1064. spurningaþraut: Við hvað er hraunið mikla kennt?

1064. spurningaþraut: Við hvað er hraunið mikla kennt?

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða Ósk­arsverð­launa­kvik­mynd er skjá­skotið hér að ofan? Svarið þarf að vera nákvæmt.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver mál­aði fræg­ustu útgáf­una af Síðustu kvöld­mál­tíð­inni?

2.  Hvað ger­ist fyrsta sunnu­dag eftir fyrsta fulla tungl eftir vor­jafn­dægur?

3.  Livia Drusilla hefur verið nefnd fyrsta keis­ara­ynja Róma­veldis. Hver var eig­in­maður hennar?

4.  Söngv­ar­inn Reginald Kenneth Dwight heldur í dag upp á 76 ára afmælið sitt. En undir hvaða nafni þekkjum við hann?

5.  Í hvaða borg hefur alþjóða­dóm­stóll­inn aðsetur?

6.  Hvað voru and­stæð­ingar komm­ún­ista í borg­ara­stríð­inu í Rússandi 1918-1921 nefndir?

7.  Á hvaða skaga stendur borgin Múrmansk?

8.  Davíð Oddsson og Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir sátu bæði á Aþingi lengi vel. En auk þess að vera þing­menn gegndu þau líka bæði tveimur mik­ils­háttar og eft­ir­sóttum störfum. Hver voru þau störf? Nefna þarf bæði.

9.  Fyrir hvað er borgin Vichy í Frakk­landi fræg — eða öllu heldur alræmd?

10.  Fyrir 8.700 árum rann á Íslandi gíf­ur­legt hraun, það mesta sem runnið hefur á Jörðinni í einu gosi frá því ísöld lauk. Hraunið er víða horfið undir yngri hraun eða hefur veðr­ast mikið,svo það er ill­sjá­an­legt nema fyrir sér­fræð­inga, en við hvaða á er þetta geysi­lega hraun kennt?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða geysi­vin­sæla rokk­hljóm­sveit treður hér upp?

***

Aðal­spurn­inga­svör:

1.  Leonardo da Vinci.

2.  Þá er páska­sunnu­dagur.

3.  Ágústus.

4.  Elton John.

5.  Haag í Hollandi.

6.  Hvít­liðar.

7.  Kóla­skaga.

8.  Þau voru bæði borg­ar­stjórar í Reykja­vík og utan­rík­is­ráð­herrar.

9.  Hún var höf­uð­borg lepp­ríkis Þjóð­verja í seinni heims­styrj­öld.

10.  Þjórsá. Það er nefnt Þjórs­ár­hraunið mikla.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er úr Guð­föð­urnum 2.

Neðri myndin er af hljóm­sveit­inni Ramm­stein.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár