Biðst afsökunar eftir frásögn Eddu

Frosti Logason, sjón­varps­maður á Stöð 2, gengst við því að hafa hótað að birta nekt­ar­myndir af fyrr­ver­andi kær­ustu, Eddu Pét­urs­dóttur, sem steig fram í þætt­inum Eigin Konur í dag.

Biðst afsökunar eftir frásögn Eddu
Frosti Logason Heldur úti hlað­varp­inu Harma­geddon og starfar við þátt­ar­gerð hjá Stöð 2.

Eftir frá­sögn Eddu Pét­urs­dóttur í þætt­inum Eigin Konur í dag af lands­þekktum kærasta sem hót­aði henni að afhjúpa nekt­ar­efni af henni, hefur Frosti Logason, sjón­varps­maður á Stöð 2, stigið fram og geng­ist við breytn­inni.

Edda sagð­ist í við­tali við Eddu Falak hafa verið ótta­slegin í ára­tug eftir sam­bandið. Birt hafa verið sam­skipti þar sem hann hót­aði að dreifa nekt­ar­myndum af henni í refs­ing­ar­skyni.

Frosti, sem er dag­skrár­gerð­ar­maður í þætt­inum Íslandi í dag, stýrði þætt­inum Ósýni­lega fólkið á Stöð 2 og er í stjórn SÁÁ, seg­ist ekki hafa gert sér grein fyrir því hvað hann hefði sagt og gert í fyrra sam­bandi.

„Í dag birt­ist við­tal við fyrr­ver­andi kær­ustu mína sem ég átti í sam­bandi við á árunum 2009-2012 og var til umfjöll­unar í Stund­inni. Ég vil taka það skýrt fram að ég tek fulla ábyrgð á minni hegðun og rengi ekki upp­lifun hennar,“ segir Frosti á Facebook-síðu sinni.

„Samband okkar var ekki heil­brigt og fram­koma okkar við hvort annað langt í frá til fyr­ir­myndar. Ég var á vondum stað á þessum tíma. Ég tók sam­bands­slit okkar mjög nærri mér og í kjöl­far þeirra kom hrylli­legt tíma­bil þar sem ég var hald­inn þrá­hyggju og sagði og gerði hluti sem ég sé mikið eftir.“ 

Frásögn Eddu var fyrst og fremst af fram­göngu Frosta eftir að sam­bandi þeirra lauk. Hún greindi þó frá því að fljót­lega eftir að sam­band þeirra hófst hafi hann sakað han hana um að halda fram hjá sér. „Það átti ekki átt við nein rök að styðj­ast og ásak­an­irnar komu mér alger­lega í opna skjöldu. Þetta versn­aði þegar á leið og var orðið mjög þrá­hyggju­kennt undir lok sam­bands­ins,“ sagði Edda í dag.    

Eftir að þau hættu saman upp­hófst tíma­bil þar sem hann sendi henni óheyri­legt magn tölvu­pósta og smá­skila­boða, nán­ast dag­lega á tíma­bili. „Þá skap­að­ist ein­hvers­konar umsát­urs­á­stand. Hann sendi mér tölvu­póst oft í viku til að byrja með þar sem hann sak­aði mig um svik og fór fram á að ég kæmi heið­ar­lega fram við sig. Bréfunum fækk­aði eftir því sem tím­inn leið frá því við hættum saman en í um tæpt ár eftir sam­bands­slitin sendi hann hátt í 80 tölvu­bréf og fjöl­mörg sms. Í flestum eru ein­hvers­konar hót­anir og svo segir hann ógeðs­lega hluti um mig,“ sagði hún.  

Í tæpt ár þurfti hún að þola langvar­andi áreiti þar sem hann fór meið­andi orðum um hana og krafð­ist þess að hún bæði hann afsök­unar á ein­hverju sem hann sak­aði hana um, ellegar myndi hann birta kyn­ferð­is­legar myndir og mynd­bönd af henni. Að lokum gaf hann upp dag­setn­ingu og sagði ef hún hefði ekki brugð­ist við kröfum hans fyrir þann tíma myndi hann koma efn­inu í dreif­ingu. „Ef að ég verð ekki búin að fá neitt frá þér um að þér finn­ist leið­in­legt að hafa komið svona fram við mig þann 1. des næst­kom­andi mun ég túlka það þannig að þér sé skít­sama um þetta allt. Þá mun ég láta allt gossa,“ sagði í einum tölvu­pósti frá honum, þar sem hann vísar í kyn­ferð­is­legt myndefni af henni. 

Edda virð­ist nán­ast aldrei hafa svarað þessum skila­boðum, en þó beðið hann um að hætta. Þegar það gerð­ist ekki leit­aði hún til lög­regl­unnar sem var­aði hana við því að kæra hann. Hót­an­irnar sátu hins vegar lengi í henni og í hún var hrædd í ára­tug. Óttinn hafði meðal ann­ars þær afleið­ingar að hún forð­að­ist staði þar sem hún gæti rek­ist á hann og lét lítið fyrir sér fara. Hún sagð­ist enn vera hrædd um að myndefnið gæti farið í dreif­ingu. 

Frosti seg­ist hafa eytt öllum sam­skiptum þeirra tveggja og ekki vitað á síð­ari árum hvað hann hafi sagt og skrifað.

„Með hjálp sál­fræð­ings, þerapista og tólf spora sam­taka hóf ég bata­feril minn. Hluti af því ferli var að eyða öllum okkar fyrri sam­skiptum. Ég hef því ekki gert mér grein fyrir nákvæm­lega hvað ég hafði sagt og skrifað á þessu tíma­bili fyrr en ég sá við­talið við hana í morgun. Ég veit að ekk­ert getur bætt fyrir hegðun mína, það minnsta sem ég get gert er að gang­ast við því sem ég gerði og biðj­ast inni­lega afsök­unar.“

Frásögn Eddu má sjá hér.

Edda Pét­urs­dóttir segir fráEdda Pét­urs­dóttir greinir frá and­legu ofbeldi í kjöl­far sam­bands­slita þar sem hún sætti stöð­ugu áreiti frá fyrr­ver­andi kærasta sínum. Á fyrsta árinu eftir sam­bands­slitin bár­ust henni fjölda tölvu­pósta og smá­skila­boða frá mann­inum þar sem hann ýmist lof­aði hana eða rakk­aði niður, krafð­ist við­ur­kenn­ingar á því að hún hefði ekki verið heið­ar­leg í sam­band­inu og hót­aði að birta kyn­ferð­is­legar myndir og mynd­bönd af henni ef hún færi ekki að vilja hans.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    ekkert annað að gera enn að biðjast afsökunar á því sem maður gerði á steinöld og þakka fyrir að allir sluppu ágætlega lifandi frá vígvelli . . .
    -5
    • Ársæll Níelsson skrifaði
      Afhverju getur þú aldrei bara haldið kjafti?
      1
  • Þórunn Hjartardóttir skrifaði
    ...Ég vil taka það skýrt fram að ég tek fulla ábyrgð á minni hegðun og rengi ekki upplifun hennar,“...og svo „Samband okkar var ekki heilbrigt og framkoma okkar við hvort annað langt í frá til fyrirmyndar.... - fyrir mér afhjúpar þetta narsissisma Frosta fullkomlega.
    18
    • Axel Axelsson skrifaði
      þetta komment frá þér afhjúpar þekkingaleysi þitt á Goldwater rule (https://en.wikipedia.org/wiki/Goldwater_rule) . . .
      -5
    • ÓGR
      Ólafur G. Reynisson skrifaði
      Þannig er, Axel, að samkvæmt þinni eigin heimild, fjallar þessi regla um ábyrgð geðlækna í bandarískum gæðlæknasamtökum en segir ekkert um ábyrgð íslenskra þýðenda eins og Þórunni. Það mætti frekar segja að hún afhjúpi þekkingarleysi á íslenskum lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þá gæti hún bent á að það megi víkja frá ákvæðum þeirra laga og reglugerða í þágu fjölmiðlunar. "Já", gætir þú sagt, "til að þjóna mannkyninu" og bætt við: "Hvernig þjónar meintur narsissismi Frosta mannkyninu?"
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár