811. spurningaþrautin: Hvað er sólin mikill hluti sólkerfisins?

811. spurningaþrautin: Hvað er sólin mikill hluti sólkerfisins?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Við svo­lít­inn þétt­býl­is­stað hér á landi hefur á und­an­förnum ára­tugum risið hjól­hýsa­byggð en nú er sveit­ar­fé­lagið að upp­ræta hana af örygg­is­á­stæðum, eig­endum hjól­hýsanna til lít­illar ham­ingju. Hvar hefur þessi byggð verið?

2.  Árið 1830 birti Banda­ríkja­mað­ur­inn Joseph Smith bók sem hann kvaðst hafa fundið og varð þessi útgáfa kveikjan að nýrri trú­ar­hreyf­ingu sem óx og dafn­aði og lifir enn. Hvaða hreyf­ing er það?

3.  Þeir sem aðhyll­ast trú þessa eru lang­flestir búsettir í til­teknu ríki Banda­ríkj­anna. Hvaða heitir það?

4.  Halldór Laxness skrif­aði skáld­sögu um mann sem tók að aðhyll­ast trú þessa. Hvað heitir skáldsagan?

5.  Hvaða tveir litir eru í kín­verska fán­anum?

6.  „Þúsund vatna landið,“ hvaða land er stundum kallað svo?

7.  Raunin er þó sú að í mörgum löndum heims eru fleiri vötn en í þessu „þús­und vatna landi“. Í hvaða landi eru flest stöðu­vötn?

8.  Sól­kerfið okkar sam­anstendur af sól­inni, átta plánetum mjög mis­stórum, þó nokkrum dverg­plánetum og ótölu­legum grúa af tunglum, loft­steinum, hala­stjörnum og smá­st­irnum. Sólin er nátt­úr­lega lang stærsti og þyngsti hlut­ur­inn í sól­kerf­inu, en hve mörg pró­sent er hún af heild­armassa sól­kerf­is­ins? Hér má skeika 1,8 pró­senti til eða frá.

9.  Fyrir ári var greint frá því í fréttum að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Ragnar Jónasson rit­höf­undur væru eða ætl­uðu að skrifa saman reyfara. Nú hefur þessi reyfari aftur kom­ist í sviðs­ljósið. Hvers vegna?

10.  Sigurður Kári Krist­jáns­son var þing­maður nær sam­fellt frá 2003-2011. Fyrir hvaða flokk?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þær fimm ein­földu setn­ingar sem sjást hér að neðan eru skrif­aðar á tungu­máli sem nú er nærri útdautt. Það var reyndar skrifað með öðru letri en hér eru setn­ing­arnar skráðar með lat­nesku letri. Hvaða tungu­mál er hér um að ræða?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Laug­ar­vatn.

2.  Mormónar.

3.  Utah.

4.  Para­dís­ar­heimt.

5.  Gulur og rauður.

6.  Finnland.

7.  Kanada.

8.  Sólin er 99,8 pró­sent sól­kerf­is­ins, svo rétt telst vera allt frá 98-99,999999 pró­sent.

9.  Vegna þess að Katrín þarf vegna bóka­skrif­anna að sækja um und­an­þágu frá lögum um að ráð­herrar skuli ekki taka að sér önnur störf.

10.  Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er söng­stjarnan Dolly Parton.

Setn­ing­arnar á neðri mynd­inni eru á jiddísku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár