Fréttablaðið ekki lengur borið í hús

Útgáfa Frétta­blaðs­ins tók stakka­skiptum um ára­mót en hætt hefur verið að dreifa því í hús. Þess í stað verður blaðið aðgengi­legt í versl­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Akureyri.

Fréttablaðið ekki lengur borið í hús
Bjart­sýnn Jón Þórisson, for­stjóri Torgs og fyrr­ver­andi rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, segir enga ástæðu að ætla að lest­ur­inn muni drag­ast saman, þó frídreif­ingu blaðs­ins í hús sé hætt. Mynd: Fréttablaðið / Anton Brink

Frétta­blaðið hefur verið borið í hús í síð­asta sinn en nú um ára­mót varð grund­vall­ar­breyt­ing á útgáfu þessa rúm­lega tveggja ára­tuga gamla frí­blaðs. Í stað frídreif­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Akureyri verður blaðið skilið eftir í bunkum í versl­unum og ýmsum þjón­ustu­stöðum, svo sem sund­laugum og heil­brigð­is­stofn­unum. Þetta kemur fram á vef Frétta­blaðs­ins í dag. 

Haft er eftir Jóni Þóris­syni, for­stjóra Torgs, út­gáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins, DV og  Hring­brautar, að dreif­ingin sé óhemju kostn­að­ar­söm, en hann til­tekur líka að horft hafi verið til þess að dreif­ing­unni fylgdi óþarfa sóun. „Það er í takti við vax­andi um­hverfis­vit­und að lág­marka kol­efnis­spor í okkar starf­semi,“ er haft eftir Jóni á vef Frétta­blaðs­ins. 

Hann seg­ist ekki eiga von á því að lest­ur­inn muni dala við þessa breyt­ingu. „Það er engin á­stæða til að ætla annað en lest­ur­inn gæti orðið að minnsta kosti sam­bæri­legur eftir þessa breyt­ingu,“ segir hann við Frétta­blaðið og vísar til þess að aukn­ing varð á lestri blaðs­ins síð­ustu tvo mán­uði. Samkvæmt lestr­ar­könnun Gallup lesa um 28 pró­sent lands­manna blaðið en 27 pró­sent lestur mæld­ist í sept­em­ber. 

Þrátt fyrir þessa sveiflu á milli mán­aða verður ekki annað sagt en að lest­ur­inn hafi hrunið síð­ustu ár. 30,5 pró­sent lásu blaðið í nóv­em­ber á síð­asta ári, 33,8 pró­sent árið þar áður og 37,1 pró­sent í nóv­em­ber árið 2019. Útgáfan var lengi með yfir 50 pró­senta lestur en hefur ekki náð slíkum hæðum síðan undir lok árs 2015.

Samhliða minnk­andi lestri hefur verið við­var­andi tap á rekstri útgáfu­fé­lags­ins. Torg tap­aði árið 2021 var rúmar 252 millj­ónir, sem þó var tals­vert betri afkoma en árið áður, þegar tapið nam 600 millj­ónum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Á. skrifaði
    Tiltekt og þrif eftir Blaðarusl Fréttablaðsins og Morgunblaðsins sem skilið er eftir í mínu fjölbýlishúsi, er óvinsælasta skylduverk allra í húsinu.
    Næst óvinsælast er að moka snjóinnn frá inngangi hússins.
    Einnig er síður vinsælt að líta eftir sorptunnunum þó flestir láti sig nú hafa það.

    Þau ykkar sem ekki fengu þessi blöð í sín fjölbýlishús mega vera fegin að hafa ekki fengið þettat rusl í sameignina ykkar og það sem fylgir því á hverjum einasta aðalfundi húsfélagsins að skammast sé yfir hversu illa fólk stendur sig að þrífa þetta upp og koma blaðaruslinu í rétta sorptunnu.

    Sumir láta þetta nefnilega bara fara í gráu tunnuna. Sorphirðan svarar síðan með því að neita að hirða sorpið nema að íbúar hússins taki allt sorpið sitt upp úr tunnunum og flokki það rétt.

    Þú getur rétt ímyndað þér hversu vinsælt það er, að banka uppá hjá öllum íbúum og spyrja hvort þau hafi sett pappírsruslið í gráu tunnuna. Flestir berhentir að fiska hvern úldinn ruslapokann á fætur öðrum upp úr tunnunum, með hálsinn og höfuðuðið sveigt frá óþefnum, anda djúpt inn og stinga sér síðan ofan í tunnuna eftir öðrum ýldupoka.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár