812. spurningaþraut: Bandaríkjaforseti og frú hans, þingmaður og fyrirtæki í Grindavík

812. spurningaþraut: Bandaríkjaforseti og frú hans, þingmaður og fyrirtæki í Grindavík

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist sú per­sóna sem sjá má á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða þétt­býl­is­staður er næstur Suð­ur­sveit?

2.  Í hvaða Amer­íku­landi heitir höf­uð­borgin Kingston?

3.  Roosevelt hét Banda­ríkja­for­seti nokkur sem sat að völdum frá 1933 til 1945. Hann bar og not­aði tvö skírn­ar­nöfn. Hver voru þau?

4.  Eig­in­kona Roosevelts þessa var litlu síðri skör­ungur en eig­in­mað­ur­inn og var miklu aðsóps­meiri en títt hafði verið um for­seta­frúr fram að hennar dögum. Hvað hét hún að skírn­ar­nafni?

5.  Síld­ar­vinnslan var að kaupa sér fyr­ir­tæki í Grinda­vík. Hvað heitir fyr­ir­tækið í Grinda­vík?

6.  En hvar hefur Síld­ar­vinnslan bæki­stöðvar sínar?

7.  Á þeim stað, þar sem Síld­ar­vinnslan hefur bæki­stöðvar, fædd­ist verð­andi þing­maður á Alþingi Íslend­inga 1977 og vann einmitt hjá Síld­ar­vinnsl­unni í nokkur ár eftir að hafa lokið stúd­ents­prófi. Þing­mað­ur­inn lauk svo BA-prófi í mann­fræði frá HÍ 2002 og því næst meist­ara­prófi í fötl­un­ar­fræði, líka frá HÍ,  2013, og hafði þá í mörg ár sinnt marg­vís­legum félags­störfum, ekki síst fyrir örykja. Árið 2014 tók þing­mað­ur­inn sæti á Alþingi og hefur verið þar síðan. Hvað heitir þessi þing­maður?

8.  Gyðja ein í nor­rænni goða­fræði hefur það hlut­verk að tryggja hinum guð­unum eilífa æsku. Til þess hafði hún ávexti sem guð­irnir átu af þegar þeir tóku að eld­ast — en reyndar voru ávext­irnir úr gulli. Hvaða ávextir voru þetta?

9.  En hvað hét gyðjan?

10.  Hvað hét kvik­mynd Stuð­manna sem frum­sýnd var 1982?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver hefur hér verið gómaður?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Höfn.

2.  Jamaíka.

3.  Franklin Delano.

4.  Eleanor.

5.  Vísir.

6.  Nes­kaup­stað.

7.  Steinunn Þóra.

8.  Epli.

9.  Iðunn.

10.  Með allt á hreinu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Cruella de Vil eða Grimm­hildur eins og hún er nefnd á íslensku.

Á neðri mynd­inni er Karl Dönitz, flota­for­ingi í Hitlers-Þýska­landi og arf­taki Hitlers í nokkra daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár