843. spurningaþraut: Lengi hefur verið von á spurningu um Sumargleðina!

843. spurningaþraut: Lengi hefur verið von á spurningu um Sumargleðina!

Fyrri aukaspurning:

Myndin hér að ofan sýnir umslag plötu sem hljómsveit ein sendi frá sér fyrir rúmum 50 árum. Albúmið er augljóslega skopstæling af innra byrði albúms Bítlanna, Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band. En hvaða tónlistarmaður var prímus mótor hljómsveitarinnar sem sendi frá þessa plötu með skotstælingunni? — Og svo er í boði hippastig ef þið vitið hvað þessi plata heitir.

***

Aðalspurningar:

1.  Hvaða á fellur til sjávar milli Eyrarbakka og Þorlákshafnar?

2.  Hvaða fræga opinbera stofnun er til húsa á eða rétt við Eyrarbakka?

3.  Hver sagði nýlega af sér sem forseti ASÍ?

4.  Hnappadalur er á mótum tveggja héraða á Íslandi, má segja. Hver eru þau? — og nefna þarf bæði rétt til að fá stig.

5.  Sumargleðin var hópur skemmtikrafta sem fór um landið á sumrin í rúman áratug beggja vegna við 1980. Þar komu ýmsir við sögu en hvaða hljómsveit var hryggjarstykkið í gleðinni?

6.  Daníel, Jóel, Jónas, Amos og Óbadía — hverjir voru þeir?

7.  Hvað heitir sjöunda stúdóplata Beyoncé sem út kom í lok júlí?

8.  Undir hvaða gælunafni er Sverrir Þór Sverrisson þekktastur?

9.  Hvaða hét aðstoðarforingi breska lögregluvarðstjórans Morse í rómuðum seríum um þann síðarnefnda, en aðstoðarmaðurinn fékk seinna sína eigin sjónvarpsseríu þar sem hann leysti erfið sakamál upp á eigin spýtur?

10.  Í hvaða borg á Englandi áttu þeir að vera við störf, bæði Morse og aðstoðarmaður hans?

***

Seinni aukaspurning:

Hér má sjá aðalleikkonuna í sjónvarpsseríu íslenskri sem sýnd var fyrr á árinu. Hvað heitir serían?

***

Svör við aðalspurningum:

1.  Ölfusá.

2.  Fangelsið að Litla-Hrauni.

3.  Drífa Snædal.

4.  Snæfellsness og Mýra. Í nafni umburðarlyndis og friðar millum allra manna gef ég líka rétt að þessu sinni fyrir Borgarfjörð — í seinna tilfellinu.

5.  Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar.

6.  Þeir eru meðal spámanna Gamla testamentisins.

7.  Renaissance.

8.  Sveppi.

9.  Lewis.

10.  Oxford.

***

Svör við aukaspurningum:

Á efri myndinni má sjá hljómsveitina The Mothers of Invention sem Frank Zappa hélt úti. Hann er lengst til vinstri á myndinni. Platan heitir We're Only In It For The Money.

Á neðri myndinni er skjáskot úr seríunni Svörtu sandar.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Náttúrubarnið í Sænautaseli
2
Viðtal

Nátt­úru­barn­ið í Sænauta­seli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.
Fljúga flugdrekum til að ögra ísraelskum landnemum: „Okkar land, okkar himinn“
4
Erlent

Fljúga flugdrek­um til að ögra ísra­elsk­um land­nem­um: „Okk­ar land, okk­ar him­inn“

„Börn­in okk­ar eiga rétt á að leika sér og eiga raun­veru­legt og gott líf,“ seg­ir íbúi í þorpi á Vest­ur­bakk­an­um sem Ísra­el hef­ur þrengt að með ólög­mætri land­töku­byggð. Sam­ein­uðu þjóð­irn­ar vara við aukn­um árás­um á palestínu­menn á svæð­inu. En íbú­ar efna til há­tíð­ar fyr­ir börn­in með and­lits­máln­ingu og flugdrek­um.
„Hringið bjöllunum“: Íbúar lýsa flóttanum undan mannskæðum gróðureldum á Spáni
5
Erlent

„Hring­ið bjöll­un­um“: Íbú­ar lýsa flótt­an­um und­an mann­skæð­um gróð­ureld­um á Spáni

Flest­ir sem lét­ust í skógar­eld­um á Spáni voru ferða­menn eða inn­flytj­end­ur sem höfðu sest að á svæð­inu í leit að frið­sælu lífi. Minnst tólf lét­ust á flótta und­an eld­tung­un­um, en þeg­ar eld­ur­inn nálg­að­ist þorp­ið Bed­ar fékk einn bæj­ar­full­trú­inn ör­vænt­ing­ar­full fyr­ir­mæli frá bæj­ar­stjór­an­um: Hlauptu í kirkj­una og hringdu bjöll­un­um til að vara íbúa við.
Ferðaþjónusta á hjara veraldar:  Grænlendingar læra af mistökum Íslendinga
6
ErlentGrænlandsmálið

Ferða­þjón­usta á hjara ver­ald­ar: Græn­lend­ing­ar læra af mis­tök­um Ís­lend­inga

Græn­land vill að ferða­þjón­usta standi und­ir fjöru­tíu pró­sent­um af út­flutn­ings­tekj­um lands­ins ár­ið 2035. At­hygli al­þjóða­sam­fé­lags­ins hef­ur beinst að þess­ari stærstu eyju heims og sér­fræð­ing­ar segja Banda­ríkja­for­seta hafa auk­ið áhuga á land­inu líkt og eld­gos­ið við „Eyja­fjalla­jök­ul“ gerði hér. Heim­ild­in rýndi í þró­un ferða­þjón­ust­unn­ar á Græn­landi sem hef­ur lært af ávinn­ing­um og mis­tök­um ná­granna­rík­is­ins Ís­lands.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Halldór Jörgen Olesen
4
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár