909. spurningaþraut: Kona átti dæturnar Þorgerði og Helgu og svo eina sem gleymdist

909. spurningaþraut: Kona átti dæturnar Þorgerði og Helgu og svo eina sem gleymdist

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða piltur er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Santor­ini heitir eyja ein og flykkj­ast þangað ferða­menn til að skoða ummerki hrika­legra nátt­úru­ham­fara sem þar urðu fyrir nokkur þús­und árum, og til að njóta góðra veð­urs­ins sem þar er ein­lægt. Á 19. öld fékk eyjan hið opin­bera nafn Thēra en flestir kalla hana enn Santor­ini. Hvaða ríki til­heyrir Santor­ini?  

2.  Hvað liggur norð­ur­heim­skauts­baug­ur­inn yfir land­svæði margra ríkja? Hér má muna einu ríki.

3.  En yfir hve mörg ríki liggur suð­ur­heims­skauts­baug­ur­inn?

4.  Hvaða vin­sæli en umdeildi íslenski rapp­ari kom sér ræki­lega á kortið í íslenskum rapp­heimum árið 2015 með lagi sem bar heitið Hverfinu? (Já, í þágu­falli.)

5.  Hvaða haf liggur að rík­inu Oregon?

6.  Hún var uppi eða er sögð hafa verið uppi kringum árið 1000. Hún átti sex börn. Þrjár dætur átti hún og hétu tvær þeirra Þor­gerður og Helga en það gleymd­ist að taka fram hvað sú þriðja hét. Hún átti líka þrjá syni og hétu tveir þeirra Grímur og Helgi en sá þriðji er of frægur í sögum til að ég nefni hann. En hvað hét þessi kona? Skírn­ar­nafn dugar.

7.  Hvað heitir fjöl­menn­asta borg Tyrk­lands?

8.  Pompeo, Tiller­son, Kerry, Clinton, Rice, Powell, Albright ... hvaða nafnaruna er þetta?

9.  Hvað hét besti vinur Tinna?

10.   Í júní 1986 hóf göngu sína í Rík­is­út­varp­inu þáttur, fyrsta miss­erið sendur út á föstu­dags­kvöldum en því var svo breytt. Þatt­ur­inn er enn við lýði í dag­skránni, þótt stundum hafi orðið stutt hlé á og svo einu sinni í heilan ára­tug. En þátt­ur­inn er sem sé orð­inn 36 ára gam­all. Hvaða þáttur er þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða kona lyftir hér lóðum?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Grikk­landi.

2.  Þau eru átta, svo rétt telst vera 7-9. Ekki er nauð­syn­legt að telja þau upp, en þau eru Ísland, Grænland (allt í lagi að segja Danmörk), Kanada, Banda­ríkin (Alaska), Rússland, Finnland, Svíþjóð, Noregur. 

3.  Ekkert. Hann liggur að mestu yfir sjó en á örfáum stöðum yfir Suð­ur­skauts­landið sem ekki til­heyrir neinu ríki, þótt ýmis geri vissu­lega til­kall til yfir­ráða þar. 

Suð­ur­heim­skauts­baug­ur­innnær ekki landi í Suður-Ameríku.

4.  Gísli Pálmi.

5.  Kyrra­hafið. 

6.  Bergþóra.

7.  Istanbúl.

8.  Fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herrar Banda­ríkj­anna í öfugri röð frá Pompeo sem var síð­astur á undan þeim sem nú gegnir starf­inu. Fullu nafni heita þau Mike Pompeo, Rex Tiller­son, John Kerry, Hillary Clinton, Condoleezza Rice, Colin Powell, Madel­eine Albright.

9.  Kolbeinn kafteinn. Eftir ábend­ingu, þá hlýt ég að gefa rétt fyrir Tobba líka.

10.  Frjálsar hendur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er skógar­pilt­ur­inn Móglí eins og Disney túlk­aði hann í kvik­mynd frá 1968.

Á neðri mynd­inni er Edda Falak.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár