öllum þeim sem hafa verið kjörnir á Alþingi Íslend­inga?

10.  Í banda­ríska flot­anum tíðkast nokkuð að gefa risa­stórum flug­véla­móð­ur­skipum nöfn for­seta Banda­ríkj­anna. Sem stendur sigla átta slík risa­skip um höfin og það níunda er á leið­inni. En hver er nýjasti for­set­inn (þ.e.a.s. styst síðan hann gegndi emb­ætti) sem hefur verið heiðr­aður með þessum hætti?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér er ein óvenju­leg. Ég fékk hana með góð­fús­legu leyfi hjá Alex Bellos sem heldur úti skemmti­legri þrauta­síðu hjá The Guardian, en hann fékk hana hjá úkra­ínsku bræðr­unum Arsenii og Andrii Niko­laiev sem halda úti stærð­fræði­grúpp­unni Kvanta. Og spurn­ingin er ein­fald­lega: Hvernig verður þetta dæmi rétt með því að færa EINA eld­spýtu? Og athugið að rétta svarið felst EKKI í brellu eins og þeirri að færa eina eld­spýtu yfir sama­sem­merki svo að líti svona út: ≠. Heldur er þetta alvöru stærð­fræði! Og ég hall­ast að því að þrautin sé nokkuð erfið, svo gefið ykkur tíma!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hér kemur í raun­inni aðeins Oddný Harð­ar­dóttir til greina þar sem hún er eini þing­mað­ur­inn sem situr núna á þingi sem þetta á við — en þannig var spurn­ingin hugsuð. Glöggur maður benti mér þó á að það kæmi lík­lega ekki alveg nógu skýrt fram að ein­göngu væri átt við núver­andi þing­menn og því fæst rétt líka fyrir Benedikt Jóhann­es­son ef ein­hverjum dettur hann í hug. 

2.  Í Krúnu­leik­unum eða Game of Thrones.

3.  Kúba.

4.  Dante.

5.  Jóhannes Páll 2. var pólskur, Benedikt 16. þýskur, Frans er argent­ínskur.

6.  Litháar.

7.  Samar á Norð­ur­löndum.

8.  Tristan da Cunha.

9.  Össur Skarp­héð­ins­son.

10.  Bush eldri. USS George H.W. Bush var tekið í notkun 2009.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Kim Kar­dashian ásamt afa sínum. Hann hét Arthur Kar­dashian.

Og lausnin á neðri þraut­inni er svona:

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár