Áralangt ógnarástand og líflátshótanir

Barns­faðir Önnu Khyzhnyak hefur um margra ára skeið ofsótt hana, ógnað henni og áreitt. Þrátt fyrir að hann hafi verið úrskurð­aður í nálg­un­ar­bann gegn Önnu um tíma þurfti hún engu að síður að þola það að þurfa að eiga sam­skipti við hann vegna þess að þau deila for­ræði yfir dóttur þeirra. Til­kynn­ingar hennar og kærur til lög­reglu hafa litlu breytt og er Anna orðin úrkula vonar um að kerfið standi með henni.

Áralangt ógnarástand og líflátshótanir
Í helj­ar­g­reipum barns­föður Anna hefur lifað við stans­laust áreiti og ofbeldi af hálfu barns­föður síns um margra ára skeið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þrátt fyrir ítrek­aðar til­kynn­ingar til lög­reglu, barna­verndar og félags­þjón­ustu um ára­bil býr Anna Khyzhnyak enn við áreiti og ofbeldi af hálfu barns­föður síns, sem hún skyldi við árið 2015. Lögregla hefur ítrekað haft afskipti af mann­inum, hann hefur sætt nálg­un­ar­banni gegn Önnu og hún hefur kært hann í tvígang. Engu að síður linnir ekki áreit­inu og þarf Anna enn að vera í sam­skiptum við mann­inn vegna þess að þau deila for­ræði yfir dóttur þeirra. Anna er orðin úrkula vonar um að fá nokkurn tíma frið fyrir mann­inum og segir yfir­völd hafa brugð­ist bæði sér og dóttur sinni.

Anna ræddi við Eddu Falak í hlað­varps­þætt­inum Eigin konur á Stund­inni og lýsti þar sam­skiptum sínum við mann­inn og kerfið. Maðurinn hefur að sögn Önnu hótað henni líf­láti, beitt hana ofbeldi og áreitt árum saman. Fram­burður Önnu fær stöð í gögnum sem Stundin hefur undir höndum. Þar á meðal eru tugir skila­boða sem mað­ur­inn hefur sent henni, þar sem hann hótar henni meðal ann­ars líf­láti. Þá hefur lög­regla ítrekað haft afskipti af mann­inum og mót­tekið til­kynn­ingar Önnu um áreiti af hans hálfu, sem og hús­brot. Lög­reglan hefur þá marg­sinnis til­kynnt Barna­vernd Reykja­víkur um stöðu mála, án sjá­an­legs árang­urs. Þá ber starfs­kona Stíga­móta, en þangað leitað Anna, hjá lög­reglu að hún „hafi áhyggjur af þessu ástandi sem Hanna og barn hennar búi við.“

„Hann sagði mér að hann myndi drepa mig, ef ég byrj­aði í sam­bandi með öðrum mönnum“

Anna skildi sem fyrr segir við barns­föður sinn og hefur síðan og fram á þennan dag sætt áreiti og ofbeldi af hans hálfu, að eigin sögn og sam­kvæmt gögnum. Um þver­bak keyrði árið 2017 sem endað með því að mað­ur­inn var úrskurð­aður í hálfs árs nálg­un­ar­bann gegn Önnu. Var það eftir að hún hafði setið undir ítrek­uðum hót­unum og afskipta­semi manns­ins. Anna segir að áður en mað­ur­inn var úrskurð­aður í nálg­un­ar­bann gegn henni hefði hann meðal ann­ars hótað henni líf­láti. „Hann sagði mér að hann myndi drepa mig, ef ég byrj­aði í sam­bandi með öðrum mönnum.“

„Ertu að fara að setja föður dóttur þinnar í fangelsi?“

Á þeim tíma var Anna í við­tölum í Bjark­ar­hlíð. Þar var henni hjálpað að finna lög­fræð­ing og með honum fór Anna til lög­reglu og kærði barns­föður sinn. Hún segir að ákvörð­unin þar um hafi verið mjög erfið í ljósi þess að þau ættu saman barn. Að fá úrskurðað nálg­un­ar­bann er alla jafna tíma­frekt og svo var einnig í til­felli Önnu. Á meðan hún beið þess hélt barns­faðir hennar áfram að ógna henni og hóta, eftir því sem hún segir. „Það voru alls­konar skila­boð, hót­anir, hann elti mig nán­ast á hverjum degi.“

Anna lýsir því að hvað verst hafi þetta verið þær helgar sem barnið þeirra var í umgengni við föður sinn og hún ein. Þá hafi hún ekk­ert mátt gera, mað­ur­inn hafi gert henni ljóst að hún yrði að upp­lýsa hann um allar hennar ferðir á meðan að á því stæði. Þegar loks var úrskurðað að mað­ur­inn skyldi sæta nálg­un­ar­banni gagn­vart Önnu breytti það því þó ekki að umgengni hans við barn þeirra hélst. Það þýddi að mað­ur­inn kom heim til Önnu til að sækja barnið og hún því til­neydd til að eiga í sam­skiptum við hann. Anna lýsir því að fyrst eftir að nálg­un­ar­bannið tók gildi hafi þó orðið breyt­ing á hegðun barns­föður hennar, hann hafi passað sig betur og ekki haft sam­band við hana. „En svo með tím­anum þá fór hann aftur að haga sér á sama hátt og áður. Ég var þarna komin undir hans stjórn og ég skamm­að­ist mín svo mikið að ég til­kynnti ekki brot á nálg­un­ar­bann­inu. Hann hefur oft sagt við mig: Ertu að fara að setja föður dóttur þinnar í fang­elsi? Þess vegna hef ég alltaf bakkað.“

Spurð hvernig það geti gengið upp að maður sé úrskurð­aður í nálg­un­ar­bann gegn konu en engu að síður sé enn í gangi umgengni við barn þeirra, sem óhjá­kvæmi­lega leiði af sér sam­skipti þeirra á milli, segir Anna að svarið sem hún hafi fengið hafi verið að nálg­un­ar­bann hafi gilt gangvart sam­skiptum við hana en ekki við barnið. „Þá spyr ég: Hver átti að passa mig og barnið á þessu tíma­bili þegar nálg­un­ar­bann gagn­vart móður var í gildi en líka umgengn­is­samn­ingur gagn­vart barn­inu? Þarna var ég sett í mjög erf­iða stöðu.“

Nálg­un­ar­bannið gilti í sex mán­uði en um leið og það rann út hófst ofbeldið og áreitið að nýju, eða hélt áfram. Meðal annnars kom mað­ur­inn heim til Önnu eftir það og hót­aði henni. Raunar braut mað­ur­inn gegn nálg­un­ar­bann­inu á meðan á því stóð, en Anna, úrvinda eftir áreitið og bar­átt­una við kerfið, kveðst ekki hafa treyst sér til að til­kynna brot manns­ins.

Líflátshótanir til á myndböndum

Anna lýsir því enn­fremur í við­tal­inu að barns­faðir hennar hafi í fleiri en eitt skipti orðið upp­vís að hús­broti á heim­ili hennar. Hann hafi meðal ann­ars komið heim til hennar um miðja nótt þegar dóttir hans var hjá honum. Anna hafi vaknað upp þar sem mað­ur­inn stóð yfir henni í rúm­inu og kraf­ist skýr­inga á því hvers vegna Anna svar­aði ekki sím­tölum hans. Ástæðan hafi verið sú að hann hafi viljað fylgj­ast nákvæm­lega með því hvað Anna væri að gera meðan hún væri ein. Í við­tali við ráð­gjafa Barna­verndar greindi Anna frá því að eftir að hún vakn­aði upp hafi barns­faðir hennar tekið höndum um háls hennar og þrengt þannig að hún var við það að missa með­vit­und.

Til eru mynd­bönd þar sem mað­ur­inn heyr­ist segja að hann ætli sér að drepa Önnu. Anna lagði, í annað skipti, fram kæru á hendur barns­föður sínum í júní árið 2018 fyrir hót­anir og heim­il­is­of­beldi sem hún bar að átt hefðu sér stað í októ­ber árið áður. Á þeim tíma hefði enn átt að vera í gildi nálg­un­ar­bann manns­ins gegn Önnu. Bar hún einnig að mað­ur­inn hót­aði henni líf­láti, ítrekað. „[H]anna lagði fram tölvu­pósta máli sínu til stuðn­ings auk tveggja mynd­bands­upp­taka þar sem fram koma líf­láts­hót­anir,“ segir í bókun lög­reglu. Til­greint er að mað­ur­inn heyr­ist segja á mynd­bandi „You will see dead with your own eyes“ og „I swear I will fucking destroy you“. Það myndi um það bil útleggj­ast sem „Þú munt horfast í augu við dauð­ann“ og „Ég sver að ég mun and­skot­ans eyði­leggja þig“.

„Þetta verður það síð­asta sem þú munt sjá ef þú byrjar nýtt líf“

Í við­tal­inu greindi Anna auk þess frá því að barns­faðir hennar hefði hótað henni með byssu. Því hinu sama greindi hún einnig frá í við­tali við ráð­gjafa Barna­vefn­dar en í minn­is­blaði þar um segir að Anna beri að „faðir hafi í eitt sinn beint að henni byssu og hótað henni að byssan yrði það síð­asta sem hún myndi sjá.“ Í við­tal­inu í Eigin konum lýsir Anna því að þetta hafi gerst þannig að hann hafi hótað henni að ef hún myndi hefja nýtt líf myndi hann drepa hana. „Hann sett­ist inn í bíl­inn hjá mér og sagði: Sérðu þetta [um byss­una]. Þetta verður það síð­asta sem þú munt sjá ef þú byrjar nýtt líf.“

Spurð hvort hún hafi verið hrædd um að mað­ur­inn myndi beita byss­unni og skjóta hana svarar Anna því ját­andi. „Ég var hrædd á ein­hverjum tíma­punkti, já.“

Aldrei ákært

Marg­ít­rekuð afskipti lög­regluLögregla hefur ítrekað þurft að hafa afskipti af barns­föður Önnu og hún hefur kært hann í tvígang. Það hefur þó ekki leitt til ákæru á hendur honum.

Sjá má í gögnum lög­reglu að mál­efni Önnu og barns­föður hennar hafa verið til skoð­unar um langt skeið. Meðal ann­ars er bókað árið 2017 að lög­regla hafi rætt við starfs­mann Stíga­móta, en þangað hafi Anna leitað. Starfs­maður sam­tak­anna hafi lýst því að Anna hefði greint frá því að hegðun barns­föður hennar væri ofbeld­is­full. „Hann hafi beitt hana and­legu, lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi í gegnum tíð­ina.“ Lýsti starfs­maður Stíga­móta áhyggjum af ástand­inu sem Anna og dóttir hennar byggju við í sam­tali við lög­reglu.

Þá má einnig sjá í gögnum lög­reglu að Anna hafi komið á lög­reglu­stöð­ina við Hverf­is­götu til að til­kynna áfram­hald­andi áreiti og ónæði af hálfu barns­föður síns. Hún hefði sýnt sms skila­boð sem barns­faðir sendi í sífellu „þar sem hann krafði hana um að gera grein fyrir ferðum sínum.“

Á árinu 2016 hafði lög­regla í eitt skipti afskipti af mann­inum vegna brots gegn frið­helgi einka­lífs, heim­ilis og fjöl­skyldu. Þann 1. jan­úar er bókað að barns­faðir Önnu hafi ruðst inn til hennar og hafi numið dóttur þeirra á brott. Fyrir liggur einnig að Anna lagði fram kæru á hendur mann­inum 16. jan­úar sama ár fyrir heim­il­is­of­beldi, lík­ams­árás og hót­anir sem áttu sér stað árið 2012.

Í apríl árið 2017 var lög­regla kölluð til vegna áreitis manns­ins á hendur Önnu. Lögregla ræddi þá við mann­inn, sem staddur var fyrir utan fjöl­býl­is­hús sem Anna bjó í með dóttur sinni. Í sam­tali við lög­reglu hélt hann því fram að Anna væri í rugli og hann væri þar kom­inn til að vita hvort allt væri í lagi með dóttur hans. Lögregla ræddi því næst við Önnu og er því lýst að henni hafi verið mikið niðri fyrir og hafi sagt mann­inn ofsækja sig. „Annars var hún í mjög góðu standi, sem og dóttirin, og íbúðin mjög snyrti­leg,“ segir í bókun lög­reglu. Afleið­ingar áreit­is­ins voru þær að í maí var loks sam­þykkt sex mán­aða nálg­un­ar­bann á hendur mann­inum.

Þrátt fyrir að Anna hafi í tvígang kært mann­inn og lög­regla hafi ítrekað haft af honum afskipti; fengið í hend­urnar gögn sem sýna hót­anir hans og áreiti, hefur ekki verið gefin út ákæra á hendur honum.

Notaði morð á ungri konu sem hótun

Meðal þess ofbeldis sem Anna mátti sæta af hendi manns­ins voru ótölu­legur fjöldi skila­boða þar sem hann hafði með ýmsum hætti í hót­unum við hana. Meðal ann­ars fékk Anna skila­boð árið 2017 þar sem sagði: „I don‘t want u to end like Birna“ eða „Ég vil ekki að það fari fyrir þér eins og Birnu“. Var þar verið að vísa til hins hörmu­lega morðs á Birnu Brjáns­dóttur sem skók íslensku þjóð­ina á þeim tíma. Stundin hefur undir höndum gögn sem sýna tugi sím­tala, smá­skila­boða og skila­boða í gegnum sam­fé­lags­miðla frá barns­föð­urnum til Önnu, sum hver ítrekuð sama dag. Í þeim má lesa hót­anir og áreitni, dóna­skap, afskipta­semi og yfir­gang manns­ins. Þannig sendi mað­ur­inn henni til að mynda skila­boð árið 2017 þar sem segir að ef hún hringi ekki í hann innan tíu mín­útna muni fara mjög illa fyrir henni. Sömu­leiðis muni koma sá tími að hún þurfi að gjalda fyrir gjörðir sínar, hún muni þjást. Þá sendi hann skila­boð, eftir að Anna hafði blokkað hann á sam­fé­lags­miðlum, þar sem segir að ef hún opni ekki aftur fyrir hann þá sverji hann að hann muni koma „og laga allt til fram­búðar í kvöld.“ Ljóst er að um hótun er að ræða.

Anna hafði sam­band við þjón­ustu­mið­stöð Reykja­vík­ur­borgar árið 2020 og óskaði eftir aðstoð vegna stöð­unar. Nið­ur­staðan af þeirri beðni var sú að hún og barns­faðir hennar voru send í For­eldra­hús þar sem þau voru í við­tölum um nokk­urra mán­aða skeið. „En það var bara ekk­ert hægt að semja við þennan mann. Hann var ekk­ert að sam­þykkja að fá hjálp og hann vildi ekk­ert sam­þykkja að hegðun hans væri slæm fyrir dóttur sína. Þess vegna var tekin ákvörðun um að halda ekki áfram við­tölum, því við náum ekki sáttum. Svo staðan var bara sú sama.“

Líðan dóttur skiptir öllu máli

Anna segir að hún vilji að sam­skiptin þeirra á milli séu góð, dóttur þeirra vegna. Hún geti hins vegar ekki greint að barns­faðir hennar sýni nokkurn vilja til þess. Dóttur þeirra líði mjög illa vegna þess hversu erfið sam­skipti séu á milli for­eldra hennar. Hún hafi farið í þjón­ustu­mið­stöð í sál­fræði­tíma en sé mjög lokuð með líðan sína. „Hún segir bara mjög jákvæða hluti. En það sem ég upp­lifi og heyri frá henni er í raun­inni bæði.“

Anna ber að eftir umgengn­is­helgi hjá föður sínum sum­arið 2020 hafi dóttir þeirra komið heim og talað mjög vel um föður sinn, svo vel að það hafi vakið undrun hennar. Þegar hún hafi gengið á dóttur sína hafi hún lýst því að faðir hennar hafi lofað að borga henni tíu þús­und krónur fyrir að tala vel um sig á heim­ili þeirra Önnu. Þá kemur fram í minn­is­blaði Barna­verndar frá með­ferð­ar­fundi að stúlkan ber að faðir hennar lofi henni ýmsu sem hann standi síðan ekki við.

„Ekki þykir til­efni til afskipta af hálfu barn­ar­vernd­ar­yf­ir­valda“

Á fyrri hluta árs­ins 2017 sendi Barna­vernd Reykja­víkur í fimm­gang bréf til Önnu þess efnis að mót­teknar hefðu verið lög­reglu­skýrslur vegna áreitis barns­föður hennar, vegna ágrein­ings þeirra á milli, vegna kæru hennar á hendur honum og vegna hús­brots, auk ann­ars. Þá var Barna­vernd sömu­leiðis upp­lýst um að nálg­un­ar­bann á hendur mann­inum hefði verið sam­þykkt. Í öllum bréf­unum sagði: „Ekki þykir til­efni til afskipta af hálfu barn­ar­vernd­ar­yf­ir­valda.“ Tvær slíkar til­kynn­ingar liggja fyrir á árinu 2018 og segir hið sama í þeim bréfum Barna­verndar.

Til eru upp­tökur af mann­inum þar sem hann ræðir við dóttur í sím­tali og hvetur hana til að spyrja móður sína út í þung­un­ar­rof sem hún hefði farið í. Þá var barnið á átt­unda ári. Anna heldur því fram að með því hafi barns­faðir hennar verið að reyna að sýna dóttur fram á hversu vond Anna væri, að hafa ekki viljað eiga barnið. Á sama tíma mun sam­býl­is­kona föð­ur­ins hafa verið ófrísk. Anna og barns­faðir jennar slitu sem fyrr segir sam­bandi árið 2015. Eftir það komst Anna að því að hún væri þunguð og tók hún ákvörðun um að fara í þung­un­ar­rof þar eð hún treysti sér ekki til að eiga annað barn með mann­inum.

Anna segir að dóttir hennar vilji fara til föður síns enda sakni hún hans á þeim tveimur vikum sem líði milli umgengni. Það sé skilj­an­legt. „Ég hef aldrei verið á móti að þau hitt­ist tvö. Aldrei. En ég sé með tím­anum að ég þarf að minnka þetta. Af því að eftir því sem hún er eldri þá tekur hún í sig meiri áhrif.

[...]

Stundum kemur hún sár heim, stundum kemur hún glöð heim. Það er ekk­ert alltaf að hún er að gráta og svona, hún er glöð líka að sjá bróður sinn, að fara til hans. En núna þegar hún er að verða eldri, þá hefur þetta meiri áhrif. Það var verið að tala um ofbeldi í skól­anum, og hún kom til mín og spurði: Mamma, hvað er ofbeldi? Ég sagði að það væri ekki góð fram­koma einnar mann­eskju við aðra mann­eskju. Þá sagði hún: Alveg eins og pabbi var við þig. Þannig að hún sjálf setti dæmi. Hún er mjög klár stelpa, hún er mjög góð stelpa. Og ég bara get ekki horft upp á svona fram­komu föður við hana.“

Dóttir vill ekki hitta föður sinn lengur

Í lok síð­asta árs varð dóttir þeirra sár út í föður sinn og ákvað að hún vildi ekki fara til hans í umgengni. „Ég sagði: Þú ræður,“ segir Anna og bætir við að hún hafi útskýrt stöðun fyrir föður, að dóttir hans væri ekki búin að úti­loka hann en hún kæmi ekki til hans í ein­hvern tíma. Það varð raunin en við því hafi faðir brugð­ist ókvæða.  „Hann fer til sýslu­manns og sækir um dag­sektir. Hann fer á föstu­degi og á mánu­degi fæ ég strax tölvu­póst um að mæta vegna dag­sekta. Ég mæti þarna og mér var sagt að þetta mætti ég ekki gera, ég væri að brjóta lög þar sem að í gildi væri umgengn­is­samn­ingur. Það var ekk­ert hlustað á ástæð­urnar fyrir ákvörð­un­inni.“

Barns­faðir Önnu hefur hins vegar sjálfur ítrekað brotið umgengn­is­samn­ing sjálfur, sam­kvæmt frá­sögn hennar sem fær stuðn­ing í gögnum. Þannig hafi hann ítrekað ekki sótt barnið á leik­skóla þegar hún hafi átt að vera í umgengni við hann. „Það hefur oft verið þannig að það var hringt úr leik­skóla í mig og sagt að hún væri ennþá eftir, hún hefði ekki verið sótt. Leikskol­inn hafi verið að reyna að hringja í hann en hann ekki svarað síma. Þannig að ég fer og sæki barnið en svo birt­ist hann allt í einu klukkan sjö eða átt og seg­ist vilja fá hana. Og það var sagt við mig: Við megum ekki pína föður til að sækja barnið ef hann vill ekki.“

Anna segir að staða mála nú sé ögn skárri en verið hefur, hvað varðar áreiti barns­föður hennar í hennar garð. En áreitið hætti þó ekki. „Þetta mun aldrei hætta. Núna stjórnar sýslu­maður í raun­inni og þau geta haft áhrif á hann. Hann er ekki mikið að beita ofbeldi gagn­vart mér núna, af því að hann er með konu og af því hann má ekki koma nálægt mér, hann má ekki tala við mig. Þannig að þetta er bara gott fyrir mig. En stelpan fer enn til hans, og ég veit ekki hvað er að ger­ast þarna þessar helgar gott eða vont eða.“

Spurð hvaða vonir hún hafi í brjósti sér um fram­tíð­ina seg­ist Anna von­ast til að barns­faðir sinn leiti sér hjálpar og að hann breyti hegðun sinni gagn­vart dóttur þeirra. „Þetta er ein óskin mín. Að hún sjái hvað hún á í raun­inni góðan föður. Hún vill það sjálf, hún vill segja vinum sínum að hún eigi góðan föður. Ekki bara aðra hvora helgi, heldur líka dag­lega. Og segja frá góðum hlutum, ekki bara hann keypti og gaf mér ekki. Hann er að lofa, hann er alltaf að lofa henni. Ég vil að hann sýni henni betra dæmi af sjálfum sér. Hann hefur verið vondur við mig. Hann er búinn að gera mjög vonda hluti við mig. En mig langar að hann geri ekki svona við dóttur okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ragnhildur pála ófeigsdóttir skrifaði
    Undarlegt að dóttirin sé látin umgangast þennan mann að öllu óbreyttu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár