928. spurningaþraut: Gullkálfur? Alaska? Leikhús í London?

Fyrri auka­spurning:

Hvað er að sjá á myndinni hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hvers konar vörur eru Ray-Ban?

2.  Hver er algengasti misskilningurinn sem fólk er haldið um víkinga?

3.  Hvaða hópur eða ættbálkur skapaði kálf úr gulli?

4.  Hvaða land skiptist í tvennt um 38. breiddar­gráðu norður?

5.  Í hvaða borg er Vasa-safnið?

6.  Vilhjálmur Finsen varð ritstjóri nýs blaðs á Íslandi árið 1913. Hvaða blaðs?

7.  Á næsta ári verður frumsýnd ný sería af vönduðum bandarískum glæpa­þáttum, True Detective, tekin að hluta upp hér á landi. Heimsfræg leikkona mun leikur aðal­hlutverk í þáttunum. Hver er hún?

8.  Fyrsta serían af True Detective var sýnd 2014. Hún snerist um tilraunir tveggja lögreglu­manna til að leysa snúið glæpamál. Annan þeirra lék Woody Harrelson, en hver lék hinn?

9.  Af hverjum keyptu Banda­ríkin Alaska á sínum tíma? Var það af Bretum —  Frökkum — frum­byggjum — Japönum — Kanada­mönnum — Rússum - eða Spán­verjum?

10.  Hvað nefndist leikhús Shakespeares í London?

***

Seinni auka­spurning:

Hvað heitir konan sem stígur hér dans?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Sólgleraugu.

2.  Að þeir hafi verið með horn á hjálmum sínum.

3.  Ísraels­menn, Hebrear, Gyðingar — allt rétt!

4.  Kórea.

5.  Stokk­hólmi.

6.  Morgun­blaðsins.

7.  Jodie Foster.

8.  Matthew McConaughey.

9.  Rússum.

10.  Globe.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er Rosettu-steinninn svonefndi sem gerði mönnum kleift að ráða mynd­letrið í Egifta­landi.

Á neðri myndinni stígur Jósefína dans við eiginmann sinn, Napóleon Bónaparte. Jósefína dugar í þessu tilfelli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár