963. spurningaþraut: „Þetta eru endalok heimsins eins og við þekkjum hann“

963. spurningaþraut: „Þetta eru endalok heimsins eins og við þekkjum hann“

Fyrri auka­spurn­ing:

Á skag­anum fyrir miðri mynd eru tvö ríki. Hvað heita þau?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „Afar fögur er mær þessi og munu margir þess gjalda. En hitt veit ég eigi hvaðan þjófs­augu eru komin í ættir vorar.“ Um hvaða konu var þetta sagt?

2.  Hvað hét sú söngva­mynd fyrir börn sem frum­sýnd var í sept­em­ber síð­ast­liðnum?

3.  Í mynd­inni var, eins og svo gjarnan, stuðst við eldra verk. Hvað var það og hver sendi það frá sér?

4.  Japanska kvik­myndin 隠し砦の三悪人 eða Leyni­virkið var frum­sýnd 1958. Þetta er dramat­ísk ævin­týra­mynd úr for­tíð­inni þar sem segir frá tveim bændum sem taka að sér að fylgja karli og konu yfir víg­línu óvina í stríði, en vita ekki að karl­inn er mik­il­vægur hers­höfð­ingi og konan prinsessa. Tuttugu árum seinna var frum­sýnd önnur kvik­mynd í öðru landi sem fékk mjög margt að láni úr Leyni­virk­inu. Leik­stjóri hennar fór heldur ekk­ert í felur með aðdáun sína á japönsku mynd­inni. Nýja myndin var geysi­vin­sæl. Hvaða mynd er þetta?

5.  Leik­stjóri Leyni­virk­is­ins var hins vegar einn allri fremsti kvik­mynda­gerð­ar­maður Japana sem gerði fjölda mynda allt frá Rashomon og Sjö sam­úræjum til Dersu Uzala, Kaga­musha og Ran. Hvað hét hann?

6.  Hvað hét fyrsti leið­togi Sov­ét­ríkj­anna?

7.  Hver er rit­stjóri Kveiks hjá Rík­is­út­varp­inu?

8.  „It's the end of the world as we know it,“ söng og lék vin­sæl hljóm­sveit árið 1987. Hvaða hljóm­sveit?

9.  En hvernig var fram­haldið: „It's the end of the world as we know it, and ...“ hvað?

10.  Hann varð keis­ari í landi einu árið 1888, 29 ára gam­all. Árið 1918 sagði hann af sér eftir 30 ár á valda­stóli og bjó svo í útlegð í nágranna­ríki í 22 ár til við­bótar. Svo dó hann, flestum gleymdur 1941. Hvað hét hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist þessi sort af límús­ínu?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1. Hall­gerði lang­brók.

2.  Abbababb.

3.  Barna­plötu (hljóm­plötu) Dr. Gunna.

4.  Star Wars.

5.  Kurosawa.

6.  Lenín.

7.  Þóra Arn­órs­dóttir.

8.  REM.

9.  „I feel fine.“

10.  Vil­hjálmur — altso Þýska­landskeis­ari.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Kóreu­skagi og ríkin heita Suður-Kórea og Norður-Kórea. Skaginn snýr að vísu „öfugt“ á mynd­inni — suður snýr upp en norður niður.

Á neðri mynd­inni er Zil-limús­ínan sem fram­leidd var í Sov­ét­ríkj­unum og síðar Rúss­landi.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár