Sér fram á að fara með YouTube-skattaskuld í gröfina

Líf­eyr­is­þegi og fyrr­ver­andi sjó­maður á Stokks­eyri þarf að greiða um tvær millj­ónir króna til skatts­ins vegna tekna sem hann hafði af gríð­ar­lega vin­sælli YouTube-rás sinni árið 2019. Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Birgir Rúnar Sæmunds­son að hann telji skatta­yf­ir­völd ganga hart fram gegn nær eigna­lausum eldri borg­ara. Hann hefur samið um greiðslur af skuld­inni sem ná ekki að dekka vext­ina sem falla til í hverjum mán­uði.

Sér fram á að fara með YouTube-skattaskuld í gröfina
Fiskari Birgir Rúnar Sæmunds­son fékk hátt í fjórar millj­ónir króna í tekjur af YouTube-mynd­böndum árið 2019. Honum grun­aði ekki að tekj­urnar, sem ekki var tek­inn skattur af í Banda­ríkj­unum, gætu verið skatt­lagðar á Íslandi.

Fishing in Iceland heitir ein vin­sælasta YouTube-rásin sem er í eigu Íslend­ings. Henni er haldið úti af Birgi Rúnari Sæmunds­syni, 68 ára gömlum fyrr­ver­andi sjó­manni á Stokks­eyri. Á rás hans má í dag finna sjö mynd­bönd sem Birgir hefur sjálfur tekið við störf sín á sjó á und­an­förnum árum. Sam­an­lagt eru þau með rúm­lega 102 millj­ónir áhorfa, en 258 þús­und not­endur mið­ils­ins eru áskrif­endur að mynd­böndum Birgis.

Vin­sæld­irnar sem rásin á YouTube náði hafa nú sett per­sónu­legan fjár­hag Birgis, sem hætti á sjó fyrir þremur árum vegna veik­inda og er í dag elli­líf­eyr­is­þegi, í upp­nám. Undir lok jan­ú­ar­mán­aðar kvað yfir­skatta­nefnd upp úrskurð varð­andi aug­lýs­inga­tekjur sem Birgir hafði af umferð­inni um YouTube-aðgang­inn á árinu 2019 og stað­festi ákvörðun rík­is­skatt­stjóra um að Birgi bæri að greiða skatt, auk 25 pró­senta álags, af tæp­lega fjög­urra millj­óna króna tekjum.

Skuldin sem Birgir situr uppi með við skatt­inn nemur um tveimur millj­ónum króna. …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár