Sjálfstæðismenn þeir einu sem treysta frekar Bjarna

70,7 pró­sent bera lítið traust til Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á meðan 18,3 pró­sent segj­ast bera mikið traust til hans. Þetta sýnir ný traust­mæl­ing Maskínu. Ásmundur Einar Daðason nýtur mests trausts.

Sjálfstæðismenn þeir einu sem treysta frekar Bjarna
Tapar trausti Bjarni hefur misst traust, sam­kvæmt mæl­ingu Maskínu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mikill meiri­hluti þjóð­ar­innar ber lítið traust til Bjarna Bendikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Aðeins stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks­ins bera meira traust en minna til hans. Þeim sem bera mikið traust til Bjarna hefur fækkað um 19 pró­sentu­stig á milli mæl­inga. Þetta sýnir reglu­bundin mæl­ing Maskínu á trausti til ráð­herra sem birt var í morgun. 

Níu pró­sent stuðn­ings­fólks Sjálf­stæð­is­flokks­ins bera frekar lítið eða mjög lítið traust til Bjarna, sam­kvæmt mæl­ing­unni, á meðan 60,9 pró­sent þeirra segj­ast bera mjög mikið eða frekar mikið traust til hans. Stuðn­ings­fólk allra ann­arra stjórn­mála­flokka van­treysta honum frekar en treysta, en það eru helst þeir sem styðja Mið­flokk­inn og Framsókn sem treysta Bjarna. 17,7 pró­sent Fram­sókn­ar­fólks ber traust til hans og 17,1 pró­sent Mið­flokks­fólks. 

Yfir 90 pró­sent stuðn­ings­fólks Flokks fólks­ins, Pírata og Sós­í­alista van­treysta ráð­herr­anum. 

Flestir treysta Ásmundi

Með traustÁsmundur Einar nýtur mest trausts allra ráð­herr­anna.
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Haraldsson skrifaði
    18,3% illmenni sem hugsa bara um sitt rassgat og vona margir hverjir að þeir fái mynslu af gnægtar borðum auðvaldsmafíunar. Stór hluti þessara kjósenda eru ógerslega meðvirkir og fjöldinn haldin ólæknandi Stokkhólmsveiki.
    1
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Hún sem áður uppúr stóð
    á öllum gáfnaprófum,
    hefur svikið sína þjóð
    og sest til borðs með þjófum.

    Hún sem þótti haukleg mær
    og hafði kjarkinn mikla
    í úlfakreppu andlaus fær
    með íhaldi að sprikla.

    Nú auðvaldið hún elskar heitt
    og arðráni vill sinna
    því aldraðir fá ekki neitt
    og öryrkjar fá minna.

    Er þingmenn okkar aumir fá
    við orðaskak að fitla
    á villigötum valdsins þá
    vappar Katrín litla.

    Höf.Kristjàn Hreinsson
    3
  • Arnar Gudlaugsson skrifaði
    Jafnvel Nixon þurfti að segja af sér með meiri stuðning en Bjarni
    2
  • Gauti Bergmann Víðisson skrifaði
    Enda er þetta sértrúarsöfnuður. Og ógeðslegur söfnuður í þokkabót
    3
    • Sigurður Haraldsson skrifaði
      100% sammála því þeir verja barnaníðingana líka.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu