1029. spurningaþraut: Hljómsveitin Sycamore Tree, orrustuþotur og fleira

1029. spurningaþraut: Hljómsveitin Sycamore Tree, orrustuþotur og fleira

Fyrri auka­spurn­ing:

Af hvaða teg­und var flug­vélin sem þarna er orðin flak eitt?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Íslenska hljóm­sveitin Sycamore Tree hefur starfað í mörg ár en ekki alltaf verið áber­andi. Þetta er í raun dúet og nýtur nú vin­sælda fyrir lagið How Does It Feel? Söngkona hljóm­sveit­ar­innar er ekki síður kunn fyrir leik en söng. Þó var frami hennar kannski mestur er hún lék söng­konu. Hún heitir ... hvað?

2.  Hinn partur dúets­ins er hins vegar þekktur fata­hönn­uður auk þess að vera tón­list­ar­maður. Hann hefur og barist fyrir hag heim­il­is­lausra. Hann heitir ... hvað?

3.  Í hvaða landi er orr­ustu­völl­ur­inn Waterloo?

4.  Hvaða hers­höfð­ingi telst vera sig­ur­veg­ari í orr­ust­unni við Waterloo?

5.  Úkra­ínu­menn hafa óskað eftir því að fá banda­rískar orr­ustu­þotur sér til hjálpar gegn inn­rás Rússa. Því hefur verið heldur treg­lega tekið af Banda­ríkja­mönnum en hvað kall­ast þessar þotur?

6.  Paavo Nurmi var ótrú­legur íþrótta­maður á þriðja ára­tug 20. aldar. Hann setti þá 22 heims­met og vann 9 gull­verð­laun á ólymp­íu­leikum. Í hverju keppti Nurmi? Hér þarf svarið að vera þokka­lega návæmt.

7.  Frá hvaða landi var Nurmi?

8.  Í hvaða fljóti er Detti­foss?

9.  Til er á lat­ínu bók, ann­að­hvort frá fyrstu eða fimmtu öld eftir Krist, og er Apicius nokkur sagður höf­undur hennar. Fátt er varð­veitt af svo gömlum bókum af þessu tagi, en bókin nefn­ist De re culinaria. Hvernig bók er þetta?

10.  Yupik, Kerasan, Zuni, Oodham, Ojibwe og Hopi eru allt tungu­mál sem töluð eru í einu og sama rík­inu, þótt vissu­lega séu þau ekki útbreidd­ustu málin í því ríki. Hvaða ríki er það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er sú hin hlát­ur­milda kona?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ágústa Eva.

2.  Gunnar Hilm­ars­son eða ein­fald­lega Gunni Hilmars.

3.  Belgíu.

4.  Wellington. Blücher kom og við sögu en Wellington telst hafa verið honum æðri.

5.  F-16. Þær ku nefndar Fighting Falcon en óþarfi er að vita það.

6.  Milli­vega­lengda- og/eða lang­hlaup­ari. Hann hljóp í raun­inni varla nokkurn tíma heilt mara­þon-haup og fékk ekki verð­laun fyrir slíkt svo „mara­þon-hlaup“ dæm­ist ekki rétt svar. Og „hlaup“ duga ekki. Þið fáið hins vegar rétt fyrir hvorttveggja — „milli­vega­lengdir“ og „lang­hlaup“.

7.  Finn­landi.

8.  Jökulsá á fjöllum.

9.  Mat­reiðslu­bók.

10.  Banda­ríkin. Þetta eru nokkur af tungu­málum inn­fæddra (Indíána).

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er flakið af DC-3 vél­inni á Sól­heima­sangi. Eric Cheng tók mynd­ina með dróna.

Á neðri mynd­inni hlær leik­konan Jennifer Aniston.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár