Rússneska sendiherranum stefnt í utanríkisráðuneytið til að taka við skömmum

Íslenska utan­rík­is­ráðu­neytið kall­aði rúss­neska sendi­herr­ann hér á landi á fund í dag þar sem honum var sagt að íslenska ríkið for­dæmi harð­lega til­raunir til að inn­lima úkra­ínsk land­svæði í Rússland.

Rússneska sendiherranum stefnt í utanríkisráðuneytið til að taka við skömmum
Utan­rík­is­ráð­herra Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir er utan­rík­is­ráð­herra Íslands. Ekki kemur fram í til­kynn­ingu ráðu­neytis hennar hvort hún hafi sjálf rætt við sendi­herra Rúss­lands í dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

Rúss­neski sendi­herr­ann var kall­aður á fund í íslenska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í dag vegna inn­limunar Rússa á hér­uðum í aust­ur­hluta Úkraínu. Þar fékk sendi­herr­ann að heyra að íslensk stjórn­völd for­dæmi harð­lega til­raunir til að inn­lima land­svæði í Úkraínu og gervi atkvæða­greiðsl­una sem fram hafi farið í algjörri and­stöðu við alþjóða­lög. 

Þetta kemur fram á Twitter-síðu þar sem utan­rík­is­ráðu­neytið birtir til­kynn­ingar á ensku. Ekki hefur neitt birst frá ráðu­neyt­inu um málið á íslensku. Þá liggur ekki fyrir hvort það hafi verið Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sjálf sem átti í orða­skiptum við rúss­neska sendi­herr­ann. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Samkvæmt rúv var utanríkisráðherrann ekki viðstaddur. Reynt að víkja sér undan óþægilegum verkum?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu