Íslensk kona nam börnin sín á brott á einkaflugvél

Norska lög­reglan rann­sakar brott­nám á þremur börnum frá íslenskum föður. Flest bendir til þess að aðgerðin hafi verið þaul­skipu­lögð. „Þeir vilja vera á Íslandi,“ segir konan.

Íslensk kona nam börnin sín á brott á einkaflugvél
Fór á einka­flug­vél Konan fór með einka­flug­vél frá Noregi og lenti á Reykja­vík­ur­flug­velli. Myndin teng­ist ekki efni grein­ar­innar beint. Mynd: Isavia

Íslensk kona er grunuð um að hafa rænt þremur börnum af heim­ili föður þeirra í norskum smábæ og flutt þau með einka­flug­vél til Íslands í gær. Faðir barn­anna, sem einnig er íslenskur, fer með for­ræði barn­anna þriggja, sam­kvæmt úrskurði Hæsta­réttar Noregs árið 2019. Samkvæmt dómnum er kon­unni ein­göngu heim­ilað að hitta börn sín um sól­ar­hring á ári.

Allt bendir til að atvikið hafi verið þaul­skipu­lagt, en það var um klukkan fjögur í gær­dag, sem faðir barn­anna upp­götv­aði að börnin hefðu verið tekin. Þau hafa búið ásamt föður sínum í smábæ í suð­ur­hluta Noregs. Tvö barn­anna voru sótt í skóla en eitt á heim­ili sitt, án heim­ildar föð­ur­ins. 

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar flaug konan með börnin þrjú í einka­flug­vél frá litlum flug­velli í Torp í suð­ur­hluta Noregs, ekki langt frá heim­ili barn­anna. Konan hafði komið með sömu vél frá Íslandi fyrr um dag­inn. 

Flug­vélin lenti á Reykja­vík­ur­flug­velli seint í gær­kvöldi. Norska lög­reglan rann­sakar málið og hefur haft sam­band við íslensk lög­reglu­yf­ir­völd og óskað eftir sam­vinnu við rann­sókn­ina. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur norska lög­reglan rætt við kon­una sem stað­festir hún að börnin séu í hennar umsjá á Íslandi.

Konan segir frá því í Facebook-status að hún telji börnin eiga rétt á umgengni við sína nán­ustu án „eft­ir­lits ókunn­ugs fólks“.

„Eftir langan und­ir­bún­ing, vanga­veltur og ráð­fær­ingar við fag­fólk þá var eina nið­ur­staðan að sækja skytt­urnar okkar. Lang­þráður dagur fyrir krakk­ana sem hafa ekki hist í næstum þrjú ár. Það er ótrú­legt að ein­hver reyni að rétt­læta aðskilnað systk­ina, hvað þá aðskilnað barna frá for­eldri sem hefur ekk­ert viljað nema eðli­lega sam­veru barn­anna við fjöl­skyld­una og heil­brigt umhverfi fyrir þau að alast upp í. Slag­ur­inn sem er framundan mið­ast að því að tryggja systkin­unum gott líf og bjarta fram­tíð með þeim sem elska þau mest. Réttur strák­anna til eðli­legrar umgengni við for­eldra, réttur þeirra til áhyggju­lausrar æsku og öruggs umhverfis hefur verið virtur að vettugi. Það hefur ekki verið hlustað á þá. Þeir vilja vera á Íslandi, þeir vilja fá að vera börn og þeir vilja eiga frjáls sam­skipti við sína nán­ustu, ekki undir eft­ir­liti ókunn­ugs fólks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (10)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Óskar Steinn Gestsson skrifaði
    Ég gleymi aldrei þegar litháarnir sem ég var að vinna með í Noregi fóru að tala um barnaverndarnefnd, þeir voru allir skíthræddir við yfirvaldið, þorðu aldrei að fara ut á lífið af ótta við að börnin væru tekin af þeim. Óháð þessu máli þá er eitthvað alvarlegt í gangi þarna í Noregi, einhver barnaverksmiðja í gangi.
    3
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Þetta líkist máli sem kom upp fyrir nokkrum árum þegar móðir nam brott barn eða börn frá dönskum föður í Danmörku með einkaflugvél. Það endaði þannig að íslenska lögreglan sendi börnin til föður síns og móðirinn þurfti að sitja af sér fanelsisdóm í Danmörku ef ég man rétt.
    1
    • Helga Álfheiðardóttir Sigurðardóttir skrifaði
      Nei, það endaði ekki þannig. Börnin fóru aldrei aftur til föðursins, en biðu hjá móðurfjölskyldu á meðan móðirin afplánaði.
      0
    • ÁH
      Ásmundur Harðarson skrifaði
      Það er rétt að börnin voru hjá móðurfjölskyldunni meðan móðirin afplánaði. Móðirin kaus svo að fara sjálf með börnin til Danmerkur þar sem forræði föðurins yfir börnunum var staðfest fyrir dómi. Ég gerði ráð fyrir að þau hefðu þá farið til hans.
      0
  • Viggó Jörgensson skrifaði
    Enn má svo bæta við að skv. 261. gr. norskra hegningarlaga varðar það sekt eða allt að 2 ára fangelsi að flytja barn út úr Noregi án samþykkis þess sem fer með forræði barnsins. Hljóti barnið skaða af því er refsiramminn 6 ára fangelsi. Þetta er þungbær málaflokkur fyrir alla hlutaðeigandi.
    2
  • Viggó Jörgensson skrifaði
    Hins vegar er Ísland skyldugt að hlýta niðurstöðu norskra dómstóla, og skila þessum börnum aftur til Noregs. Nema íslenskir dómstólar komist að annari niðurstöðu. Norsk barnaverndaryfirvöld munu svífast einskis til að fá þessi börn aftur, enda eru þau eign Konungsríkisins Noregs að þeirra sögn.
    -1
  • Viggó Jörgensson skrifaði
    Approximately 4000 people who were formerly taken into custody by the child welfare [ in Norway] have sought compensation for suffering and abuse while living in orphanages or foster families between 1945 and 1980. Of these, 2637 have received compensation, in total $220 million (2010).
    0
  • Það er satt,Þeir eru sálsjúkir í lille drit noregi,ég misti mín 3 börn á lígi.
    -1
  • Viggó Jörgensson skrifaði
    Veit alls ekkert um þetta mál. En barnaverndarstefna Noregs er mótuð af sálsjúku fólki, í anda nazista. Línan er að börn séu eign Konungsríkisins Noregur en alls ekki foreldranna. Noregur er með tugi mála fyrir Mannréttindadómstól Evrópu út af ofbeldi við börn og foreldra.
    -1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Þetta er hræðilegt.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár