Hjólreiðafólk „með lífið í lúkunum“

Formaður Reið­hjóla­bænda segir öryggi hjól­reiða­fólks hætt komið, bæði á þjóð­vegum og í þétt­býli. Löglegt sé til dæmis að taka fram úr reið­hjóli á blind­hæð og van­þekk­ing sé meðal öku­manna um þær umferð­ar­reglur sem gilda. Sam­stillt átak þurfi til að stöðva fjölgun slysa óvar­inna veg­far­enda.

Hjólreiðafólk „með lífið í lúkunum“
Birgir Birg­is­son Formaður Reið­hjóla­bænda hefur birt fjölda mynd­banda sem sýna glæfra­legan akstur nærri hjól­reiða­fólki. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þrátt fyrir að hjól­reiða­menn­ing hafi eflst und­an­farin ár standa gallar á umferð­ar­lögum og van­þekk­ing öku­manna á reglum í vegi fyrir því að öryggi hjól­reiða­manna sé tryggt. Þetta segir Birgir Birg­is­son, for­maður sam­tak­anna Reið­hjóla­bænda. Fjöldi mynd­banda er til af félags­mönnum þeirra í umferð­inni þar sem öku­menn taka glæfra­lega fram úr reið­hjóli án þess að 1,5 metra hlið­ar­bil sé tryggt eins og lög segja til um.

Slysum í umferð­inni á fólki á reið­hjólum og raf­hjólum hefur fjölgað mikið á und­an­förnum árum og hefur fjöldi slas­aðra meira en tvö­fald­ast síð­asta ára­tug. Alls 241 úr þeim hópi slas­að­ist eða lést í umferð­inni í fyrra, en til sam­an­burðar voru það 164 árið áður og aðeins 89 árið 2012, sam­kvæmt töl­fræði Sam­göngu­stofu. Stór hluti aukn­ing­ar­innar er vegna slysa á fólki á raf­magns­hlaupa­hjólum og fór fjöldi slysa á þeim fram úr slysum á hjól­reiða­fólki í fyrra.

Í könnun stofn­un­ar­innar á akst­urs­hegðun Íslend­inga frá því í fyrra kemur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • WH
    Willard Helgason skrifaði
    Fjandans bull er þetta hef hjólað tölvert við Laugarvatn og Reyki í og Svinavatn íJúli, ekkert vesen þar í traffíkinni, einn vælarinn enn.
    -2
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Ég hjóla mikið og er ekki með lífið í lúkunum enda stunda ég ekki að hjóla nálægt bílum á fjölförnum umferðaræðum í von um að að ná mynd af áhættuhegðun annara. Þessir menn eru bara að leita að vandræðum. Þeir eru nýhættir að standa í keppni um pláss á götunum við strætó.
    -1
    • Birgir Birgisson skrifaði
      Myndskeiðin eru samansafn atvika yfir 2,5 ár og rúmlega það. Þú skrifar "Nýhættir".
      Hvenær nákvæmlega var það, að þínu mati?
      Og hvernig getur þú nokkuð vitað um við hvaða tækifæri upptökurnar eru gerðar?
      1
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Sýnist við þurfa að setja reglur um stöðu leiguhjóla á göngustígum og gera eigendur ábyrga fyrir þessum leiguhjólum hvar sem er ? Eins og ástandið er í dag gengur ekki ?
    -1
    • Birgir Birgisson skrifaði
      Rétt, en það er allt önnur umræða sem væri betra að eiga annars staðar á öðrum tíma.
      1
  • GLL
    Guðmundur Logi Lárusson skrifaði
    Nauðsynlegt að sýna hjólreiðafólki tillitssemi, en hvað með að sumt hjólafólk sýni gangandi fólki á stígum líka tillitssemi ? Hjólarar hafa strokist við handlegginn á mér þegar þeir fóru framhjá, á hraða sem er varla eðlilegur innan um gangandi fólk á gangstígum.
    2
    • Birgir Birgisson skrifaði
      Hjólreiðafólk á að sýna gangandi vegfarendum fulla tillitssemi, alltaf, alls staðar, án undantekninga. Því miður er ekki allt hjólreiðafólk með nægan skilning á því en við reynum að leiðbeina sem flestum og ítekum þetta við byrjendur í hjólreiðum.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár