Sótthreinsuð frásögn bankastjóra sem vill endurskrifa söguna

Lárus Welding, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitnis, reynir að hvít­þvo banka­menn af ábyrgð á efna­hags­hrun­inu árið 2008 í nýrri bók sinni. Hann segir að Ísland hafi lent í efna­hags­ham­förum líkt og svo margar aðrir þjóðir árið 2008 og að banka­hrunið á Íslandi hafi ekki verið ein­stakt heldur liður í stærri sögu. Lárus heldur því fram að sam­særi gegn íslenskum banka­mönnum hafi átt sér stað í kjöl­far hruns­ins, allt í þeim til­gangi að finna blóra­böggla.

Sótthreinsuð frásögn bankastjóra sem vill endurskrifa söguna
Hvít­þvott­ar­bók Lárus Welding hefur skrifað hvít­þvott­ar­bók fyrir banka­menn þar sem alls­herj­ar­sam­særi ein­stak­linga og rík­is­stofn­ana gegn þeim er lýst.
Uppgjör banka­mannsHöfundur: Lárus Welding 345 blað­síður Útgef­andi: Almenna bóka­fé­lagið

Lárus Welding er maður sem margir hér á landi hafa örugg­lega haft vissa samúð með. Hann var gerður að banka­stjóra Glitnis, ein­ungis þrí­tugur að aldri, við yfir­töku fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins FL Group á bank­anum vorið 2007.

Gögn sem urðu opin­ber eftir hrun sýndu að Lárus var frá byrjun undir mik­illi pressu frá FL Group og stjórn­ar­for­manni félags­ins, Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, að gera það sem honum var sagt. Allir, sem vildu vita það, vissu að á þessum tíma var Jón Ásgeir valda­mesti mað­ur­inn í Glitni og ráð­andi aðili í bank­anum í gegnum eign­ar­hald Baugs á FL Group. 

Í tölvu­pósti til Jóns Ásgeirs strax í júní 2007 kvart­aði Lárus yfir því að stjórn­ar­for­mað­ur­inn kæmi fram við hann „frekar eins og úti­bús­stjóra en for­stjóra“. Tölvu­póst­arnir sýndu að sam­skipti Lárusar og Jóns Ásgeirs voru eins og sam­band …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Hver skrifaði þessa ágætu grein?? Margt er hér til umhugsundar.
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Góða fólkið og vonda fólkið... enn eina ferðina ? Hvernig væri nú að skoða af hverju bankarnir hrundu raunverulega... því þeir stóðu margfalt betur en erlendir kollegar þeirra.... sem ekki hrundu. Ekki það að banksterarnir okkar eigi hrós skilið fyrir fyrirhyggju og aðgæsluleysi... en er ekki kominn tími til að gá hvort það voru bara bakarar og smiðir sem voru bullandi sekir... og draga hina seku sem sitja enn pattarlegir í mikilmennskubrjálæði sínu til ábyrgðar. Því enn í dag eru sömu leikirnir spilaðir.

    Það var ...og er mjög auðvelt að sjá hversu stóran hluta Deutsche bank AG spilaði í málinu... ef þið látið af besservisserdæminu og farið í alvöru rannsóknir... sem þýðir að þið þurfið að spyrja til vegar... ekki bara hvora aðra eða erlenda sjálfskipaða sérfræðinga sem skrifa bækur af verulegri vanþekkingu.

    Og blessaður karlinn hann (Sigurjón var það ekki ?) sagði bara sannleikann á sínum tíma.... Deutche Bank stillti þeim upp við vegginn og tók þá svo af lífi... og fór hlægjandi burtu með lágmarksskaða.. í boði sjálfsblekkingar landans.

    Og Steingrímur kórónaði andskotann með því að vilja selja bretum sjálfsdæmi og gaf Magma gullið.... og þið sjáið það ekki ennþá ????
    -5
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Lárus fékk 300 milljónir í "komugjald" til Glitnis; fyrir það eitt að ráða sig til bankans. Um 600 milljónir á gengi dagsins. Flestir gætu sest í helgan stein með þá upphæð í handraðanum. Kemur þetta fram í bókinni?
    5
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Uppseld hjá forlaginu erþaggi? Hver kaupir? Það er auðvitað mannlegt að reyna bera í bætifláka fyrir sjálfan sig. Ég hefði keypt bók með afsökunarbeiðni og loforði um hrúgu af peningum inn í samfélagskerfin okkar. Sumir kunna bara ekki að skammast sín🤬
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár