Nýr færeyskur fjölmiðill: „Löngu tímabært“

Þrír fyrr­ver­andi starfs­menn Kringvarps­ins í Færeyjum hættu hjá rík­is­miðl­inum og stofn­uðu sinn eigin miðil í sam­starfi við danskan rann­sókn­ar­blaða­mann. Í sam­tali við Stundina segja þau þörf­ina á gagn­rýn­inni og öfl­ugri rann­sókn­ar­blaða­mennsku sjaldan meiri en einmitt núna.

Nýr færeyskur fjölmiðill: „Löngu tímabært“
Blása í her­lúðra Jan Lamhauge, Barbara Holm og Rólant Waag eru aðstand­endur hins nýja fær­eyska fjöl­mið­ils Fri­hed­bre­vet. Öll hafa þau komið að rann­sókn og umfjöllun stærstu frétta­mála eyj­anna und­an­farin ár. En það hefur líka kostað sitt og nú telja þau full­reynt að sinna slíkri blaða­mennsku í núver­andi fjöl­miðlaum­hverfi. Mynd: frihedsbrevet.fo

„Þetta er okkar til­raun til þess að geta með góðu móti sinnt blaða­mennsku sem við viljum og teljum að þurfi að sinna hér, sem er rann­sókn­ar­blaða­mennska. Að for­svars­menn Fri­heds­bre­vet í Danmörku hafi verið til í þetta var bara of gott til að sleppa því,“ segir Barbara Holm, rit­stjóri nýs fær­eysks vef­mið­ils, fri­heds­bre­vet.fo, sem hleypt var af stokk­unum þann 1. des­em­ber.

Ný tilraun í Færeyjum

Vef­mið­ill­inn er áskrift­ar­mið­ill sem veitir ein­göngu aðgang til áskrif­enda en birtir ekki aug­lýs­ingar.

„Það er nýtt að fjöl­mið­ill hér fjár­magni sig með áskrift ein­göngu, en ekki aug­lýs­ingum. Sér­stak­lega á net­inu, en okkur finnst það til­raun­ar­innar virði og við sjáum hvernig það hefur gef­ist hjá Fri­heds­bre­vet í Danmörku, auk þess sem það er það form sem er að taka yfir víðs vegar um heim­inn,“ segir Barbara, sem leggur áherslu á að með því að hafna bæði aug­lýs­ingum og opin­berum styrkjum, telji þau sig geta …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár