929. spurningaþraut: Leika kýrnar við hvern sinn fingur?

929. spurningaþraut: Leika kýrnar við hvern sinn fingur?

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „Og kýrnar leika við hvurn sinn fíngur.“ Hver samdi?

2.  Í fornöld var uppi frægur her­for­ingi sem Hannibal hét, erkió­vinur Rómverja. Nafn hans er og verður ævin­lega tengt einni til­tek­inni her­ferð sem hann fór yfir fjöll nokkur. Hvaða fjöll?

3.  Í því sam­bandi verður hann líka alltaf tengdur ákveð­inni dýra­teg­und. Hvaða dýra­teg­und er það?

4.  En í hvaða ríki eða borg var Hannibal þessi leið­togi?

5.  Hvaða krydd heitir á erlendum málum cinnamon?  

6.  Hver sendi frá sér skáld­sög­una 101 Reykja­vík árið 1996?

7.  Árið 1955 olli kona nokkur þátta­skilum í rétt­inda­bar­áttu svarta í Banda­ríkj­unum með því að neita standa upp fyrir hvítum manni í strætó. Hvað hét þessi kona?

8.  Hvaða risa­fyr­ir­tæki á sam­skipta­for­ritið WhatsApp?

9.  Hvaða trú­ar­brögð eru útbreidd­ust í Litháen?

10.  Við lok mið­alda voru háir hælar mjög í tísku fyrir konur í Feneyjum og voru þeir allt að 30 sentí­metra háir. Einum hópi kvenna var þó strang­lega bannað að ganga í slíkum skóm. Hvaða hópur var það? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir höllin á mynd­inni hér að neðan?

***

Aðal­spurn­ingar, svör:

1.  Halldór Laxness.

2.  Alpa­fjöll. 

3.  Fílar — sem hann hafði með sér í her­ferð­inni yfir fjöllin.

4.  Karþagó.

5.  Kanill.

6.  Hall­grímur Helgason.

7.  Rosa Parks. 

8.  Facebook, Meta. Hvorttveggja telst rétt.

9.  Kaþólska.

10.  Barns­haf­andi konum. Ekki mátti taka þá áhættu að þær dyttu í þessum afar háum skóm.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið er úr kvik­mynd­inni Schindler's List.

Höllin heitir Westminster.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár