1002. spurningaþraut: Hvað gerist næst?

1002. spurningaþraut: Hvað gerist næst?

Fyrri auka­spurn­ing:

Skoðið mynd­ina hér að ofan. Hvað ger­ist næst?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir heitir kona ein sem reglu­lega kemur fram í fjöl­miðlum að ræða atvinnu sína og áhuga­mál. Núorðið kallar hún sig reyndar ævin­lega Siggu Dögg opin­ber­lega, jafnt og í einka­líf­inu. Um hvað snýst hennar atvinna?

2.  Önnur Sigríður Dögg er Auð­uns­dóttir og birt­ist líka reglu­lega í fjöl­miðlum. Hvar vinnur hún?

3.  Undarleg upp­á­koma varð á dög­unum þegar Sig­mundur Davíð for­maður Mið­flokks­ins vakti athygli á því að á glæru í skóla nokkrum virt­ist hann tal­inn til „merkra þjóð­ern­is­sinna“ ásamt þýska for­ingj­anum Adolf Hitler og Mus­sol­ini leið­toga ítal­skra fas­ista. Um hvaða skóla var hér að ræða?

4.  Hvað hét Mus­sol­ini ann­ars að skírn­ar­nafni?

5.  Hákarlar eru ekki bein­fiskar, heldur kall­ast þeir ... hvað?

6.  Hvaða aðrir stórir fiskar flokk­ast einnig í þann sama flokk?

7.  Árið 2016 gaf íslenska hljóm­sveitin Milkywhale út fyrstu og hingað til einu plötu sína. Meðlimir voru tveir, Melkorka Sigríður og Árni Þór, og fluttu þau „súper­popp, ekta dans­tón­list“ eins og Melkorka sagði í blaða­við­tali. Nokkra athygli vakti að einn fremsti og verð­laun­að­asti skáld­sagna­höf­undur þjóð­ar­innar samdi texta fyrir Milkywhale en text­arnir voru allir á ensku. Hver var sá texta­höf­undur?

8.  Hvaða ár var tón­list­ar­há­tíðin Iceland Airwaves haldin fyrst? Hér má muna tveim árum til eða frá?

9.  Belgrad er höf­uð­borg ... hvaða ríkis?

10.  Umhverfis hvað snýst him­in­hnött­ur­inn Deimos?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá stjórn­mála­mann sem nýlega hefur látið af störfum — ekki með glöðu geði. Hvað heitir hann?

***

Svör við auka­spurn­ingum:

1.  Kynlíf.

2.  Hjá RÚV eða Kast­ljósi. Hvorttveggja er rétt. Kveikur er hins vegar ekki rétt, því Sigríður Dögg er ekki hluti af þeim frétta­manna­hópi.

3.  Versl­un­ar­skóli Íslands.

4.  Benito.

5.  Brjósk­fiskar.

6.  Skötur.

7.  Auður Ava.

8.  1999 — svo rétt er 1997-2001.

9.  Serbíu.

10.  Mars.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Rétt svar við fyrri spurn­ing­unni er að konan var myrt. Rétt má líka vera ef fólk vill svara að vatn hafi farið að renna því þetta er byrj­unin á sturtu­sen­unni frægu úr kvik­mynd­inni Psycho.

Sturtu­senan úr Psycho

Á neðri mynd­inni er Bol­son­aro, fyrr­ver­andi for­seti Brasilíu.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár