1028. spurningaþraut: Tilgangslaus barátta við ímyndaðan óvin

1028. spurningaþraut: Tilgangslaus barátta við ímyndaðan óvin

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heita þessar film­stjörnur? Hafa verður nöfnin á þeim báðum rétt, ann­ars fæst ekk­ert stig.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er spyrill í Gettu betur þetta árið?

2.  Afar fáar konur hafa kom­ist til raun­veru­legra valda í Kína mjög lengi. Um tíma á seinni hluta 20. var Jiang Qing þó í hópi helsta valda­fólks í land­inu. Í krafti hvers komst hún upp­haf­lega til áhrifa?

3.  Jiang Qing heyrði til hópi sem virt­ist um tíma þess albú­inn að ná öllum helstu völdum í land­inu stóra. Hvað var hóp­ur­inn kall­aður?

4.  Hvaða heitir höf­uð­borgin í Nepal?

5.  Hjónin Roy og Gaye Raymond stofn­uðu búð í Palo Alto í Kali­forníu 1977. Búðin var helguð til­teknum varn­ingi og gekk strax vel. Árið 1982 voru búð­irnar orðnar fimm og þá seldu hjónin fyr­ir­tækið Leslie nokkrum Wexner. Óhætt er að segja að hann hafi sigrað heim­inn með búða­keðj­unni og nú eru meira en 1.000 búðir bara í Banda­ríkj­unum og fjöld­inn allur víða um ver­öld. Wexner hefur hins vegar sætt vax­andi gagn­rýni fyrir stjórn­ar­hætti sína, ekki síst gagn­vart konum sem þykir sér­lega slæmt af því langstærstur hluti við­skipta­vina eru konur. Hvað heitir búða­keðjan?

6.  Hversu löng var sprungan sem Skaft­ár­eldar komu úr 1783? Var hún 2,5 kíló­metrar, 5 kíló­metrar, 7,5 kíló­metrar, 10 kíló­metrar, 15 kíló­metrar, 20 kíló­metrar eða 25 kíló­metrar?

7.  Hver skrif­aði skáld­sög­una um Don Kíkóta?

8.  Frá þeirri sögu er runnin ein fræg­asta tákn­mynd bók­mennt­anna um til­gans­lausa bar­áttu við ímynd­aðan óvin. Hver er sú tákn­mynd?

9.  Alex Jones, Graham Coxon og Dave Rowntree stofn­uðu hljóm­sveit árið 1988. Þeir eru enn í hljóm­sveit­inni, ásamt reyndar fjórða karl­inum og þeim fræg­asta. Hvað heitir hljóm­sveitin.

10.  Og hvað heitir þá kunn­ingi okkar, fjórði hljóm­sveit­ar­k­ar­l­inn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi eyja­klasi? Til fróð­leiks má skjóta því að höf­uð­borg eyja­kla­s­ans (Malé, 143.000 íbúar) má sjá þarna.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Krist­jana Arn­ars­dóttir.

2.  Hún var eig­in­kona Maós for­manns.

3.  Fjór­menn­inga­klíkan, Gang of Four.

4.  Katmandú.

5.  Victoria's Secret.

6.  25 kíló­metrar.

7.  Cervantes.

8.  Barátta Don Kíkóta við vind­myll­urnar.

9.  Blur.

10.  Damon Albarn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á neðri mynd­inni eru Julia Roberts og George Clooney.

Á neðra skjá­skot­inu eru Maldíva-eyjar í Ind­lands­hafi. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár