Bataferlið tók bakslag þegar lögregla afhenti gerandanum símann - „Stundum ekki til neinn matur og engar reglur né agi“

Stúlka sem lýsir aðstæðum þar sem faðir hennar var í fang­elsi og staða móður var slæm, hefur greint frá kyn­ferð­is­legri mis­notkun stjúp­föður. Sér­fræð­ingur segir ólík­legra að börn í slíkum kring­um­stæðum segi frá. Hún leidd­ist út í áhættu­hegðun, en reis upp þegar hún losn­aði undan aðstæð­unum. Stjúp­faðir hennar sætir ákæru, en bata­ferli stúlkunnar tók alvar­legt bakslag þegar lög­reglan lét hann fá sím­ann hennar.

Bataferlið tók bakslag þegar lögregla afhenti gerandanum símann - „Stundum ekki til neinn matur og engar reglur né agi“

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur þing­festi þann 14. febr­úar ákæru gegn karl­manni á fimm­tugs­aldri sem er gefið að sök að hafa margend­ur­tekið brotið kyn­ferð­is­lega gegn þáver­andi stjúp­dóttur sinni. Ætluð brot áttu sér stað á árunum 2016 til 2019 þegar stúlkan var 9 til 12 ára. Hún segir hann að jafn­aði hafa brotið á sér tvisvar í viku.

Heim­ildin hefur undir höndum vott­orð sál­fræð­ings í Barna­húsi vegna máls stúlkunnar sem var sent lög­regl­unni í nóv­em­ber á síð­asta ári vegna rann­sókn­ar­innar.

Maðurinn er ákærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn barni og stór­fellt brot í nánu sam­bandi með því að hafa á sam­eig­in­legu heim­ili þeirra mis­notað frek­lega yfir­burða­stöðu sína gagn­vart stúlkunni, traust hennar og trúnað sem stjúp­faðir og end­ur­tekið og á alvar­legan hátt ógnað heilsu hennar og vel­ferð. Hámarks­refs­ing við meintum brotum manns­ins er 16 ára fang­elsi sam­kvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum. Hann vildi ekki tjá sig um málið í sam­tali við Heim­ild­ina.

Sagðist hafa hent símanum

…

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ég er áskrifandi, en fæ aðeins að lesa inngang/upphaf greinanna. Hvers vegna?
    Ég nenni þessu ekki.
    0
    • HR
      Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
      ef innskráningin þín virkar ekki er kannski betra að skrifa tölvupóst til blaðsins en að kommenta við greinar.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár