Fúsk, misskilningur, óráðsíða eða ótti við breytingar?

Háskóli Íslands er und­ir­fjár­magn­aður og gæði náms í húfi. Ekki er ein­hugur um hvert fjár­munir eigi að renna eða með hvaða hætti. Ráðherra háskóla­mála þver­tekur fyrir að hafa tekið af rekstr­arfé skól­ans til að fjár­magna „gælu­verk­efni“, eins og deild­ar­for­seti innan skól­ans sakar hana um.

Fúsk, misskilningur, óráðsíða eða ótti við breytingar?
Háskóli Íslands Rektor HÍ hefur áhyggjur af fjár­mögnun háskóla­kerf­is­ins og tekur und­ir­það sjón­ar­mið að tryggja þurfi að kerfið sé vel fjár­magnað.

Umræða um und­ir­fjár­mögnun Háskóla Íslands (HÍ) er varla ný af nál­inni en hún tók óvænta stefnu þegar deild­ar­for­seti á Hug­vís­inda­sviði skól­ans gagn­rýndi Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra harð­lega í grein á Vísi fyrir stuttu. Talaði hann um fúsk og óráðsíu ráð­herr­ans. Hún seg­ist skilja gremjuna að ein­hverju leyti en telur „ekki skyn­sam­legt til að ná árangri í háskóla­málum að við­halda bara óbreyttu kerfi“. Jón Atli Bene­dikts­son, rektor HÍ, segir að margt jákvætt hafi komið út úr Sam­starfs­sjóði ráð­herra og tekur því ekki undir gagn­rýni Geirs hvað sjóð­inn varðar. Rektor ítrekar að háskól­inn sé und­ir­fjár­magn­aður en er bjart­sýnn á fram­haldið. 

Geir Sig­urðs­son, deild­ar­for­seti mála- og menn­ing­ar­deildar á Hug­vís­inda­sviði HÍ, skrif­aði harð­orða grein um málið í aðsendri grein á Vísi fyrir skömmu. Þar gagn­rýndi hann ráð­herra og benti á að Háskóla Íslands vant­aði millj­arð til að ná endum saman á þessu ári vegna nið­ur­skurðar háskóla­stigs­ins. Ljóst væri að nið­ur­skurð­ur­inn …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár