Óttaðist fyrrverandi kærasta í tæpan áratug

Edda Pét­urs­dóttir seg­ist í rúm níu ár hafa lifað við stöðugan ótta um að fyrr­ver­andi kær­asti hennar myndi láta verða af ítrek­uðum hót­unum um að dreifa kyn­ferð­is­legum mynd­böndum af henni, sem hann hafi tekið upp án hennar vit­undar meðan þau voru enn saman. Maðurinn sem hún segir að sé þekktur á Íslandi hafi auk þess áreitt hana með stöð­ugum tölvu­póst­send­ingum og smá­skila­boðum. Hún segir lög­reglu hafa latt hana frá því að til­kynna málið.

Óttaðist fyrrverandi kærasta í tæpan áratug
Hótaði að dreifa mynd­böndum af henni Edda segir að mað­ur­inn hafi sent sér hátt í 80 tölvu­bréf og fjöl­mörg sms eftir að þau hættu saman. Í sumum þeirra hóti hann að dreifa kyn­ferð­is­legum mynd­böndum af henni.

Edda Pét­urs­dóttir segir frá því hvernig kær­asti hennar hélt henni í helj­ar­g­reipum ótt­ans með því að ógna henni með kyn­ferð­is­legum myndum sem hann hafi hótað að birta, eftir sam­bands­slitin. Edda segir í sam­tali við Stundina að mað­ur­inn hafi beitt sig and­legu ofbeldi á meðan þau voru saman, en hún er gestur Eddu Falak í hlað­varps­þætt­inum Eigin Konur, sem verið er að sýna á vef Stund­ar­innar. 

„Hann hefur alltaf verið stærri og stærri á meðan ég sjálf hef ekki þorað að hafa mig mikið í frammi af því að auð­vitað er þessi ógn alltaf til staðar ef þessi vídeó eru til og það er ekk­ert þægi­legt. Manni líður ekki vel með það. Segjum að ég hefði farið í leik­list eða pólitik þar sem ég væri kannski áber­andi í sviðs­ljós­inu þá hef ég alltaf þessa ógn bak við eyrað að þessi mynd­bönd gætu bara birst þá og þegar,“ segir Edda í …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    samkvæmt þessum atburðalýsingum virðist þetta vera lögreglunni og Putin að kenna ? . . þar fyrir utan er það bara sorglegt að allir séu ekki alltaf fullkomir á öllum tímum lífs síns . . .
    -13
  • PK
    Páll Kristjánsson skrifaði
    Ef lögreglan gerir ekkert ÞURFUM VIÐ þá ekki að taka lögin í okkar hendur ???
    0
  • Stefanía Hilmarsdóttir skrifaði
    Þú ert hetja ❤Nafngreina þennan óþokkar!
    12
    • Heidrun Hauksdottir skrifaði
      Hvers vegna hrópar þú á nafngreiningu? Skilur þú ekki vandamálið eða langar bara að vísa á einhvern annan?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár