916. spurningaþraut: Til hvers er nikótín?

916. spurningaþraut: Til hvers er nikótín?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða bygg­ing er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Eskilos hét forn-Grikki einn og á sér trausta stöðu í menn­ing­ar­sögu mann­kyns­ins. Hvað gerði Eskilos sér til frægðar?

2.  En auk þess er dán­ar­or­sök Eskilosar víðkunn, enda er ekki vitað til þess að nokkur annar maður í heim­inum öllum hafi dáið með sama hætti. Þar kemur örn við sögu. Hvernig dó Eskilos?

3.  Guðríður Sím­on­ar­dóttir (1598-1682) var víð­förul kona þó ekki kæmi það til af góðu. Hvers vegna lagð­ist Guðríður í ferða­lög?

4.  Eftir að Guðríður sneri heim úr ferða­lögum gekk hún að eiga efni­legan pilt. Hvað hét sá?

5.  Nissan-bílar eru upp­haf­lega frá ... Danmörku? — Belgíu — Japan — Þýska­landi?

6.  Helstu trú­ar­brögðin í Taílandi eru ... hver?

7.  Vigdís Hauks­dóttir er stjórn­mála­maður, vissu­lega umdeild nokkuð. Hún lauk lög­fræði­prófi en áður hafði hún menntað sig í ... hverju?

8.  Nikótín er öfl­ugt eitur eins og allir vita. En hvaða til­gangi þjónar nikótín í þeim plöntum sem fram­leiða þetta efni?

9.  Í hvaða landi er borgin Lyon?

10.  Sigurjón Birgir Sig­urðs­son er kunnur undir öðru nafni. Hvaða nafn er það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi karl?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hann var leik­rita­skáld, harm­leikja­höf­undur. Rit­höf­undur dugar ekki eitt og sér.

2.  Örn lét skjald­böku detta á höf­uðið á honum því fugl­inn hélt að skalli hans væri gljá­andi steinn, og ætl­aði þannig að mölva skel skjald­bök­unnar.

3.  Henni var rænt af „Tyrkjum“ og flutt til Norður-Afríku.

4.  Hall­grímur Pét­urs­son.

5.  Japan.

6.  Búddismi.

7.  Garð­yrkju­fræði, blóma­skreyt­ingum.

8.  Nikótín er skor­dýra­eitur plönt­unnar.

9.  Frakk­landi.

20.  Sjón.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er dóm­kirkja heilags Basils í Moskvu.

Á neðri mynd­inni er Jóakim prins í Danmörku, síð­ari sonur Mar­grétar drottn­ingar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
2
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár