1001. spurningaþraut: Hvernig er 1001 skrifað með rómversku letri?

Fyrri auka­spurn­ing:

Frá hvaða sögu­lega kirkju­stað er myndin hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvernig er 1001 skrifað með róm­verkum tölum?

2.  Hvað kall­ast sagna­ritið Þúsund og ein nótt yfir­leitt í enskri þýð­ingu?

3.  Hvað heitir konan sem þar segir sögur í þús­und og eina nótt?

4.  Hvað heitir sá fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dana sem nú gegnir emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra í Danmörku?

5.  Í Idol-stjörnu­leit á Stöð 2, sem nú fer fram, eru fjórir dóm­arar. Þeir eru Birgitta Haukdal, Bríet, Daníel Ágúst, GDRN og Herra Hnetu­smjör. Hér taldi ég reyndar upp fimm tón­list­ar­menn. Hvert þeirra er EKKI dóm­ari í Idol-stjörnu­leit að þessu sinni?

6.  Hver af þessum fimm borgum á Englandi er áber­andi syðst á heimskringl­unni? Birming­ham, Leeds, Liverpool, Manchester, Sheffi­eld.

7.  Lísa Páls­dótttir er nýhætt með lang­lífa og vin­sæla þætti um arki­tektúr og skipu­lag á Rás eitt. Hvað nefnd­ust þættir hennar?

8.  Elsa María Jak­obs­dóttir frum­sýndi nýlega kvik­mynd sem náð hefur heil­miklum vin­sældum. Hvað heitir hún? 

9.  Sus Domestcus er lat­neskt fræði­heiti yfir alþekkt hús­dýr. Hvað köllum við dýrið á íslensku?

10.  Í gær birt­ist hér spurn­ing frá Þorfinni Ómars­syni um hvaða hlut­verk sömu per­sónu tveir amer­ískir kvik­mynda­leik­arar hefðu nýlega leikið og báðir fengið Ósk­arsverð­laun fyrir. En slíkt hafði raunar gerst einu sinni áður — tveir leik­arar (karlar eða konur) léku sömu per­sónu hvor í sinni mynd­inni og fengu báðir Óskar fyrir. Og hlut­verk hvaða per­sónu var það?!

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða sagna­heimi/bíó­myndum/teikni­mynda­sögum er þessi vel tennta vera?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  MI.

2.  Arabian Nights.

3.  Sérasade.

4.  Lökke Rasmus­sen.

5.  GDRN er ekki dóm­ari í Idol.

6.  Syðsta borgin er Birming­ham.

7.  Flakk.

8.  Villi­bráð.

9.   Svín.

10.  Þeir Marlon Brando og Robert de Niro fengu báðir Óskar fyrir hlut­verk Vito Corleone í mynd­unum Guð­föð­urnum 1 og 2.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin var tekin að Reyk­holti í Borg­ar­firði.

Persónan á neðri mynd­inni birt­ist í annarri eða báðum bíó­mynd­unum sem í sam­ein­ingu eru nefndar Avatar.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár